Andvari

Volume

Andvari - 01.01.2011, Page 60

Andvari - 01.01.2011, Page 60
58 SVERRIR JAKOBSSON ANDVARI þar sem hann túlkar samskipti íslendinga við konungsvaldið á 13. öld.43 í upphafi kemur fram að hann telur að þessir atburðir hafi „orðið undirrót lángrar ógæfu fyrir land og lýð, eptir að landmenn höfðu mist sjálfsforræði sitt og fornt frelsi“. Sökudólgurinn er að mati Jóns einn: Hákon Hákonarson Noregskonungur. Þegar Sturla Sighvatsson freistar að leggja undir sig ísland 1235-1238 telur Jón „auðsætt, að allr ójöfnuður [Sturlu] og flokkadrættir, manndráp og tjón bæði hans og annara höfðíngja, var kveykt af kolum Hákonar konúngs, og fyrir hans tilsti 11 i“. Jón er einnig afdráttarlaus um til- drög þess að konungur eignaðist jarðir Snorra Sturlusonar: Eptir því sem af sögunum verðr frekast séð, hefir Snorri þá enn hvorki afsalað sér goðorð sitt eða eignir, hvorki til konungs eða Skúla hertoga. Hákon konúngr átti því engan rétt á að slá sinni hendi yfir góz hans, enda er aldrei sögð nein sennileg ástæða til, hversvegna hann hafi gjört það. Þá telur Jón auðsýnt að ,,[f]rá þeim tíma að hinir norrænu biskupar komu til íslands eru þess mörg sýnileg merki, að konúngr gekk í miklu meiri berhögg við íslendinga en fyr, með ýmsu móti“. Þá bendir Jón á að ,,[s]tefna tímans og aldarháttr, og hugsunarháttr manna um þessar mundir, sem allr hallaðist að ófrelsi og hjátrú, var einnig konúngi til mikillar styrktar“. Um Vilhjálm kardínála, sem krýndi Hákon til konungs 1247, segir Jón að hann hafi verið „svo margkeyptr, að hann var öldúngis á konúngs valdi“. Jón nefnir farbönn konungs á skip til íslands sem dæmi um kúgunartæki hans, en það krefst þó nokkurra útskýringa við, þar sem Jón var talsmaður frjálsrar verslunar og andvígur því að takmarka utanlandsviðskipti við eitt land. Þá gerir hann ráð fyrir að Islendingar hljóti að hafa átt sameiginlegra hagsmuna að gæta í verslunarmálum: Bönn þessi og verkanir þeirra lýsa einnig því, að samgaungur Íslendínga hafa um þessar mundir verið nær eingaungu við Noreg, því hefði ekki svo verið, þá hefði bönn konúngs orðið framar Noregi til skaða en íslandi, af því Íslendíngar hefði þá hætt að fara til Noregs og farið til annara landa, enda má það og undra oss nú, að þeir skyldi ekki gjöra það, og hefir það verið hið nákomna þjóðlega samband, sem var milli Noregsmanna og Islendínga, er hefir valdið þessu. Jón skýrir hins vegar ekki nánar í hverju þetta „þjóðlega samband“ var falið að hans mati. Jón reynir svo að greina á milli mismunandi gerða Gamla sáttmála og kemst að þeirri niðurstöðu að nokkur handrit sýni sáttmálann „svo sem hann var í fyrstu samþykktr á alþíngi 1262“ en önnur séu viðbætur frá 1263 og 1264. Undir þetta tóku ekki allir fræðimenn á hans dögum. Þeir Peter Andreas Munch og Konrad Maurer töldu báðir að sum handrit sáttmálans ættu við samþykkt sem alþingi íslendinga hefði sent Hákoni Magnússyni
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.