Fylkir - 14.05.1971, Qupperneq 3
F-Hkir
3
VANDALA
Framhald af 1. síðu.
sóknarmenn hér í Eyjum hafa
nú — að sögn — svarað flokks
valdinu í Reykjavík á verð-
ugan hátt, sjálfum sér og
byggðarlaginu til sóma.
Önnur vi'Jhorf.
Karl Guðjónsson, frambjóð
andi Alþýðuflokksins er gam
aireyndur þingmaður og var
hér á árum áður virkur í hags
munabaráttu byggðarlagsins
á Alþingi. En síðan hann
flutti burt og til höfuðborg-
arinnar hefur verið hljóðara
um hann, þar sem málefni
eyjanna hafa borið á góma.
Þetta er skiljanlegt. Þó að sú
taug, sem tengir hvern mann
við uppruna sinn og æsku-
byggð s’itni aldrei að fullu,
þá cr reynslan sú, að á henni
tognar til muna við langar
fjarvistir. Önnur áhugamál,
aðrir hsgsmunir og önnur lífs
viðhorf skjóta upp kollinum.
Karl Guðjónsson er nú
ckki annað en Reykvíkingur,
sem óimur vill sitja á Al-
þingi. Hann vildi 'ekki lengur
búa hér í Eyjum og þóttist
sjá hag sínum og sinna betur
borgið í Stór-Reykjavík. Lát-
u.m Stór-Reykvíkinga um að
gera óskir hans og vonir í
þcssum efnum að veruleika
í framtíðinni.
Niður með
Reykavíkurvaldið.
Því er víða haldið fram, að
þeir scm stutt hafa Fram-
sóknarflokkinn og Alþýðu-
flokkinn hér í bæ að undan-
förnu, hafi nú margir hverj-
ir hugsað sér að sýna forustu
mönnum flokkanna í Reykja-
vík, sð það sé ekki og verði
ckki sigurstranglegt til kjör-
fylgis í Suðurlandskjördæmi,
að ganga framhjá hagsmunum j
og réttmætum óskum Eyja-
manna í sambandi við niður-
röðun á listana. Sé þetta rétt, i
er þess að vænta að margt
þctta fólk hugleiði nú hvaða
aðra ílokka því beri að kjósa,
sem öðruvísi breyta, þannig
að atkvæði þeirra komi byggð
arlaginu og málefnum þess að
sem beztum notum.
Það eru Sjálfstæðismenn og j
Alþýðubandalagið einir
flokka, sem sýna sérstöðu
Vestmannaeyja í kjördæminu
þann skilning, að setja heima-
menn í örugg sæti á fram-
boðslistum við kosningarnar
í vor; Guðlnug Gíslason og
Garðar Sigurðsson.
Ekki skörungur.
Stjórnmálaferill Garðars
Sigurðssonar er ekki langur.
Hann hefur átt sæti í bæjar-
stjórn á annað kjörtímabil
og þótt þar fremur daufur
og afskiptalítill um málefni
byggðarlagsins; hefur venju-
legast verið leiddur áfram af
meirihlutafélögum sínum eins
og svefngengill utan við tíma
og rum.
Spnrning' er hað.
Stuðningsmenn hans telja
hann fyrst og fremst eiga er-
indi í fremstu víglínu stjórn-
málanna vegna einstakrar um
hyggju hans fyrir hagsmun- I
um vinnandi fólks og einkum
sjómanna.
í fyrsta lagi er ekki vitað
til að Garðar Sigurðsson hafi
nokkurntíma tekið þátt í
verkalýðsbaráttu á nokkurn
hátt eða látið sig þau mál
varða svo neinu nemi fyrr eða
síðar. Það er enda ekki venja
Alþýðubandalagsins að hampa
þess háttar fólki um of. Eini
Alþýðubandalagsmaðurinn úr
verkalýðshreyfingunni, sem
nú er i nokkuð öruggu fram-
boði, er Eðvarð Sigurðsson,
formaður Dagsbrúnar.
í öðru lagi hefur Garðar
sjáffur afsannað framboðsaf-
sökun stuðningsmanna sinna
með afstöðu sinni í bæjar-
stjórn, þegar Gísii Eyjólfsson,
sem ekki þarf að kynna, sótti
um léttara starf en hann hef-
i r haft, vegna áfalls á hafi
úti. Þá lét Garðar pólitíska
útsjónarsemi framsóknar-
manna fremur ráða ferð sinni,
en réttmætimál, sem hefði
getað breytt nokkuð ríkjandi
sjónarmiðum til hagsbóta fyr
ir sjómannastéttina alla í
þessum bæ.
Eigin orð.
í þriðja lagi hefur Garðar
Sigurðsson fellt lokadóminn
í þessu máli. Það gerir hann
í grein „Nokkur oi'ð um
kj arab; ~áttuna“ í afmælisbl.
Vcrkalýðsfélags Vestmanna-
eyja 1969. Þar segir: „Fyrir-
svarsmenn þessa félags hafa
bcðið mér rúm í blaðinu, af
mikilli kurteisi, líklega vegna I
pólitískra afskipta minna að j
undanfcrnu“. Hér er komið
behit að kjarna málsins:
G".rðar Sigurðsson ræðir og
ritar rm verkalýðsmál vegna
pólitískra afskipta sinna, en
ckki pólitík vegna áhuga á
verkalýðsmálum. Hér er
VAL
rc-yndar samankomin í einum
punkti raunasaga verkalýðs-
hreyfingarinnar á íslandi
mörg seinustu ár.
Ilin opinbera forsenda fyrir
framboði og kjöri Garðars
virðist nú fallin frá. Hver er
hin raunverulega? Hverjir
Eyjabúar munu græða á
þingsetu hans fremur en dauð
yflishættinum í bæjarstjórn-
Þekking og velvild.
Sjálfstæðisflokkurinn gefur
Vestmannaeyingum enn á ný
kost á að styðja fram til sig-
urs í kosningunum í vor
Guðlaug Gíslason alþingis-
mann og fyrrverandi bæjar-
stjóra um árabil; þann mann,
sem líklega á manna stærst-
an þátt í því að Vestmanna-
eyjakaupstaður er það, sem
hann er í dag; þann mann
stm aldrei hefur legið á liði
sínu til framdráttar hags-
munamálum byggðarlagsins.
þó að þakklætið hafi stund-
um ekki legið í avgum uppi.
Auk Guðl. Gíslasonar eru á
| lista flokksins þeir menn,
sem þekktir eru fyrir vel-
viija í garð eyjanna. Ber þar
fyrst og fremst að nefna Ing-
ólf Jónsson ráðherra, sem
allir Eyjabúar þekkja að góðu
einu.
Fram skal halda.
Sjálfstæðisflokkurinn bend-
ir á, að næstliðið 12 ára tíma
bil undir stjórnarforustu
sjálfstæðismanna, hefur þrátt
fyrir misjafnt árferði til lands
og sjávar verið eitt blómleg-
asta framfaraskeið í sögu
þjóðarinnar.
Sjálfstæðisflokkurinn veit
og viðurkennir, að enn er við
ýmsa örðugleika að etja.
Margt er enn ógert. En hann
heitir því, að vinna fram
vegis sem hingað til heill og
óskiptur að þeim verkefnum,
sem framundan bíða úrlausn-
ar, með hagsmuni allra stétta
— allra landsmanna að leiðar
ljósi. Hvert það atkvæði, sem
til flokksins fellur í komandi
kosningum, mun auðvelda
honum þetta starf og um leið
færa þjóðina feti nær áfanga
strð í félagslegu, menningar-
legu og efnalegu tilliti.
OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOö
Vestmannaeyingar
Hvers vegna ekki að spara 8 -
33,3 ' á Ijósashillingum og bílavið-
gerðum.
Bílaskemman, Vestmannaeyjum
veitir félagsmönnum F.Í.B. 33,3%
afslátt af Ijósastillingum og 8%
af bílaviðgerðum.
Bílaver Vestmannaeyjum veit-
ir félagsmönnum F.Í.B. 8% af-
slátt af bílaviðgerðum.
Umboðsskrifstofa vor er í Dríf-
anda 4. hæð.
Félag íslenzkra
bifreiðaeigenda.
Ijálp Hjálp!
Mig vant-ar herbergi strax,
Siggi Vídó,
sími 1361.
Flugfíldjiið hðupi
oird þotu.
Þann 3. maí s. 1. voru und-
irritaðir samningar milli Flug
félags íslands og Grant Ava-
tion Leasing Corporation,
Pennsylvania í Bandaríkjun-
um, um kaup Flugfélags Is-
lands á þotu af gerðinni
Boeing 727 -400 C. Hin nýja
þota er af sömu gerð og hef-
ir sama útbúnað og „Gull-
faxi”, sem Flugfélagið á fyrir.
Nýja þotan er væntanleg til
íslands laust eftir miðjan
þennan mánuð.
Boeing 727 þotan, sem Flug
félagið hefir fest kaup á hef-
ir sæti fyrir 119 farþega. Hún
er búin stórum vörudyrum,
sem gerir flutninga á þar til
gerðum vörupöllum eða í
geymum (containers) mögu-
lega. Hún er knúin þrem for
þjöppuhreyflum, sem hafa 16
þúsund hestafla orku saman-
lagt. Flughi'aði er um 960km
í 10 þús. km. hæð. Flugþol
þotunar með fulla hleðslu
svarar til vegalengdarinnar
milli íslands og Washington
D.C. Nú er unnið að smá-
vægilegum breytingum á þot-
unni, svo og málun í litum
Flugfélagsins. Einnig fer fram
gagngerð skoðun áður en af-
hending fer fram.
Hin nýja þota, sem Flug-
félag íslands hefir nú keypt,
var afgreidd frá Boeing verk-
smiðjunum í febrúar 1968 og
er því átta mánuðum yngri
en þotan, sem Flugfélagið
á fyrir. Henni hefir verið
flogið í rúmlega 6 þúsund
klukkustundir. Til samanburð
ar má geta þess, að „Gullfaxi"
hefir flogið tæplega í 9000
klst.. Kaupverð hinnar nýju
þotu er mjög hagstætt, kr.
255 millj. Þar af greiðir
Flugfélag íslands 15%
við móttöku og eftirstöðvar á
sjö árum. Innifalið í kaup-
verði er nokkurt magn vara-
hluta. Ekki er um ríkisábyrgð
eða bankaábyrgð að ræða í
sambandi við þessi kaup, en
seljandi telzt skilyrtur eig-
andi þar til samningsákvæð-
um hefir verið fullnægt.
Þotan verður afhent Flug-
félagi ísland í Dallas, Texas
um eða uppúr 15 maí. Hún
er væntanleg til íslands
nokkrum dögum síðar.
JÓN HJALTASON
Hæstarétarlögmaður
5krifstofa: DRÍFANDA við
'árugötu. Viðtalstími: kl. 4,30
— 6 virka daga nema laug-
ardaga kl. 11-12 f. h