Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1999, Page 199
Kynning fyrirtækja og stofnana 197
breytingu á eldra húsi. í viðbyggingu eru fimm almennar kennslustofur, sérgreinastofur og
bókasafn. Hluti viðbyggingar var tekinn í notkun í september 1998. Unnið var fyrir 192,1
m.kr.
Rimaskóli: Unnið var fyrir 137,3 m.kr. við hönnun og framkvæmdir vegna 3. áfanga. í
áfanganum eru íþróttasalur auk baða og búningsklefa, hátíðasalur, tónlistarstofa,
sérkennslustofa, aðstaða ÍTR, tæknirými o.fl.
Melaskóli: Viðbygging og breytingar innanhúss. Um er að ræða hönnun og framkvæmdir
vegna 1470 m2 viðbyggingar og tengigangs. Fjórar kennslustofur af þrettán voru teknar í
notkun í september 1998 og allt húsið verður tilbúið haustið 1999. Alls var unnið fyrir 130,6
m.kr.
Færanlegar kennslustofur: Byggðar voru sex nýjar stofur og gamlar færðar til. Unnið var
fyrir 77,9 m.kr.
Fossvogsskóli: Byggð var viðbygging og unnið við breytingar innanhúss. Unnið var fyrir
40 m.kr.
Fcllaskóli: Byggð var viðbygging og unnið við breytingar innanhúss. Unnið var fyrir 36,1
m.kr.
Menningarmál
Hafnarhúsið, listasafn: Unnið var við hönnun og framkvæmdir við lagnakjallara og
breytingar innanhúss vegna Listasafns Reykjavíkur. Unnið var fyrir 83,9 m.kr.
Safnahúsið, Tryggvagötu 15: Unnið var við hönnun og innréttingar á húsnæði fyrir
Borgarbókasafn, Borgarskjalasafn og Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Alls var unnið fyrir 73,3
m.kr.
Iðnó: Endurbyggingu lauk vorið 1998 og hófst þá rekstur í húsinu. Unnið var á árinu fyrir
87,7 m.kr.
Æskulýðs-, tómstunda- og íþróttamál
Sundlaug í Grafarvogi: Ný sundlaug var opnuð í maí 1998 og innilaug tekin í notkun
haustið 1998. Á árinu 1998 var unnið fyrir 193,2 m.kr.
Félagsaðstaða Þróttar í Laugardal: Unnið var að uppsteypu og frágangi utanhúss á nýju
félagshúsi fyrir Knattspyrnufélagið Þrótt. Því lauk vorið 1999. Unnið var fyrir 53,1 m.kr. á
árinu 1998.