Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.05.2004, Qupperneq 46

Freyr - 01.05.2004, Qupperneq 46
Reynsla bænda af láglendis- beit sauðfjár og sumarslátr- un. Niðurstöður könnunar Inngangur Hefð er fyrir því að beita sauðfé á hálendi yfir sumartímann á Is- landi hvort sem það er á afréttum eða hálendum heimalöndum. Sumar jarðir landsins eru þannig í sveit settar að þær eru mjög lág- lendar og hafa ekki rétt til þess að reka fé á afrétt. Þar er fénu beitt á láglendið sem einkennist oft af mýrlendi. Einnig gerist það al- gengara að bændur, sem eiga stórt land heima við, halda hluta af fé sínu heima til að nýta landið og sleppa við kostnað og fyrirhöfn við að flytja fé á afrétt, sérstak- lega ef hann er langt frá bænum. Láglendisbeitin gefur bændum einnig tækifæri á því að stunda sumarslátrun þar sem auðveldara er að smala fénu hvenær sem er. Markmið þessa verkefnis var að afla upplýsinga hjá bændum sem: a. halda fé sínu í heimahögum á láglendi og slátra á hefðbundn- um tíma. b. stunda sumarslátrun hvort sem þeir eru með láglendis- eða há- lendisbeit. Ahersla var lögð á að afla upp- lýsinga um burðartímann, beitar- skipulagið og hvaða afurðir náð- ust á láglendisbeitinni. Einnig var lyfjagjöfhjá ám og lömbum könn- uð og hugsanlegt álag vegna sníkjudýra. Framkvæmd Tekið var úrtak bænda af Suður- landi, Vesturlandi og Norðvestur- landi sem voru með 100 ær eða fleiri, beittu á láglendi yfír sumar- tímann og slátruðu á hefðbundnum tíma. Þeir bændur, sem vildu vera með, voru heimsóttir og spuming- ar lagðar fyrir þá um beitina og af- urðir búsins. Þátttakendur í þessum hluta könnunarinnar voru alls 24 og skiptust jafnt milli Suðurlands annars vegar og Vestur- og Norð- vesturlands hins vegar. I liinum hlutanum var leitað upplýsinga hjá Bændasamtökum Islands um bændur sem stunduðu sumarslátr- un og var þátttakendafjöldi þar 14 bændur á Vestur- og Norðvestur- landi og 6 á Suðurlandi. Könnunin fór ffam með viðtölum þar sem spurt var staðlaðra spum- inga um vorfóðmn, sumarbeit, af- urðir, heilsufar og á sumarslátrunar- listanum var spurt um tekjur og gjöld vegna sumarslátrunarinnar. Bændur vom sóttir heim og spurðir augliti til auglitis en rætt var í síma við þá sem ekki náðist til heima. Niðurstöður Láglendisbeit Burðartími ánna er hjá meiri- hluta bændanna á hefðbundnum tíma, frá byrjun maí og út maí. Meiri breytileiki var þó í burðar- tímanum á Suðurlandi en á Vest- urlandi. Sunnlenskir bændur í könnuninni era flestir með allt sitt fé í heimahögum (91,7%) vegna þess að þeir hafa ekki aðgang að afrétt. Á Vesturlandi er helming- urinn af bændunum með allt féð heima en hinir em með einn til tvo þriðju hluta fjárins heima við. Vestlendingarnir gefa upp þá eftir Þóreyju Bjarnadóttur, Jóhannes Sveinbjörnsson Emmu Eyþórsdóttur, Landbúnaðar- háskólanum á Hvanneyri, Rannsókna- stofnun land- búnaðarins ástæðu fyrir notkun heimalanda að þeir eigi nóg af þeim. Beitarskipulagið er mjög svipað á öllum bæjunum. Nokkmm dög- um eftir burð fara æmar annað hvort í hólf þar sem þeim er gefið í nokkra daga eða beint út á tún. Á flestum bæjunum em æmar á tún- inu í 3-4 vikur áður en þær fara í úthagann, sunnlensku æmar leng- ur en þær á Vesturlandi. Alls stað- ar er gefíð hey með túnbeitinni eins og æmar vilja. Flestir láta féð á úthagann í byrjun júní og þar er það þangað til smalað er um miðj- an september. Nokkrir bændur á Suðurlandi hafa skipt mýrlendinu upp í nokkur hrossheld hólf þar 146 - Freyr 4/2004

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.