Tónlistin - 01.03.1947, Blaðsíða 8

Tónlistin - 01.03.1947, Blaðsíða 8
54 TÓNLISTIN lega viðreisn i tórilist sé mjög á b}rrj- unarstigi. — En um leið er blaðinu snúið við. Nú geta bræðraþjóðirnar á Norðurlandaskaga tckið að læra af oss — eins og í viðreisn bókmennta fyrir 100 árum. Norska tónskáldið Geirr Tveit verður fyrstur til. Hann lærir íslenzku og tekur efnivið rímna- laganna í tónsmíðar sínar. Slíkt er þó aðeins upphaf þess, er koma mætli. — Vcr skorum á frændþjóð- ir vorar að leita uppruna síns hjá oss og styrkja þjóðlega viðreisn vora um leið og þeir finna kjölfestu síns eigin þjóðernis í erfðamenningu Is- lendinga, Samslarf Norðurlanda í tónmennt er enn mjög skammt á veg komið. Þessi lönd kynna sér lítið tónverk bvers annars, nema á sérstökum tónlistarhátíðum á margra ára fresti með veizluböldum, ræðum og alls konar fagnaði. Þetta mun væntan- lega breytast á komandi árum. Ymis kouar undirbúningur er þegar haf- iuu og vér megum vænta þess, að Islandi verði ekki glcymt, eins og svo oft áður. Vér fögnum bræðraþjóðunum í kvöld, - fyrst Danmörku, er sendi oss gömlu lúðrana. llljómar þeirra brúa eklci eingöngu djúp aldagam- alla þrætuatriða og lækna sár þjóða vorra beggja megin Atlantshafsins. Þeir brúa 3000 ár sameiginlegs upp- runa allra norrænna þjóða. Vér fögnum Finnlandi, sem báð befur samtals 42 styrjaldir fyrir frelsi sínu. Vér dáumst að harðgervi og sköpunarmætti þessarar þjóðar um leið og vér finnum til blygðunar yfir því, hve auðfengið varð frelsi vort og bve lítið vér leggjum í söl- urnar til að varðveita það. Vér fögnum Noregi, voru upp- runalega ættlandi, fögnum frelsi þess nýfengnu. Engar raunir ófriðarins hafa snortið .oss dýpra cn frelsisbar- átta Norðmanna í fimm ár, — orr- ustur þeirra til seinasta manns og úthald, er orrustum lauk. Vér fögnum Svíþjóð, rismestu þjóð Norðurlanda, sem aldrei hefur áll í deilum við oss. Vér heiðrum auda Swedenborgs, sem kenndi ,,bið góða og sanna“, — minnumst blárra augna og blárra vatna — sem tákns beiðarleiks og friðar. Máli mínu vil ég ljúka mcð að lesa kvæði Jónasar Hallgrímssonar lil Uppsala-fundarins 1843, þegar fulltrúar Norðurlanda bittust við hauga forfeðra vorra. Skáldið hefur grunað, að einhvern tlma mundu fulltrúar Norðurlanda skilja tungu- mál hans, eins og nú er orðið bér í kvöld. „Bræður munu berjast og að bönum verða" ógnar in aldna spá; fram komu fyrr (og að fullu sé!) öll þau orð völu. 'Euudust bræður við Fýrisá, faðmast fóstbræður; tryggðum treystust, trausti bundust syuir samþjóða. Ast mætir ást og afli safnar

x

Tónlistin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tónlistin
https://timarit.is/publication/922

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.