Freyr

Árgangur

Freyr - 01.12.1998, Blaðsíða 23

Freyr - 01.12.1998, Blaðsíða 23
Skessa 161 í Vestri-Reyni með 82 stig í útlitsmati. Dóttir Ketils 90819. Yrja 514 á Hvanneyri meö 84 stig í útlitsmati. Dóttir Forseta 90016. framleiðslu eru þar víða minni en í mörgum öðrum héruðum þannig að hugsanlegt er að þessi þróun sé ekki stöðvuð enn. Einnig er ástæða til að benda á að þróun til aukinna afurða hjá kúnum á allra síðustu árum hefur verið öllu hægari á Vesturlandi og Vestfjörðum, ef Snæfellsnes er undanskilið, en viða um land. Kjósarsýsla Óvíða á landinu hefur samdráttur í mjólkurframleiðslu verið hlut- fallslega jafn ör á síðustu árum og þegar við bætist verulega minni þátttaka bænda á þessu svæði í skýrsluhaldi en gerist á öðrum svæðum verður umfang skoðunar á svæðinu lítið. Samtals voru skoð- aðar 25 kýr á sex búum. Eins og fýrir fjórum árum vöktu kýmar á Neðra-Hálsi mesta athygli og fór Terta 292, sem stóð efst kúnna í félaginu fýrir fjórum árum, þar enn ffemst í flokki. Á Neðra- Hálsi er lífræn mjólkurffamleiðsla og hefur Kristján bóndi þar verið í hópi forgöngumanna þeirrar ný- breytni í íslenskum landbúnaði, en þessir ffamleiðsluhættir eru ótvírætt einn af sóknarmöguleikunum fýrir íslenskan landbúnað á markaðnum. Borgarfjarðarsýsla Skoðun fór ffam á 39 búum í Eik 31 í Deildartungu með 86 stig i útlitsmati. Dóttir Þráðar 86013. héraðinu og voru skoðaðar samtals 229 kýr. Af þessum kúm voru 46 sem fengu nautsmæðradóm. Nf Suður-Borgarfjarðar. Samtals voru í þessu félagi skoðaðar 72 kýr á 14búum. Afþessumkúm voru 12 með nautsmæðradóm. Hæsta heildardóm kúnna hlaut Skessa 161 á Vestri-Reyni sem er feikilega afurðasöm og um leið falleg kýr. Þessi kýr er undan heimanauti þar sem hét Ketill 90819 en sex dætur hans á þessu búi fengu I. verðlauna viðurkenningu og því ljóst að þar hefur farið ágætisgripur. Þær mæðgur á Eystra-Miðfelli, Fönn 252 og Rjúpa 275, eru báðar fallegar kýr, sérstaklega Rjúpa, en synir þeirra hafa nýverið verið í notkun ffá Nautastöðinni, Mjaldur 95021 og Hvítingur 96032, en báðir voru þeir líkt og mæður þeirra grönóttir að lit og munu því leiða til mikillar hlutfallslegrar aukningar á gripum með þeim lit í kúastofni í landinu á næstu árum. Baula 271 á sama búi er einnig mikil og öflug kýr, en hún er móðir Randa 96031. Kýrnar í Eystri-Leirárgörðum vöktu margar athygli sem feikilega glæsilegar og vel gerðar kýr og tvær þeirra fengu 87 stig í útlitsmati. Það voru Dumba 116, sem er dóttir Þráðar 86013, og Tjara 162, sem er dóttir Bassa Krossa 86 í Hœgindi fékk 86 stig i útlitmati. Faðir Svelgur 88001. Rauðhuppa 34 íNýjabœ með 83 stig í útlitsmatL Dóttir Hróks 83033. 86021, báðar eins og þessar tölur segja til um fádæma glæsilegar kýr. Á sama búi var einnig Ögn 137, sem er dóttir Belgs 84036, en hún ber tæpast réttnefni þar sem hún mældist með mest brjósummál allra kúa eða 206 cm en er auk þess glæsigripur með 86 stig í útlitsmati. Nf. Andakílshrepps. Skoðaðar voru kýr á sjö búum, samtals 50 kýr, sem eru talsvert fleiri kýr en fýrir fjórum árum. Eins og oft var þama margt athyglisverðra kúa og vom tíu þeirra með nautsmæðradóm. Efsta sæti skipaði Perla 1 í Nýjabæ sem einnig vakti verð- skuldaða athygli fýrir fjórum árum en hún er ein fjölmargra getumikilla dætra Tvists 81026 og af mjög öflugu móðurkyni eins og rakið er í skrifum um sýningar fýrir fjórum árum. Henni fylgdi fast eftir dóttir hennar Rauðhuppa 34 sem er dóttir Hróks 83033. Hún er eins og móðir hennar getumikil kýr og falleg. í Hvanneyrarfjósi vakti eins og fyrir fjórum ámm mesta athygli Verja 451 en Yrja 514 er einnig mjög sterkbyggð kýr en hún er dóttir Forseta 90016. Sonur Verju, Fróði 96028, var nýverið í notkun á Nautastöðinni. Á Heggsstöðum var skoðaður stór hópur af athyglisverðum kúm, en þar stóð ffemst Sóley 13 dóttir Alma 98 á Mel með 86 stg i útlits- mati. Faóir hennar erÁlmur 76003. FREYR 14/98 - 23

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.