Bræðrabandið - 01.08.1978, Side 11

Bræðrabandið - 01.08.1978, Side 11
REIÐI» HVER ÞARF A HENNI AÐ HALDA? MARIOIM JONES Er reióigirni réttlætanleg viðbrögð kristinna manna? Er reiði stundum réttlætanleg? Reiði er kröftug,nær ómótstæðileg tilfinning sem tjáir vanþóknun, vana- lega andstöðu sem beint er gegn ein- hverjum eða einhverju. Er fólk hjálparvana þegar kemur til þess að stjórna reiði sinni? Er það mögulegt fyrir fólk að sigra reiði sína? Ég trúi því að það sé ekki að- eins mögulegt heldur einnig nauðsyn- legt. Hugsaðu um viðburð í lífi þínu sem gerðist nýlega og kom þér úr jafnvægi og vakti reiði hjá þér. Ef til vill skaust einhver framhjá þér í biðröð, dró í efa vald þitt, skemmdi dýrmætar eigur þínar eða sóaði tíma þínum. Taktu eftir því þegar þú minnist at- burðarins að það var eigingirni sem réði athöfnum þínum. Ef eigingirni þín hefði verið minni hefðu viðbrögð þín verið mildari. Reiðigjarnt fólk borgar í sömu mynt af því að þeim finnst hafa verið ráðist á sig persónulega. Það er fljótt til þess að dæma um ákveðinn atburð hvort hann er þeim til gagns eða skemmir fyrir þeim og afstaða þeirra til viðkomandi manna er í samræmi við það. Ef það hefur verið sært láta þau laun fylgja sem hæfa glæpnum. Þau láta sér jafnvel detta morð í hug og hafa jafnvel morðhótun í frammi. Marion Jones er móðir þriggja barna en er jafnframt starfandi læknir við endurhæfingasjúkrahús í Reading í Pennsylvaniu i Bandarikjunum. Maður hennar er einnig læknir. Grein úr Review ll.maí 1978. 11

x

Bræðrabandið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.