Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.2002, Blaðsíða 16

Freyr - 01.09.2002, Blaðsíða 16
Úr kjötsal sláturhúss SS við Laxá i Leirár- og Melasveit. (Freysmynd). eftirspumina, verðið er eitt, vöm- þróun, framsetning og sölu- mennska annað. En það er ljóst að verðþátturinn er jafnt og þétt að vinna gegn lambakjötinu. Sauðfé er einfaldlega óhagkvæm- ara til kjötframleiðslu en svín og kjúklingar eins og verði koms er háttað. Jafhframt er ljóst að kerf- ið hefur ekki hvatt nægjanlega til hagkvæmni. Beingreiðslan til sauðfjárræktar hefur verið föst upphæð á ærgildi til þeirra sem eiga kvóta. Þeir, sem hafa síðan aukið framleiðsluna, hafa ein- göngu fengið afurðarstöðvaverð- ið fyrir þann hlutann, sem er nán- ast hálft verð. Þessi munur er alltof mikill. Segjum að við séum með mjög hagkvæmt fjárbú sem gæti framleitt ódýrara en aðrir. Það getur þó kannski ekki fram- leitt 50% ódýrara en aðrir. Þama þyrfti beingreiðslan í meira mæli að dreifast á framleiðsluna. Ef það hefði verið, þá hefði fram- leiðslan færst fyrr á hagkvæm- ustu búin. Það þarf hins vegar ekkert að vera að það séu hrein sauðfjárbú, það geta alveg eins verið að meginhluta kúabú. Þama hafa menn auðvitað líka verið fastir í því að verja liðna tíð, sem aftur hefur verið að spilla hag- kvæmni greinarinnar. Þetta er að visu að breytast aðeins með nýja búvömsamningnum. Hefurþetta ekki verið hluti af byggðastefnunni? Jú, jú, en hún endist heldur ekki ef allir em að deyja. Þá er betra að einhverjir hætti og ein- hverjir lifi af. Sölustarfsemin í verslunum? Eftir fall Goða þá em fjögur stór fyrirtæki í kjötiðnaðinum, það er Alí sem er i svínakjötinu, Ferskar kjötvömr sem SS á meirihluta í og það er sérhæft í svínakjöti og nautakjöti. Síðan em það Norðlenska og SS, sem em að markaðssetja kindakjöt. Staðan er sú að þessi tvö síðast- nefndu fyrirtæki eru að selja meira af kindakjöti heldur en þau fá í gegnum eigin sláturhús. Síð- an em þau einnig að vinna með aðrar kjöttegundir. Þegar við hjá SS emm búnir að selja það kindakjöt, sem kemur í gegnum sláturhús okkar, þá stöndum við frammi fyrir því hvort við eigum að fara að kaupa kindakjöt af öðmm sláturleyfis- höfum sem gefur okkur litla framlegð, eða selja meira af nautakjöti og svínakjöti sem fé- lagsmenn okkar hafa lagt inn og finnst við standa okkur illa í að selja. Margir sláturleyfíshafar, aðrir en Norðlenska og SS, eru með veikt sölukerfi og litla eða enga markaðssetningu. Það er heldur ekki raunhæft að fara að fjölga kjötvinnslum á landinu því að þær hafa ekki rekstrargmndvöll. Það er þannig innbyggður þama ákveðinn veikleiki varð- andi kindakjötið. Ég tel þó að þetta hafi ekki skaðað kindakjöts- söluna að ráði, bæði við og Norð- lenska höfum lagt meira á okkur að selja kindakjöt heldur en hefúr verið rekstrarlega skynsamlegt fyrir fyrirtækin. Það er líka óheppilegt, eins og nú er, að fjöldi fjárhagslega mjög veikra aðila er að slátra. Þeir eiga fárra annarra kosta völ til að selja en að fara inn á markaðinn og bjóða niður verð. Það styrkir ekki markaðsstöðu kindakjötsins að margir séu að bjóða fram kjöt. Það er ekki enn komið aftur jafnvægi á þennan markað eftir fall Goða og ég reikna með því að sláturleyfíshöfúm eigi effir að fækka. Raddir hafa heyrst um það að sláturleyfishafar meti gœði kjöts- ins öðruvisi en reglugerð um gœðamat og flokkun kjötsins ger- ir. Það er ekki rétt. Við emm með ákveðið skema sem segir það að ákveðnir holdfyllingarflokkar og fituflokkar fari beint á innan- landsmarkað. Aðrir flokkar eiga | 16-Freyr 8/2002
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.