Freyr

Árgangur

Freyr - 01.12.1998, Blaðsíða 12

Freyr - 01.12.1998, Blaðsíða 12
Huga þarf vel að lokaeldinu! Nú er ákaflega misjafnt hvað þarf að gefa mikið kjamfóður til þess að ná falli í UN IA sem er hæsti verðflokkur nautakjöts, en eins og áður er getið fer það fyrst og fremst eftir tegundum eldisgripa og heygæðum. Ef við gefum okkur að gripurinn hafí fengið 20% af grunnfóðurþörfum sinum sem kjamfóður sem kostar 30 kr/FE og fóðureiningin í heyinu kostar 13,10 kr., samanber töflu 1, þá lítur dæmið svona út; Grunnfóðurkostnaður = 30 x 0,2 + 13,10 x 0,8 = 16,48 kr/FE Miðað við uppgefnar forsendur hefði þetta grunnfóðurverð skilað um 21.000 kr. framlegð með Galloway blendings nautum, um 17.000 kr. með íslenskum nautum og um 6.000 kr. með íslenskum uxum. Hér hefur kjarnfóðrið veruleg áhrif til hækkunar á grunnfóðurkostnaðinn. Það sem við erum fyrst og fremst að ná með kjarnfóðurgjöfinni er meiri orka til þess að ná ásættanlegri fituhulu fyrir slátrun. Venjulegar kjarnfóðurblöndur eru því óþarflega fínar og dýrar i þessum tilgangi og t.d. maísmulningur eða valsað bygg kemur að jafngóðum notum. Ef stefnt er að því að framleiða föll í hæsta verðflokki er lokaeldi nauðsynlegt í flestum tilvikum en það er það skeið kallað sem setur gripina í ásættanlegt form fyrir slátrun. Með kjamfóðurgjöf er fóðurstyrkurinn aukinn, vaxtar- hraðinn eykst og holdfylling og fítuhula eykst en heyátið minnkar. Framlegð eldisins veltur oft á því hvemig til tekst með lokaeldið. Því miður hafa engar skipulagðar tilraunir verið gerðar með mis- munandi lokaeldi á Islandi en stefnt er að það verði næsta kjötverkefnið í Möðruvallar- Qósinu. Bændur, margir hverjir, hafa verið að prófa sig áfram og reynsla þeirra og okkar á Möðru- völlum bendir til þess að rúm ein til ein og hálf fóðureining i kjarnfóðri að meðaltali í 2 - 3 mánuði dugi til þess að koma M (magur flokkur) nautum í A flokk. Grunnfóðurverðið og tegund slátur- gripa ræður réttri sláturstærð! Rétt sláturstærð er þegar eldis- gripurinn gefur mestu fram- legðina til bóndans. Þeir þættir sem þar hafa mest áhrif eru dregnir upp á myndum 4 og 5. Grunnforsendur eru hins vegar sýndar í töflu 3. Það sem fyrst og fremst ræður réttri sláturstærð er grunnfóðurverðið. Þvi dýrara sem það er því skynsamlegra er að slátra léttari gripum sem eru enn í góðum vexti. Það er þó regin munur á milli uxa (mynd 4) og ógeltra nauta (mynd 5). Þannig fer aukin sláturstærð ekki að hafa neikvæð áhrif á framlegðina fyrr en grunnfóðurverðið fer yfír 22 - 23 kr/FE hjá nautunum, en hjá uxunum strax við 12 -13 kr. Það er þvi sennilegt að rétt sláturstærð uxa sé talsvert minni en hjá nautunum. Á tímum þegar erfítt er að fá nautgripaslátrun getur verið mjög dýrt fyrir bóndann að fá ekki slátrun á kjörtíma, sérstaklega hjá uxunum þar sem framlegðin getur auðveldlega orðið neikvæð. Góður aðbúnaður er ein forsenda ásættanlegrar afkomu! Að lokum vil ég koma að atriði sem margir bændur virðast ekki hugleiða en getur skipt sköpum um arðsemi eldisins, en, það er aðbúnaður gripanna. Ég hef Tafla 3. Grunnforsendur sem notaðar eru til þess að bera saman áhrif sláturþunga hjá íslenskum nautum og uxum á framlegð nautakjötseldis. Byggt á uxa- og nautatilraunum á Möðruvöllum 1991 - 1996. íslensk naut íslenskir uxar Meðal lífþungi við slátrun: 355 kg 404 kg 457 kg 353 kg 398 kg 448 kg Kálfur, kr 3.000 3.000 3.000 3.000 3.000 3.000 Mjólk , 300 1 @ 30 kr 9.000 9.000 9.000 9.000 9.000 9.000 Fallþungi, kg 169 194 222 157 182 211 Fóðurþarfir, FE 1.409 1.765 2.125 1.685 2.189 2.962 Nýtingastuðull fóðurs* 0,94 0,94 0,94 0,94 0,94 0,94 FE/kg fall 8,9 9,7 10,2 11,4 12,8 14,9 Aldur sláturgrips, dagar 418 485 540 487 595 721 Skilaverð til bónda, kr/kg 310 310 310 310 310 310 * Byggt á útreikningi á fóðumýtingu Möðruvallarbúsins. 12- FREYR 14/98

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.