Fylkir - 08.10.1977, Síða 2
fylkir
Ritstj. og ábm.:
Björn Guðmundsson.
Pósthólf 116. — Vm.
Afgr. og augl.:
Símar: 1344 og 1129.
Utgefandi: Sjálfstæðisfélögin í Vestmannaeyjum.
Prentun: Prentsmiðjan Eyrún hf.
Qlöfnin
Allir vita að höfnin er lífæð þessa bæjarfélags. Um
það þarf ekki að eyða fleiri orðum. Hitt væri ef til vili
orð í tíma töluð, ef vikið væri fáum orðum að því hvernig
ástand hafnarinnar er í dag og gera sér grein fyrir stöð-
unni.
Eftir náttúruhamfarirnar 1973 má segja að höfnin
sem slík hafi batnað að miklum mun, það er, að þegar í
höfnina er komið er hún kyrr og lygn, hin aldagamla
barátta við brim, sjávarsog og ókyrrð er nánast úr sög-
unni. Skip og bátar eru virkilega í vari. Hitt er svo, að
þegar að inn í höfnina sjálfa er komið vantar mikið á
að eðlileg þjónusta við skip og sæfarendur séu fyrir hendi.
Hefur átt sér stað sorglegur séinagangur og stundum
jafnvel tómlæti og skilningsleysi á þörfum þeirra er
um hafnarsvæðið fara og þýðing hafnarinnar fyrir mann-
og atvinnulíf bæjarfélagsins. Má margt týna til þessu til
áréttingar, seint hefur gengið með malbikun hafnarsvæð-
isins, aðstaða til að fá rafmagn úr landi til skipa er í
lágmarki, viðgerð á skemmdum á hafnarmannvirkjum
er ekki sinnt, og svo ■ mætti lengi telja, en eitt er þó
eftir og ef til vill það alvarlegasta og það er að dýpkun
hafnarinnar hefur ekki verið sinnt sem skyldi. Höfnin
virðist alltaf vera að grynnka og a.m.k., hvað varðar
stærri fiskiskip, vart skipgeng.
Nú veit ég að einhverjir segja að ekki sé hægt að
gera allt í einu, hægar sé um að tala en í að komast og
fjárs sé vant. Allt kann þetta að vera satt, en þá má
benda á sumar framkvæmdir geta ekki beðið og menn
hafa blátt áfram ekki efni á að láta þær dragast á lang-
inn. Svo er með dýpkun hafnarinnar.
Hvað þetta er aðkallandi er rétt að vekja athygli á,
að vetrarloðnuvertíðin er framundan. Pessar veiðar
stunda í vetur fleiri og burðarmeiri skip en áður. Mörg
þessara skipa fljóta blátt áfram ekki um höfnina nema
við bestu aðstæður. Okkar stærstu og afkastamestu skip
eiga í erfiðleikum með að athafna sig. Slæmt er til þess
að hugsa ef að stærstu skipin yrðu að sigla framhjá
Eyjum af því að ekki er nóg dýpi innan hafnar.
Hvað hér er í húfi má best marka af því að í ver og
einn loðnufarmur stærri loðnuskipanna gefur þetta frá
1 millj. og upp í allt að 3 millj. í bæinn aðeins í hafnar-
gjöld og vinnulaun, — fyrir nú utan allt hitt. Og ef að við
nú stöndurp frammi fyrir því að þessi verðmæti fljóti
fram hjá okkur af því að dýpi skortir innan hafnar þá
er sannarlega kominn tími til þess að hefjast handa
með skjótari og betri vinnubrögðum en hingað til hafa
viðgengist.
Björn Guðmundsson.
8886868888868888888888888688888888888888888886***88888888*****»!»******»
* *
* 86
* 86
1 |
1 TÓNUSTABSKÓUNN 1
* 86
* *
98 98
Innritað verður í Arnardrangi, mánudag og |
| þriojudag, 10. og 11. okt. n.k. frá kl. 16 — 18. |
98 98
* Skólastjóri, |
SS (v
98 «
* *
* *
æ****ææææ»»»**»»»****»*»**************»»***»
FASTEIGNA*
MARKAÐURINN
Nýr sölulisti vikulega.
SkrUitah Vm.: Bárnc. *, 2. heð
ViðUlstíml: U.30—19, miðvlkud.
—<8stadi(s. Sfmt ÍMT.
Skrltitofa Rvík: Guðwtrcti 1S.
VlðUlstiml: Mánodaca Of þrlðjo.
dao. — Simt UMI.
JÓN HJALTASON, hrl.
FRÁ BOKASAFNI
ORÐSENDING
Til áhugafólks um bindindis-
mál.
Sunna sem er bindindisfélag
fyrir fullorðna og Eyjarós sem
starfar fyrir börn, óskar eft.ir
fólki til aðstoðar við vetrar-
starfið. Fundartími er á mánu-
dögum kl. 8 e.h. fyrir fullorðna
og barnastarfið á laugardögurn
kl. 5 e.h.
Upplýsingar í síma 1167.
K.F.U.M
FUNDIR 0G
SAMKOMUR
Vegna fyrirspurna um opn-
un safnsins er þess að geta, að
afgreiðslu hillubúnaðar o.fl.
hefur seinkað mjög, en er loks
væntanlegur eftir um það bil
hálfan mánuð. Pá er ýmiskon-
ar frágangi í húsinu ekki lok-
ið. Bókasafnið verður opnað
þegar. aðstaða leyfir, og þá aug-
lýst m.a. í bæjarblöðunum.
Drengir yngri — Mánud. 17.30.
Drengir eldri — Fimt.d. 20.00
Saumaf. yngri — Fimt.d. 17.30
Saumaf. eldri — Mánud. 19.30
★
Almennar samkomur kl. 20.30
á föstudaginn, Krist,niboðssam-
koma á laugardaginn og vakn-
ingarsamkomur á sunnudag.
Allir velkomnir.
VÉLA — TENGI mm
i-L
Sta1!««y]<g(mr tíSxroæsfflini & ©ffl «ívkj*v,k.ichand
VESTUSGOTU 16 - SÍMAR 14660 - 21480 - POB 605-TEiEX, 2057 STURIA IS
TENGIÐ ALDREI
STÁL
í
STÁL
*
*
*
*
*
*
*
*
»
*
Qrt QO Qrt QO QP
TiflðilniTiiTimrai
EYVERJAR
Aðalfundur Eyverja fyrir árið 1977 verður hald
inn 26.o kt. n.k. Verður hann nánar auglýstur
síðar.
FRAMBOÐ TIL TRÚNAÐARSTARFA, skv. 8.
gr. Félagstala ska! skilað í Pósthólf 166, Vm,
merkt „AÐALFUNDUR”, fyrir 15. okt. n.k.
Stjórn Eyverja.
86»**********»*»»*»**í*****æææææ *