Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.1998, Blaðsíða 21

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.1998, Blaðsíða 21
Orlagasaga Þórður Árnason skrifar í síðasta Frétta- bréf um “karfaveiðar í Rósagarði”. Þar spyrst hann fyrir um móður og dóttur Ögmundar Jóhannessonar, bónda í Einarslóni, síðar á Öndverðarnesi og loks í Görðum í Beruvík. Því miður veit ég nákvæmlega það sama og Þórður um móður Ögmundar og get engu við það bætt. Ekkert get ég heldur frætt hann um Jóhönnu Ögmundsdóttur og afkomendur hennar í Færeyjum og Danmörku. Þá kynnu nú einhverjir að velta því fyrir sér til hvers ég sé að skrifa þetta? Þannig er mál með vexti, að mig langar til að segja örlagasögu af elsta syni Ögmundar, hálfbróður þessarar Jóhönnu. Best er að byrja á Ögmundi. Hann var fæddur 1841, þann 12. apríl og skírður daginn eftir eins og þá var títt. Foreldrar hans voru Jóhannes Guð- mundsson, tómthúsmaður í Björnsbúð í Ólafsvík, og kona hans, Guðbjörg Gils- dóttir. Jóhannes var dáinn fyrir mann- tal 1845. Ögmundur gerðist bóndi á Einarslóni í Breiðuvík. Sá bær stóð rétt við hina frægu Lóndranga á Snæfells- nesi. Þar hefúr aldrei þótt búsældarlegt og hefúr vafalaust verið mikil fátækt þar um slóðir. Þar lifðu menn fyrst og síðast af fiski. Kona Ögmundar hét Kristbjörg og var Andrésdóttir. Hún mun vera fædd eftir manntalið 1845 og dáin fyrir 1875. Þau Ögmundur og Kristbjörg áttu einn son er hét Guð- mundur og var hann fæddur á Einars- lóni árið 1868 og var skírður 13. janúar. Hann mun því vera fæddur ör- fáum dögum fyrr. Eftir að Kristbjörg dó bjó Ögmundur með bústýru sem hét Anna Elísabet Jóhannsdóttir. Með henni átti hann tvö börn, Elimund, f. 1876, og Kristrúnu, f. 1878. Árið 1880 er Ögmundur tómthúsmaður í Sumar- Snæfellings liðabúð á Rifí eða þar í grennd. Þá er Guðmundur 12 ára gamall á Skarði í Ingjaldshólssókn. Þegar hann er fermdur 2 árum síðar, býr Ögmundur faðir hans með annarri bústýru, Maríu Árnadóttur, á Öndverðarnesi og er þá Guðmundur hjá þeim. 1891 var Elimundur fermdur og bjuggu Ögmundur og María þá ógift í Görðum í Beruvík. (Beruvík var allstórt byggðarlag alveg yst á Snæfellsnesi). Nú fylgjum við Guðmundi eftir að svo miklu leyti sem hægt er. Næst finnst hann 22 ára gamall í manntalinu 1890 og er þá ógiftur vinnumaður á Innra-Leiti í Breiðabólsstaðarsókn á Skógarströnd. Þegar hann er 27 ára gamall giffist hann úti í Hergilsey konu sinni, Engilráð Sveinsdóttur úr Vatns- dal í Húnavatnssýslu. Hún var þá að- eins 18 ára gömul. Þau fluttust frá Skógarströnd að Svalvogum í Dýra- firði og fóru þaðan til Þingeyrar 1895. Þegar hér er komið sögu er Guð- mundur titlaður skóari eða skósmiður, og virðist hann hafa lært þá iðn á tíma- bilinu 1890 - 95. Þann 1. ágúst 1896 fæðist þeim dóttir, sem skírð var Sveinfríður Ágústa. Hún dó í Reykja- vík í apríl 1979. Á fyrri hluta ársins 1897 afréð Guðmundur, einhverra hluta vegna, að stinga af frá konu sinni og barni. Hvarf hann á brott frá Þingeyri og spurðist aldrei til hans. Skömmu síðar fór Engilráð af landi brott til Danmerkur. Hún kom barninu í fóstur í Hólakoti í Dýrafírði. Talið er að Engilráð hafi farið að leita að manni sínum, en hann fann hún samt aldrei. Hún mun aldrei hafa komið affur til íslands. 20

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.