Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2004, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2004, Blaðsíða 11
DV Fréttir ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2004 11 Ruglaðist á vím og eitri Áströlsk barstúlka hefur verið dæmd til að greiða 50 þúsund krónur í sekt fyrir mistök í starfi. Barstúlkan veitti nokkrum gestum stórhættulegt hreinsiefni í stað snapsins sem óskað var eftir. Fimm manns voru fluttir á sjúkrahús eftir að hafa dreypt á drykknum. Barstúlkan segist hafa verið örþreytt vegna mikils vinnuálags og gripið til rangrar flösku. Tjernóbyl minnst Fómarlamba kjamorku- slyssins í Tjernóbyl í Úkra- ínu var minnst í gær en þá vom átján ár liðin frá atburðin- um. Slysið er það versta sem orðið hefur í sögunni og breiddist geisla- mengun um Evrópu og Sovétríkin. Sam- kvæmt opinberum tölum létust um þrjátíu manns í slysinu en aðrar heimildir segja að þúsundir manna hafi látist af völdum geislamengunar og miiljónir manna hafi orðið fyrir heilsutjóni á þeim átján ámm sem liðin em frá því kjarnaofhinn sprakk. Von um lausn dvínar Vonir lýðræðissinna í Mjanmar um að leiðtogi þeirra, Aung San Suu Kyi, verði látin laus fyr- ir 17. maí eins og fyrirhugað var fara dvínandi. Til stóð að halda fund um málið á fimmtudag en nú kveðast stjórnvöld vera of upptekin og fund- inum verði frestað. Skammt er síðan tveir fé- lagar Suu Kyi voru látnir lausir úr stofufangelsi en þeir höfðu ásamt henni set- ið í árslöngu varðhaldi. Ráðstefna um nýja stjórn- arskrá landsins fer fram í maí og óvíst er hvort þessi mikla baráttukona verður laus úr prísundinni þá. Ekkert góð- verk í ár Af fjárhagsástæðum verður ekki efnt til söfnun- ar í Sjónvarpinu árið 2004, en Útvarpsráð lýsir vilja sínum tii sam- starfs við Hjálpar- starf kirkjunnar og Rauða krossinn að ári. Þetta kemur fram í fundargerð ráðsins frá 23. mars síðastliðnum. Á fundinum var lagt fram bréf til formanns Útvarpsráðs frá Hjálpar- starfi kirkjunnar og Rauða krossinum með hugmynd- um um samstarf vegna sjónvarpssöfnunar. Einnig var lagt fram tölvubréf frá framkvæmdastjóra Blindra- félagsins til framkvæmda- stjóra Sjónvarpsins þar sem fram kemur að Blindra- félagið hefur ákveðið að sækjast ekki eftir samstarfi um söfnun á þessu ári. Ný fjölmiðlakönnun Gallups sýnir svo ekki verður um villst að DV er hlutfallslega í mestri sókn allra Qölmiðla á íslandi. Ríkisútvarpið stendur í stað, Stöð 2 og Skjár einn dala ásamt Popptíví. Fréttablaðið og Morgunblaðið dala einnig lítillega frá síð- ustu könnun. Samkvæmt nýrri könnun Gallups, sem gerð var í mars, er meðal- lestur á tölublað DV 20,5% en var í síðustu könnun 17,1%. Er þetta hækkun upp á 3,4% sem er hlutfallslega meira en nokkur annar miðill hækkar í könnuninni og merkir að yfír 45 þúsund manns á aldrinum 12-80 ára lesi DV á degi hverjum. Lestur á Fréttablaðinu og Morgunblaðinu dregst lítið eitt saman en Fréttablaðið átti íslandsmet í síðustu könnun. Þá lásu 69,4% Fréttablaðið en 56,3% Morgunblaðið. í nýju könnuninni lesa 66,3% Fréttablaðið en 53,4% Morgunblaðið. DV bætir mestu við sig í yngri aldurshópunum og hefur til að mynda næstum því náð Morgun- blaðinu í lestri fólks á aldrinum 25- 29 ára á landinu öllu. 28% þeirra lesa DV en 29% Morgunblaðið. í aldurshópnum 25-40 ára á landinu öllu lásu 22% DV að meðaltali en það er aukning um 6% frá síðustu könnun. Ef bara er tekið tillit til lesturs aldurshópsins 25-40 ára á höfuðborgarsvæðinu lesa 26% DV að meðaltali, sem er aukning upp á 10%. Lestur Morgun- blaðsins í Yfír 45 þúsund manns lesa DV á degi hverj- um. þessum aldurshópi á landinu öllu er 49%. „Þetta er í samræmi við vænt- ingar okkar," segir Mikael Torfason, ritstjóri DV, um niðurstöðu könn- unarinnar. „Við stefnum að því að bæta okkur í hverri könnun og höfum þegar þrefaldað lausasölu blaðsins og á hverjum degi eru að bætast við 70-100 áskrif- endur. Það er líka for- að sjá hversu ungt fólk virðist opn- ara fyrir nýjungum en eldri aldurshóp- arnir." Sjónvarp Þegar skoðaðar eru tölur um upp- Ásökunum þriggja kvenna í blaðinu í gær vísað á bug Hefur búið í friði í 16 ár Pizzubíl stolið og ekið til Hólmavíkur Síðdegis á föstudag var út- keyrslubifreið Pizza 67 á ísafirði stolið, þar sem hún stóð mann- laus við veitingastaðinn. Bifreið- in, sem er af gerðinni MMC Lancer árgerðl990, er rauð að lit, en með hvítu hægra fram- bretti. Bifreiðin fannst í fyrrinótt við hús eitt á Hólmavík. Þannig má ljóst vera að bifreiðinni hafi verið ekið frá fsafirði til Hólma- víkur, líklega seinni part föstu- dagsins eða um kvöldið. Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni á fsafirði en einnig nýtur hún aðstoðar lögreglunnar á Hólma- vík við þetta mál. Lögreglan ósk- ar eftir upplýsingum frá þeim sem hugsanlega hafa séð til ferða umræddrar bifreiðar á leiðinni frá ísafirði til Hólmavík- ur. Skáningarnúmer bifreiðar- innar er NE-213. Spaugstofan Spaugstofan heldur áfram yfirburðastöðu sinni. safnað áhorf yfir vikuna hjá sjón- varpsstöðvunum 'ý kemur í ljós að 'ý Sjónvarpið heldur ^ sínu striki frá fyrri ^ könnun með tæp- ' lega 94% áhorf. j Hins vegar dala allar j aðrar sjónvarps- < stöðvar nokkuð frá könnuninni í febrú- ar. Stöð 2 og Skjár 1 eru með svipað áhorf nú, í kringum rúm 70%, en voru með 74- 75% í síðustu könn- un. Sýn og Popp tíví tapa einnig lítillega áhorfendum á milli þessara tveggja kannana. UlWlaBfKSkðr Mrin Sjonvarpsstjornurnar Þegar litið er á ein- staka þætti kemur í ljós að Spaugstofan heldur enn Fyrsta forsíða DV Undir nýrri ritstjórn, I eigu nýrra aðila, hefur DVsótt rækilega I sig veðrið og i hverri könn- un sem gerð hefur ver- ið frá þvi nýir eigendur tóku við hefur lestur á blaðinu aukist verulega. yfirburðastöðu sem vinsælasti þátturinn með tæplega 58% áhorf en hefur þó dalað aðeins frá fýrri könnun er áhorfið nam 63%. Gísli Mart- einn er áfram í öðru sæti en hann vinnur verulega á, er með 52% á móti 42% í síðustu könnun. í þriðja sæti kom svo Gettu betur með 44%. Vinsælasti þátturinn á Stöð 2 var Sjálfstætt fólk með 22,6% áhorf en næst þar á eftir kom American Idol með 22% og fréttir með 21%. í síð- ustu könnun var Svínasúpan vin- sælasti þáttur Stöðvar 2 með tæp 27%. Á Skjá 1 var Innlit/Útlit vinsælasti þátturinn með tæp 28% en næst kom Survivor með tæp 21%. „Mér finnst að rétt eigi að vera rétt og því get ég ekki orða bundist yfir frétt í DV í gær þar sem vegið er að Jónínu Guðrúnu Sigurðardóttur og hennar bömum," segir Kolbrún Sig- urðardóttir, íbúi að Aðallandi 16, en í blaðinu í gær var greint frá bréfi frá þremur íbúum hússins þar sem kvartað er yfir ofriki Jóm'nu. Kolbrún segist hafa búið í Aðal- landinu í átján ár og Jónína í fimm- tán eða sextán ár. Börn þeirra hafi leikið sér saman frá því þau voru lítil og séu bestu vinir enn í dag. „Mér sárnaði að lesa þetta því þetta er tómt kjaftæði. Öll þessi ár hefur aldrei verið vandamál í kringum Jónínu og ég vísa þessum ummælum Aðalland 8 Þrjár konur kvörtuðu yfirmeintu ofrikiJóninu Sigurðardóttur til Féiagsbústaða. Ekki var tiigreint i hverju það ofriki fælist. kvennanna beint til föðurhúsanna. Jóm'na er prýðismanneskja," segir Kolbrún, sem fullyrðir að börn Jónínu séu góðir krakkar. Hún segist ekki þekkja þessar konur sem kvört- uðu til Félagsbústaða, utan að henni sé kunnugt um að þær búi í húsinu. Sigurður Friðriksson hjá Félags- bústöðum segir að kvartanir kvenn- anna hafi verið kannaðar og brugðist verði við í samræmi við þá niður- stöðu. Hann var ekki tilbúinn að upplýsa hvað hefði komið út úr þeirri könnun en tók skýrt fram að Félagsbústaðir hefðu ekki neitt yfir Jóm'nu að kvarta og hefði aldrei borist kvörtun vegna hennar öll þau ár sem hún hafi búið í húsinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.