blaðið - 11.10.2006, Blaðsíða 12

blaðið - 11.10.2006, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2006 blaöið UTAN ÚR HEIMI INDLAND Lög gegn barnavinnu Indversk stjórnvöld hafa samþykkt lög sem meina atvinnurekendum að ráða börn undir fjótán ára í vinnu á veitingastöðum, hótelum og í þjónustustörf í heimahúsum. Þeir sem brjóta lögin geta átt von á tveggja ára fangelsi. Herlögum verður aflétt Ríkisstjórn herforingjastjórnarinnar í Taílandi ætlar fljótlega að aflétta herlögum sem tóku gildi í kjölfar valdaráns hersins. Stjórnin sætir miklum þrýstingi frá alþjóðasamfélaginu um að afnema bann á fjölmiðlafrelsi og fundarfrelsi. Alvarlegur offitufaraldur I skýrslu breskra heilbrigðisyfirvalda kemur fram að hlutfall offitusjúklinga á Englandi er það hæsta í Evróþu. Ef ekkert verður að gert spá skýrsluhöfundar að 13 milljónir muni eiga við offituvandamál að stríða í lok þessa áratugar. Fram kemur í skýrslunni að ástandið er mismunandi eftir landshlutum en íbúar norðurhluta landsins eru feitastir og lifa skemur en aðrir íbúar landsins. „Ég hlakka til að takast á við skemmtileg og krefjandi störfá þessu sviði. Ég gef NTV skólanum og kennurum hans toppeinkunn! Að námskeiði loknu á nemandi að geta séð um rekstur minni eða meðalstórra tölvuneta. Námið undirbýr nemendur fyrir próf sem gefur gráðuna: - MCP / Microsoft Certified Professional - Meðal efnis námskeiðsins er: Uppsetningar og uppfærslur í Windows XP, Sjálfvirkar uppsetningar Meöferð vélbúnaðar og rekla, Umsjón með notendum og notendahópum Umsjón með skráarkerfinu og kvótaúthlutun, Aðgangsstýringar í skráar- kerfinu og samnýting gagna , Uppsetning prentara og samnýting þeirra Afritatökur og endurheimt gagna, Stillingar XP við notkun í netkerfum Skipulaggning TCP/IP netkerfa og villuleit, DHCP og DNS í Win 2003 Active Directory í Win 2003 Nokkur sæti laus á kvöldnámskeið sem byrjar 23. okt. Mán. og mið. 18-22 og lau. 8:30-12:30 Byrjar 23. okt. og lýkur 2. des. UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING í SÍMA 544 4500 OG Á NTV.IS MCP MirRosorr crRnnrn PRórtssio\Ai VIÐURKENND ÞEKKÍNG VEGUR ÞUNGT í FERILSKRÁNNI! Grétar Gíslason Microsaft - Kerfisfræðingur NTV Ákærðirfyrir stórfellt smygl Litháarnir Sarun- as Budvytis og Virunas Kavalciukas neita sök um að hafa flutt inn tæp tólf kíló af amfetamini. Ákærðir fyrir að smygla 11 kílóum af amfetamíni: Litháarnir neita sök Óttast um líf sitt ■ Þrjá mánuði í gæsluvarðhaldi Eftir Val Grettisson valur@bladid.net Litháarnir Sarunas Budvy tis og Vir- unas Kavalciukas neituðu sök við þingfestingu Héraðsdóms Reykja- víkur í gær en þeir eru ákærðir fyrir að smygla rétt tæpum 12 kílóum af amfetamíni til íslands. Mennirnir tveir voru teknir 6. júlí síðastliðinn þegar þeir komu með Norrænu á fólksbifreið. Við leit tollgæslunnar fundust fíkni- efnin og mennirnir voru umsvifa- laust hnepptir i gæsluvarðhald sem þeir eru enn í. Við yfirheyrslur sagði Virunas að Budvytis hafi boðið honum hingað til lands honum að kostnaðarlausu tveimur dögum áður en lagt var af stað. I fyrstu hélt hann því fram að þeir væru að koma frá Englandi en svo játaði Budvytis að þeir hefðu komið frá Litháen. Budvytis segist hafa fengið efnin frá pari og átti hann að hafa sam- band við þau þegar til íslands kæmi, þá yrði honum sagt hver ætti að fá efnin hér á landi. Hann neitar að gefa upp nöfn parsins af ótta um líf fjölskyldu sinnar sem býr í Litháen. Báðir mennirnir eru litháískir rikisborgarar og eru á fertugsaldr- inum og hafa verið í gæsluvarð- haldi síðan þeir komu. Ljóst er að um stórfellt smygl á hættulegu efni er að ræða, þar að auki er nokkuð víst að efnin áttu að fara í dreifingu hér á landi. Am- fetamínsmygl Litháa hefur verið mikið í umræðunni undanfarið en aðeins á þessu ári er búið að leggja hald á um 70 kíló af amfetamíni sem er meira en hefur nokkurn tímann náðst hingað til. Aðalmeðferð málsins verður siðar í mánuðinum. Þú vettir lyrir þér hvemig best er aö losna við gamla bílinn. Brimborg kaupir hann af þér staðgreitt** veljir þú bíl á góðu uppskerutilboði Brimborgar. Þú losnar við allt umstang við að selja og lækkar þinn kostnað. Komdu í Brimborg. Kynntu þér hvemig þú getur fengið þér nýjan Fond á uppskeruverði. frekarió Vý ; : ■ VWVW' fordis Örvggur stadur til aö vera i brimborg Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7000 | Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, slmi 462 2700 | www.ford.is • Brimborg og Ford áskilja sérréötilað breyta verói og búnaði án ýiinaa oa að auki er kaupverð háö gengi. Bllasamningur er lánmeð 20% útagun og mánaðarlegum greiðslum 184 mánuði og eru háðar breytingum á vöxtum og gengí erlendra mynta. Rekstrarleiga er miouð við mánaðarlegar greiðslur 139 mánuði sem eru háðar gengi erlendra mynta og vöxlum þeirra. Smur- og þjónustuettirlit samkvæmt ferli framleiðanda og BrimDorgar er innifalið (leigugreíðslu ogalltað 60.000 km akstur á timabilinu. ** Staðgreítt 45 dðgum eftir atnendingu nýja bdsirrs. Nánari upplýsingar veita sðluráðgjafar Brimborgar. Frá ítalska þinginu Stjórnendur vinsæls sjónvarpsþáttar fullyrða aö fíkniefna- neysla sé algeng meðal ítalskra þingmanna. Hneyksli umlykur ítalska þingið: Þingmenn í fíkniefnagildru Stjórnendur ítalsks sjónvarps- þáttar fullyrða að fíkniefnaneysla sé almenn meðal þingmanna í landinu. Stjórnendurþáttarins fengu fimmtíu þingmenn neðri deildar ítalska þings- ins í viðtal á þeirri fölsku forsendu að viðtalsefnið væri fjárlagafrum- varp næsta árs en raunverulegur tilgangur viðtalanna var að láta sminku þáttarins safna svita þeirra svo hægt væri að prófa hvort þeir hefðu neytt fíkniefna. Samkvæmt niðurstöðunni höfðu sextán þing- menn neytt annaðhvort kókains eða kannabisefna á 36 klukkustunda tímabili áður en viðtölin voru tekin. Þátturinn heitir „Le Lene” eða Hý- enurnar og snýst meðal annars um að gera grín að eða setja þekkt fólk í vandræðalegar aðstæður. Þátturinn er sýndur á sjónvarpsstöðinni Italia One, sem er í eigu fjölskyldu Silvios Berlusconis, fyrrverandi forsætisráð- herra landsins. Þrátt fyrir að nöfn þingmann- anna sem voru uppvísir að fíkniefna- neyslu hafi ekki verið gerð opinber hefur málið vakið miida athygli í ítölskum fjölmiðlum. En gegnum tíðina hafa verið miklar sögusagnir um að fíkniefnaneysla væri algeng meðal ítalskra þingmanna.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.