Unga Ísland - 01.12.1948, Page 61
Guðrún Jónsdóttir írá Prestsbakka:
Jól í klaustri
Það er aðfangadagsmorgunn, og klukkan er fimm. Klaust-
urklukkan hringir með skærum hreimi. í klaustrinu er
sólarhringnum skipt í tíma bæna, iðju og hvíldar og hver
tímaskipti gefin til kynna með klukknahringingu. Þetta
er morgunklukkan, sem vekur nunnurnar; við hinar meg-
um liggja hálftímanum lengur, en þegar klukkan er hálf
sex hringir klukkan okkar, og við flýtum okkur á fætur.
Allir dagar hefjast með bænagerð og messu. Á meðan ég
er að festa á mig hvíta hnésíða slörið, sem við stúlkurnar
höfum yfir okkur þegar við förum til messu, heyri ég
álengdar óminn af morgunbæninni í svefnsal stúlknanna.
Svo göngum við allar í röð niður í kapelluna. í dag er lesin
lágmessa eins og venjulega. Jatan, sem nunnurnar hafa
verið að búa til undanfarna daga, er hulin klæði. Við fá-
um ekki að sjá hana fyrr en við miðnæturmessuna á jóla-
nóttina.
Að messu lokinni drekkum við morgunkaffi eins og
venjulega, en þó ekki alveg eins og venjulega. í dag er að-
fangadagur jóla, og hann hefst með föstu. Að fasta er ekki
sama og að borða ekki neitt, en það þýðir að við neitum
okkur um eitthvað, sem við erum annars vön að njóta,
t. d. að við borðum brauðið okkar þurrt og drekkum ekki
nema einn bolla af kaffi.
Undanfarna daga hefur allt verið hreinsað og fágað í
klaustrinu eins og alls staðar í híbýlum manna fyrir jólin.