Bændablaðið - 15.06.1999, Blaðsíða 18

Bændablaðið - 15.06.1999, Blaðsíða 18
18 BÆNDABLAÐIÐ Þriðjudagur 15.júní 1999 Ævar Jóhannesson hel ur ræktað lyf og jurtaseiði úr íslenskum jurtum Sjúklingum sem nota jurtaseiði vegnar betur Ævar Jóhannesson hefur undanfarin ár verið einn helsti frumkvöðull í tilraunum með íslenskar lækningajurtir. Hann hefur útbúið ýmiss konar jurtaseiði og lyf, m.a. úr lúpínurót og hvönn, sem er einmitt nú verið að rannsaka sem mest á vegum Raunvísindastofnunar Háskólans. Stjórn Aforms ákvað á síðasta ári að veita honum sérstaka viðurkenningu fyrir starf hans. Ævar segist hafa byrjað á þessu árið 1978. „Ég ritstýrði þá, og geri enn, tímaritinu Heilsuhringurinn, og það varð til þess að ég fór að leiða hugann almennilega að efnafræðilegum hlutum og kynna mér lækningamátt íslenskra jurta. Ég fór svo að gera tilraunir sjálfur með nokkrar jurtir í tengslum við krábbamein. Ur því komu svo áhugaverðar niðurstöður að ég gat ekki hætt.“ Ævar hefur ekki tekið gjald fyrirþessa framleiðslu sína. „Ég gerði þetta ekki til þess að græða á því. Mig langaði hins vegar til að vita hvort hægt væri að gera eitthvað til þess að hjálpa krabbaméinssjúkum og reyndar fleirum." Framleiðsla Ævars fer nánast eingöngu til einstaklinga. „Þetta er ekki viðurkennt lyf enn sem komið er en hefur hins vegar verið mjög mikið notað, líka á sjúkrahúsunum. Nú er svo : - • - ffm •' Ævar með drykkinn góða. komið að um 80% af þeim krabba- meinslyfjum sem eru í notkun eru framleidd úr náttúruafurðum." Ævar segist hafa fengið jákvæð viðbrögð við framleiðslunni. „Ég get fullyrt að þeim sjúklingum sem nota þessi seiði vegnar betur en þeim sem nota það ekki í t.d. krabba- meinsmeðferð. Aukaverkanir eru minni en af hefðbundnum krabbameinslyfjum og fólk er fljótara að jafna sig eftir meðferðina.“ Ævar bendir einnig á að komið hafi í ljós að árangur krabbameinsmeðferða hér á landi sé meiri en í nágrannalöndunum. Eini munurinn á meðferðunum sé hins vegar sá að hér á landi eru seiðin notuð en ekki í nágrannalöndunum. Ævar fær jurtir víða og tínir þær ýmist sjálfur eða fær aðstoð. Lúpínurótin er t.d. tínd af Landgræðslunni og segir Ævar að Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri hafi reynst honum mjög vel. Auk lúpínurótarinnar notar Ævar mikið tvær tegundir af hvönn, einkum geithvönn sem er ekki eins algeng og ætihvönn en er engu að síður mikilvæg að hans mati. Svo fær hann litunarmosa norður í landi. En það eru fleiri en Ævar sem vinna nú að athugunum á lækningamætti íslenskra jurta. Um nokkurt skeið hafa nú staðið yfir slíkar rannsóknir á vegum Raunvísindastofnunar HÍ á lækningajurtum. Ævar segir áhugaverðar nið- urstöður hafa komið út úr því. „Þar hafa hins vegar engar klímskar prófanir verið gerðar heldur eingöngu í tilraunaglösum. Mér finnst kominn tími til að fara að rannsaka áhrif efhanna í jurtunum á fólk og jainvel dýr.“ Ævar segir að verksmiðjuframleidd lyf séu á undanhaldr og náttúrulyfin séu að sækja í sig veðrið. „Ég býst þó við að tilbúin lyf verði notuð áfram en þau verða kannski fram- leidd á annan hátt. Ég ætla að halda þessari framleiðslu a.m.k. áfram um sinn því ef ég hætti allt í einu þá myndi skapast hálfgert vandræðaástand því það eru margir sem nota þetta og telja sig ekki geta verið án þess,“ segir hann að lokum. Agnar með ferðaskríf- stohileyfi Samgönguráðuneytið hefur veitt Bændaferðum ehf. leyfi til að starfa sem ferðaskrifstofa. Agnar Guðnason, sem rekið hefur Bændaferðir um árabil, sagði að á liðnu ári hefðu um 900 manns farið utan með Bændaferðum. Hann gerði ráð fyrir lítilsháttar fjölgun á þessu ári. „Þetta leyfi mun ekki breyta rekstri Bændaferða mikið. Nú höfum við m.a. leyfi til að gefa sjálf út farseðla en ég gef mér að skipulag og rekstur verði áþekkt héreftir sem hingað til,“ sagði Agnar. Sturtuvagnar og stálgrindahús frá WECKMAN hús. Margar gerðir, Einnig stálklæðningar hagstætt verð H. HAUKSSON HF. ■ SUÐURLANDSBRAUT 48 Sírai 588 1130 - Fax: 588 1131 Heiraasími 567 1880 M*Hale RÚLLUPÖKKUNARVÉLAR Á SUMARTILB0ÐI Mest selda rúllupökkunarvélin á Islandi undanfarin ár, enda valin besti kosturinn í útboði Búnaðarsambands Suðurlands á síðasta ári. VÉLAR& ÞJÓNUSTAhf Járnhálsi 2, pósthólf 10180,130 Reykjavík, sími 587 6500, fax 567 4274 Útibú Akureyri Óseyri 1 a, sími 461 4040, fax 461 4044

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.