Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.05.1997, Blaðsíða 14

Neytendablaðið - 01.05.1997, Blaðsíða 14
Heilbrigði Nikótínlyf - Hlutfallslega ódýrast að kaupa stærstu pakkningarnar Nú geta þeir sem vilja hætta að reykja valið um fjögur nikótínlyf til að létta sér róðurinn. I öllum tilvikum verður að kaupa þessi lyf í apótekum og þar af er eitt þeirra lyfseðilsskylt, nefúðinn. Sam- keppni milli apóteka er hvergi meiri en einmitt á þessum vörum. En verð breytist einnig ört á þessum lyfjum í apótekum. Þannig er t.d. algengt að auglýstur sé 20-30% afsláttur á meðan viðkomandi apótek er með kvöld- og/eða næturvaktir. Neytendum sem hyggjast kaupa þessar vörur er því bent á að hringja fyrst í apó- tek og kanna hve mikinn afslátt þau veita, enda getur verðmunur verið verulegur. Lyfjaverðsnefnd ákveður heildsölu- og smásöluverð þessara lyfja sem annarra og vekur það eftirtekt hve há smásöluálagn- ing er á þessum vörum, eða allt að 100% fyrir utan virðisaukaskatt. Álagningin er hæst á þær einingar sem seldar eru á lægsta verði og er ástæðan að hluti álagn- ingar er svokallað afgreiðslugjald sem er föst krónutala. Því verður apótekum ekki skotaskuld úr að gefa afslátt. Hér er birt verð á hverri einingu og hvað hvert stykki kostar og er miðað við að veittur sé 20% afsláttur af því verði sem lyfjaverðsnefnd ákveður, enda al- gengt að apótek veiti slíkan afslátt. Þó skal minnt á að dæmi eru um bæði minni og meiri afslátt. Nikótín plástur Verð pr. Verð á stk. einingu Nicolan light, 24 klst., 11 mg, 4 stk. í pk.....208,75 835 Nicolan light, 24 klst., 11 mg, 14 stk. í pk....187,36 2623 Nicolan, 24 klst., 22 mg, 4 stk. í pk........237,25 949 Nicolan, 24 klst., 22 mg, 14 stk. í pk..........209,86 2938 Nicorette, 16 klst., 5 mg, 7 stk. í pk..........227,43 1592 Nicorette, 16 klst., 5 mg, 14 stk. í pk.........192,29 2692 Nicotinell, 24 klst., 7 mg, 7 stk. í pk.........252,57 1768 Nicotinell, 24 klst., 7 mg, 21 stk. í pk........187,76 3943 Nicorette, 16 klst., 10 mg, 7 stk. í pk.........262,71 1839 Nicorette, 16 klst., 10 mg, 14 stk. í pk........207,86 2910 Nicotinell, 24 klst., 14 mg, 7 stk. í pk........280,86 1966 Nicotinell, 24 klst., 14 mg, 21 stk. í pk.......215,95 4535 Nicorette, 16 klst., 15 mg, 7 stk. í pk.........272,29 1906 Nicorette, 16 klst., 15 mg, 14 stk. í pk........223,93 3135 Nicorette, 16 klst., 15 mg, 28 stk. í pk........195,14 5464 Nicotinell, 24 klst., 21 mg, 7 stk. í pk........308,00 2156 Nicotinell, 24 klst., 21 mg, 21 stk. í pk.......234,62 4927 Nikótín tyggigúmmí, 2 mg Nicotinell, 12 stk. í pk.........................22,67 272 Nicotinell, 48 stk. í pk.........................19,52 937 Nicotinell, 84 stk. í pk.........................17,26 1450 Nicorette, 15 stk. í pk..........................21,60 324 Nicorette, 30 stk. í pk..........................19,93 598 Nicorette, 105 stk. í pk.........................16,86 1770 Nicorette, 210 stk. í pk.........................13,87 870 Nikótín tyggigúmmí, 4 mg Nicotinell, 12 stk. í pk.........................32,17 386 Nicotinell, 48 stk. í pk.........................29,19 1401 Nicotinell, 84 stk. í pk.........................23,88 2006 Nicorette, 15 stk. í pk..........................31,20 468 Nicorette, 30 stk. í pk..........................29,50 885 Nicorette, 105 stk. í pk.........................22,50 2362 Nicorette, 210 stk. í pk.........................19,03 3997 Nikótín nefúði Nicorette, 10 ml, 1 stk. í pk.....................2109 2109 Nicorette, 10 ml, 4 stk. í pk.....................1442 5768 Nikótín patrónur Nicorette, 6 patrónur1).........................103,67 622 Nicorette, 18 patrónur...........................57,33 1032 Nicorette, 42 patrónur2).........................53,10 2230 1) Þetta er svokallaður byrjunarpakki og er í honum auk patrónanna eitt munnstykki og plastaskja til að geyma í patrónur og munnstykki. 2) Innifalið er eitt munnstykki. 14 NEYTENDABLAÐIÐ - Maí 1997

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.