Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1950, Page 82

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1950, Page 82
64 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA nemana vestan hafs hyllir hann í að- dáunarríkum kvæðurn. Auk þjóðminningarkvæða hefir hann ort sæg annarra tækifæriskvæða, og er þar viða spaklega og smekklega að orði komist, og öll lýsa þau kvæði ríkum drengskaparhug í garð samferðamann- anna. Hann yrkir t. d. vel til Vilhjálms Stefánssonar landkönnuðar. En ágæt- ast og samfelldast allra slíkra kvæða skáldsins, og jafnframt eitthvert allra bezta kvæðið í bók hans, er minningar- kvæðið um föður hans, Eirík Björnsson. Er það kvæði einnig gott dæmi þess, hve vel höfundinum lætur að yrkja undir fornum íslenzkum bragarháttum, og jafnframt vottur þess, hve hand- genginn hann er íslenzkum bókment- um. Margar lausavísur hans bera einn- ig vitni rímfimi hans og hugkvæmni, bæði vel kveðnar og bráðsmellnar. Af lengri kvæðum almenns efnis kveður einna mest að kvæðunum “Frá Mayflower til Plymouth Rock”, “Land- rýrni” og “Týsfórnin”. Hugstæðust verða þó ljóðrænu kvæðin, “Islenzkt vor”, “Smáblómið”, “Útsýn”, “Þagnar- mál”, “Haust” og “Sumármorgun á Is- landi”. I þeim er undiralda einlægrar tilfinningar, sem finnur sér framrás í fáguðum ljóðbúningi. “Grímsey” er og gott kvæði, sem bregður upp skýrri mynd, og ágætlega ort og fögur eru ljóðin “Jólavísa” og “Jólakvæði”, hið síðarnefnda sérstaklega heilsteypt kvæði, hugsun hlaðið og vel samræmt. I kvæðasafninu eru einnig eigi all- fáar mjög athyglisverðar þýðingar merkiskvæða úr ensku, meðal þeirra “Skýið” eftir Shelley og “Náttgalaóður” eftir Keats, bæði víðfræg mjög í ensk- um bókmenntum. 19. Kristján S. Pálsson var fæddur á Signýjarstöðum i Hálsasveit í Borg- arfjarðarsýslu 5. sept. 1886, og albróð- ir Páls S. Pálsson skálds. Fluttist til Canada 1897, en var búsettur í Selkirk, Manitoba, frá því að hann var rúm- lega tvítugur. Litla skólagöngu bætti hann sér upp með lestri góðra bóka, ís- lenzkra og enskra, einkum skáldrita og Ijóðabóka. Hann varð bráðkvaddur 11. febr. 1947. Safn kvæða Kristjáns, Kvæðabók, kom út að honum látnum í Winnipeg 1949, búin til prentunar af Gísla Jóns- son. Kvæði Kristjáns bera því órækan vott að hann var gæddur næmum feg- urðarsmekk og mjög létt um að yrkja, því að þau eru þýð og ljóðræn. Fjöl- breytnin í kvæðum hans er einnig rnjög áberandi; hann slær á marga og fjarskylda strengi hörpunnar og fer högum höndum um hin ólíkustu yrkis- efni. Ættjarðarkvæðin, sem öndvegi skipa í bókinni, bera því fagurt vitni, hve djúpstæða sonarrækt skáldið bar í brjósti til ættlands og átthaga. Ágætt dæmi þess er upphafskvæðið “Tigna drottning”, ort í tilefni af lýðveldis- stofnuninni; í því er fagnaðarhreimur og hrifning. Sögu Islands og fegurð túlkar skáldið af sama ástarhuga í öðrum kvæðum sínum, og jafn glögg- skyggn er hann á gildi íslenzkra menn- ingarerfða, eins og lýsir sér vel í kvæð- inu “Heimanmundurinn”. Eigi er þó í skáldskap hans, fremur en annarra vestur-íslenzkra skálda, neinn árekstur milli órofa ræktarhuga hans til ætt- landsins og heilhuga hollustu hans við kjörlandið, sem hann ann innilega og rnetur að verðleikum, eins og hin fögru Canada- og Manitobakvæði hans sýna órækast.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.