Þrumuskot

Ataaseq assigiiaat ilaat

Þrumuskot - 01.03.1999, Qupperneq 3

Þrumuskot - 01.03.1999, Qupperneq 3
» 4 VORTILBOÐ Ollum fótboltaskóm í sumar fylgja vandaðir fótboltasokkar ó me&an birgSir endast. y Frammistada á mótum í vetur 6. flokkur: Stelpurnar kepptu á jólamóti Kópavogs. Þær byrjuöu mótið af krafti, unnu Breiðablik 5-1. Síðan gerðu þær eitt jafntefli og töpuðu tveimur leikjum. Þær voru svo ánægðar með fyrsta leikinn sinn að þær lifðu bara á honum restina af mótinu! í 6. flokki er aðalatriðið að vera með og hafa gaman af, úrslitin eru nánast aukaatriði. Allar höfðu gaman af og þá er tilganginum náð. Stelpurnar eru að fara að keppa á Faxaflóamóti núna og þær þjálfast mikið við að keppa á svona mótum. 5. flokkur: Þær kepptu líka á jólamóti Kópavogs og stóðu sig með prýði. Þetta er fjölmennur hópur með mikið af efnilegum stelpum. ( mars fóru þær á Faxaflóamót sem haldið var í Grindavík. Bæði A og B lið kepptu, b-liðið var nánast allt skipað nýjum stelpum. A liðið var hársbreidd frá því að vinna mótið, töpuðu einum leik þar sem andstæðingur skoraði með hendi og allir sáu nema dómarinn. Þetta eina mark eyðilagði allt fyrir þeim, þær hefðu unnið sinn riðil og sennilega hreppt gullið! En svona er nú einu sinni fótbolti. Og það verður bara að taka þvíl! Þetta kemur bara á næsta móti ... 4. flokkur: Þar eru margar góðar fótboltakonur en þar vantar alveg eldra árið inní. Ég auglýsi hér með eftir stelpum fæddum árið 1986! Þær kepptu á jólamóti Kópavogs og gekk það svona ágætlega. Einnig kepptu þær á íslandsmóti, um það er fjallað annars staðar í blaðinu. Stóðu sig mjög vel þar. Þær fóru síðan á Faxaflóamót sem haldið var á Skaganum, hefðu getað betur þar að mínu mati. En jú, þær eru allar á yngra ári svo að næsta vetur ætti að ganga betur. En þær geta þetta vissulega. Þegar þetta er skrifað eru stelpurnar að fara að taka þátt í HSK móti sem haldið verður á Hvolsvelli og hver veit nema við eignumst þar HSK meistara. ... Vonandi! Samantekt: Laufey þjálfari. - ÞRUMUSKOT - 3

x

Þrumuskot

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þrumuskot
https://timarit.is/publication/875

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.