Nýi tíminn - 16.03.1950, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 16. marz 1950 NÝI TÍMINN 7
THtaga frá Finnboga Hríti Vaidimarssgni
p'- •
Trygglngastofnun ríkisins setji upp
Yinnuheimili handa öryrkjum
Finnbogi Rútur Valdimarsson ílytur á Alþingi
tillögur um, að Tryggingastofnun ríkisins skuli leit-
ast við að útvega öllum öryrkjum atvinnu við þeirra
hæfi, ennfremur að stofnuninni heimilist að setja
upp verkstæði, vinnustofnanir eða hæli, þar sem
cryrkjar vinni við þau störf er þeim hentar. — Til-
lagan er flutt sem viðaukatillaga við almanna-
tryggingafrumvarp það er nú liggur fyrir Alþingi.
' Tillaga Finnboga hljóðar
svo:
„Tryggingastofnun ríkisins
skal skrá öryrkja á aldrinum
16—66 ára og leitast við að
útvega 'þeim atvinnu við þeirra
hæfi, svo að starfskraftar
þeirra geti komið þeim sjálf-
um og þjóðfélaginu að sem
mestu gagni.
Á öryrkjaskrá skal taka
hvem þann, sem vegna afleið-
inga slysa, sjúklegs ástands
,Æða fötlunar á mjög erfitt með
að fá eða stunda vinnu, sem
ella mundi hæfa honum, enn
fremur gamalt fólk, þótt ekki
séu öryrkjar, sé það atvinnu-
laust og óski skráningar. Hver
sá, sem óskar fyrirgreiðslu
stofnunarinnar, skal senda um
það umsókn, með þeim upp-
lýsingum og skilríkjum, sem
hún ákveður.
Tryggingastofnunin skal
leita samninga við félagsskap
atvinnurekenda um, að þeir
láti öryrkja sitja fyrir störfum,
sem sérstaklega eru talin við
þeirra hæfi að dómi sérfróðra
manna. Getur Tryggingastofn-
unin ákveðið, að öryrkjar skuli
ganga fyrir um ráðningu í þau
störf.
Geti Tryggingastofnunin
ekki miðlað þeim, sem þess
BILL COHEN
Framhald af 5. síðu.
Reykvíkingar munu hinsveg-
ar minnast þess, að Kani af
Keflavíkurflugvelli söng eitt
sinn á kabarett i Holstein. Þeg-
ar á kvöldið leið gercist hann
drukkinn og vildi endilega
syngja hvert einasta lag með
hljómsveitinni, en söngurinn
var ekki fagur og þoldu hlustir
samkomugesta hann ekki til
lengdar, svo að manninum sem
mun hafa heitið Cohen, var
kastaö út. Er ekki nema jafn-
gott á húsráðendur Holstein að
þeir séu kallaðir rauðliðar fyr-
ir slíka meðferð á „óopinberum
sendiherra" herraþjóðarinnar.
Vonandi berst þó þessi saga
ekki vestur um haf, því að það
gæti spillt fyrir því að Bill
Cohen fái, ef ekki Congressional
Medal of Honor þá að minnsta
koieti.Purple Heart fyrir hetju-
legá framgongu í baráttunni
við þann erkióvin vestrænnar
siðmenningar, útkastarann í
Holetein......v*,-.
óska, vinnu við þeirra hæfi
með þessum hætti, en þeir gætu
með þjálfun eða lærdómi orðið
færir um að taka að sér vinnu,
getur hún haldiö námskeið til
þess að þjálfa þá til sérstakra
starfa, eða samið við aðra að-
ila, að þeir annist það.
Styrkir til náms og lán
til vinnuvélakaupa.
Tryggingastofnuninni er
heimilt að setja upp verkstæði,
vinnustofnanir eða hæli, þar
sem öryrkjar vinni við þau
storf, er þeim henta, eða semja
við félagsskap um rekstur
slíkra stofnana, enda verði öll-
um ágóða, sem verða kann á
starfseminni, varið til hagsbóta
fyrir öryrkja og starfsemin
öll háð reglum, ssem Trygg-
ingastofnunin og ráðherra geta
fallizt á.
Ráðherra getur veitt Trygg-
ingastofnun ríkisins eða félags
skap, sem rekur vinnustofnun
eða hæli með samningum við
hana, einkarétt til framleiðslu
ákveðinna vörutegunda.
Öryrkjar, sem sveitarfélög
óska upptöku fyrir á slíkar
vinnustofur eða vinnuhæli,
skulu ganga fyrir öðrum, enda
greiði þau sveitarfélög gjald
fyrir hvern öryrkja eftir regl-
um sem Tryggingastofnunin
setur með samþykki ráðherra
Tryggingastofnuninni er
heimilt að veita öryrkjum
hjálp til þess að byrja sjálf-
stæða vinnu með því að styrkja
þá til námS', bóklegs og verk-
legs, og veita þeim styrk eða
lán til þess að kaupa vinnu-
vélar.“
Fleiri breytingartillögur
Finuboga.
Finnbogi flytur fleiri breyt-
ingartillögur við frumvarpið
þ. á. m. þessar:
„Við 9. gr. Á eftir grein-
inni komi ný gr., svohljóðandi:
Þegar Tryggingastofnunin
greiðir bárnalífeyri samikv. 1.
málsgr. 127. gr. laganna, á
hún endurkröfurétt á hendur
barnsföður, og fer um inn-
heimtu slíkrar kröfu eftir á-
kvæðum 117 gr. laganna.
Verði vanskil af hálfu föður,
skal innheimta kröfuna hjá
framfærslusveit hans, og telst
fjárhæðin framfær:lustyrkur
veittur honum. Eignast Trygg-
ingastofnunin að ’ öllu leyti
sama rétt á hendur framfærslu
sveit föður og dvalarsveit móð-
ur hefur samkv. framfærslu-
lögum, en um endurkröfurétt
framfærslusveitar á hendur
barnsföður fer samkv. ákvæð
um fi amfærslulaga. Þverskall-
ist framfærslusveit við að
greiða, eignast Tryggingastofn
unin þmm rétt, sem dvalarsveit
móður samkv. i'ramfærslulög-
um til að endurkrefja ríkis1-
sjóð um upphæðina.
Aðrar bætur og styrki, sem
Tryggingastofnuninv á endur-
kröfurétt á, skal innheimta
irieð sama hætti.
Við 13. gr. Við gr. bætist
ný málsgr., svo hljóðandi:
Háfi sjúkrasamlag eða sveit-
arstjórn í þjónustu sinni hjúkr
unarkönu eða aðsstoðarstúlk-
ur til þess áð veita hjúkrun eða
aðstoð á heimilum í veikind-
um, er Tryggingastofnuninni
heimilt að taka þátt í kostnaði
við þau störf eftir samkomu-
lagi við viðkomandi aðila.
V erkst jóranám-
skeið samþykkt í
Neðri deild
Framhald af 2. síðu
fullra 22 ára að aldri, hafi unn-
- ið 12 mánuði eða lengur við
þá starfsgrein, sem hann vill
taka verkstjórapróf í, hafi auk
þess verið flokksstjóri eða að-
stoðarverkstjóri í sömu starfs-
grein 4 mánuði eða lengur, og
að hann hafi lokið miðskóla-
prófi, eða tilsvarandi inntöku-
prófi.
Verkstjórar, sem lokið hafa
prófi af námskeiðum þessum,
skulu ganga fyrir öðrum um
verkstjóm í hlutaðeigandi
starfsgrein í opinberri vinnu.
Frumvarpið fer nú fyrir efri
deild.
Handbók um trygginga-
mál.
Við 34. gr. Við greinina bæt-
ist ný málsgr.:
Trygginga'tofnun ríkisins
skal eins fljótt og við—verður
komið eftir gildistöku þessara
laga Iáta semja og gefa út
handbók um tryggingamál, er
veiti aðgengilegt yfirlit yfir gild
andi lagaákvæði um almanna-
tryggingar, einkum réttindi og
skyldur hinna tryggðu og ann-
arra aðila, er lögin snerta.“
~~injfrui .rui—u --.r jJhu~nj‘r.r ----n*-- - —|-i-- — — - ~ m ^
JOHANN KRISTOFER
eftir Romain Rolland
II. bindi er komið út
| W»I
JöHAM KRISTOFER er einhver íegursta skáld-
saga sem nokkru sinni hefur verið rifuð. Hún
kom út á frummálinu í tíu hindum á árunum
1905 — 1913, og hlaut höfundurinn Hóhels-
verðlaun fyrir þetta verk. Höfuðpersónan cr tón-
snillingur, og er álitið að Beethoven sé aðalfyrir-
mynd skáldsins. Sagan er borin uppi af trú höf-
undarins á fullkomleik mannsins og sigur hins
góða sem lögmál framþróunarinnar. Hún er sem
heill heimur mannlegrar auðlegðar. fegurðar og
góðvildar.
L BINDI ER bEGAR AÐ VERÐA UPPSELT
BékabifS Kláls og Knenningar
LAUGAVEGI 19 — SlMI 5055