blaðið - 11.10.2006, Blaðsíða 36

blaðið - 11.10.2006, Blaðsíða 36
blaöið 3 6 MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2006 heimili heimili@bladid.net i i - Bækur 1 teygju , v Elastic 02 er nýstárleg bókahilla sem er búin til úr *5? teygjum og hentar vel til að geyma bækur af öllum stærðum og gerðum. Þessi skemmtilega bókateygja vi er hönnuð af portúgalska hönnuðinum Rute Gomes. neytendur neytendur@biadid.net KJARAN GÓLFBUNAÐUR SÍÐUMÚLA 14 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI: 510 5510 • www.kjaran.is OPIÐVIRKA DAGA KL. 8-18. Pappamassi nýttur Ljós og húsgögn úr pappamassa hönnuö af Studio Job. Allir kannast við að hafa búið til hluti úr pappa- massa þó það hafi kannski ekki verið húsgögn. Hlutirnir eru fallegir og sterklegir en hugmyndirnar koma frá klassískum húsgögnum en þeir eru framleiddir á nútímalegan hátt. Brenndur rókókó Smoke chair er gamall rókókóstóll sem er brenndur og því næst lakk- aður og bólstraður. Enginn stóll er eins. Fallega Hönnun frá fyrirtæk- inu Moooi hefur vakið nokkra athygli. Moooi sem er hollenska þýðir fal- legt og er það lýsandi fyrir hlutina sem koma frá Moooi, nema hvað hugtakið fallegt er teygt á marga vegu. Leiðirnar sem eru farnar við gerð hlutanna eru óvenjulegar og skemmtilegar og þannig sker Moooi sig frá hefðbundnum húsgagnafram- leiðendum. Hönnuðurinn Marcel Wanders er forsprakki fyrirtækisins og listrænn stjórnandi Moooi en það hefur ver- ið starfrækt síðan 2001. Markmið fyrirtækisins eru metnaðarfull en þau eru að senda góða strauma og hafa jákvæð áhrif á umhverfi fólks í lífi og starfi í alþjóðlegu samhengi. Moooi sýnir frumkvæði í umburðar- lyndi og leggur áherslu á að sinna þörfum manna, menningar og Ljósið Light shade shade Ljósið er eftir Jurgen Bay. Undir hálfgegn- særri filmu er gamaldags Ijósakróna sem kemur í Ijós þegar á hennier kveikt. Moooi tækni, sem síðan skapar tækifæri fyrir viðskipta- vini, starfsfólk, fjárfesta og félög. Ýmsir hönnuð- ir hafa hannað undir merkjum Moooi og má þar nefna Ross Lovegro- ve, Li Edelkoor, Joep van Lieshout, Studio Job, Maar- ten Baas og Jurgen Bay. í nóvemberlíturnýverslun dagsins ljós þegar Lúmex opnar ásamt húsgagnadeild Pennans í gamla Ellingsen-húsinu skemmti- lega nýja hönnunarverslun. Nýja verslunin mun einmitt selja hönn- un frá Moooi. Bara skemmtilegt Ingi Már Helgason í Lumex er mjög hrifinn af Moooi-vörunum. „Mikið af hlutunum átti upphaflega ekki að fara í framleiðslu þar sem þeir voru hannaðir fyrir sýningar og eru margir hverjir tilraunakenndir en fólk sýndi þeim mikinn áhuga og því var hafin á þeim framleiðsla. Við hönnunina er ekki endilega verið að hugsa um hvað markað- urinn kallar á heldur að koma fram með nýjar hugmyndir og þannig er fyrirtækið leiðandi og fer sínar eigin leiðir.” Uppáhaldshlutur Inga úr Moooi-línunni er Smoke chair sem hannaður er af Maarten Baas. Stóllinn er klassískur rókók- óstóll sem er brenndur og síðan lakk- aðurog bólstraðurmeðsvörtuleðri. Enginn stóll er eins, þeir eru mis- mikið brenndir og brotið af þeim. Ingi segir að stóllinn kalli oft fram bros á vörum fólks þegar það fer að skoða stólinn og sama má segja um hina hlutina frá Moooi. Áklæði á 48 klukkustundum Moooi hefur í samstarfi við B&Bit- alia hannað sófa sem eru í hæsta gæðaflokki. B&Bitalia er rótgróið fyrirtæki sem þekkt er fyrir vand- aða hönnun og falleg efni. Moooi nýtir reynslu og verkkunn- áttu B&Bital- ia og notar efnin þeirra en gerir sófa eftir sínu höfði. Hug- m y n d i n snýst einnig um það að kaupandinn þarf ekki að bíða eftir sóf- anum með rétta áklæð- inu í margar vikur heldur getur hann farið með sóf- ann heim úr búðinni strax. Hann velur um 13 áklæði sem í boði eru og þau koma með hraðsendingu heim að dyrum á innan við 48 klukkutím- um. Þannig er einnig hægt að brey ta um áklæði með lítilli fyrirhöfn og á stuttum tíma. Ingi segir að verðlagið á húsgögn- unum sé um 30 prósent lægra en ef um hágæðamerki væri að ræða en hlutirnir frá Moooi séu fyrir fólk sem vill öðruvísi hluti sem henta vel á nútímaheimili og gera lífið skemmtilegt. MOTTUR við inngariginn borga sig CORflC Vörn gegn óhreinindum og bleytu Gamalt verður nýtt Pantheon Throw er ábreiða sem er hluti af Moooi weer-lín- unni sem byggir á því að gefa gömlum hlutum nýtt líf. Hann- að afStudio Job. > Fair-trade vörur i verslunum Kaupáss Bóndinn fær borgað Er hægt að bjarga heiminum með því að kaupa banana? Eða kaffi? Svo er víst. Kraft- ur einstaklingsins sem neytanda er meiri en hann heldur. Neytendur geta með sameiginlegu átaki breytt gangi heimsmála með því að raða rétt í innkaupakörfuna. Það að peningar stýri snúningi jarð- ar þarf ekki að vera alslæmt. Snún- ingurinn þarf bara að vera réttur og út á einmitt það ganga svokölluð sanngjörn viðskipti sem kallast á ensku Fair-trade. Sanngjörn viðskipti ganga í raun út á það að tryggja framleiðandan- um, til að mynda bananabóndanum, að hann fái sanngjarnt verð fyrir af- urð sína og að greiðsla neytandans renni að einhverju leyti til hans en ekki til milliliða eða stórfyrirtækja sem hafa í krafti stærðar þrýst kaup- verði afurðar langt niður til að fá stærri bita kökunnar. Þannig hafa þeir litlu haldist litlir og þeir stóru stækkað í gegnum tíðina og margir telja viðskipti Vesturlanda við þró- unarlöndin hafa verið á þann veg áratugum saman. Fair-trade-hreyfingin fór af stað fyrir tveimur árum og hófst hjá kaffibændum sem vildu losna úr fátækt og áþján stórfyrirtækja sem högnuðust á framleiðslu þeirra með- an þeir gengu á landið og fengu æ minna fyrir afurð sína. Fair-trade merktar vörur eru oft dy'rari en aðrar vörur enda keppa þær ekki við vörur stórfyrirtækja. Það mætti segja að neytendur séu með framboði þessara vara komnir í alþjóðlega baraáttu við að tryggja að fólk í fátækustu löndum heims njóti sanngirni þegar kemur að heimsviðskiptum. Þónokkur fyrirtæki bjóða Fair-tra- de merktar vörur og sjá sér hag í að bjóða neytendum upp á slíkt val. Kaffi- tár hefur selt kaffi merkt Fair-trade í nokkur ár og Nóatún býður upp á Fa- ir-trade merktar vörur. Af Fair-trade merktum vörum í Nóatúni má nefna hrísgrjón, hrískökur, te, kaffi, ávaxta- safa, sápu, marmelaði, speltkex, sykur, súkkulaði og kakó. Jón Ingi Einarsson, innkaupastjóri í Nóatúni, segir margar ástæður fyrir því að Nóatún setur fram þessar vör- ur. Verslanir Nóatúns vilji vera þekkt- ar fyrir að bjóða upp á gæði og vöru- merking eins og Fair-trade sé hluti af gæðum. „Við vitum að það er farið illa með bændur í þróunarlöndum. Arð- semin knýr stóru fyrirtækin áfram frekar en mannúð og þetta er okkar leið til að koma að því verkefni.” dista@bladid. net Merkingar eru lífsnauðsynlegar Fyrir þá sem eru með fæðuofnæmi eða óþol er nauðsynlegt að geta treyst merkingum á matvælum. Þær geta jafnvel verið lífsnauðsyn- legar þeim sem hætta er búin að fá ofnæmislost. Reglur hafa verið hert- ar mjög þegar kemur að skýrum merkingum. Rétt merkt matvæli Um þrjú til fimm prósent íslendinga eru með fæðuofnæmi DÆMI UM SKÝRAR MERKINGAR Ef innihald I matvælum er ofnæmis- eða óþolsvaldandi skal merkja sérstaklega upprunann. Dæmi: Lesitín (bindiefni), sem er aukaefni, skal merkja sem sojalesitín eða eggjalesitín eftir þvi hvort það er unnið úr soja eöa eggjum. Nota skal auðskiljanleg heiti i innihalds- lýsingu yfir matvæli. Dæmi um skýrar merkingar I innihalds- lýsingu: - Mjólkurprótin I stað kaseins - Sesam í stað tahini Nú þarf ennfremur að merkja E auka- efni á skýran hátt og ekki nóg að láta númerið standa eitt og sér. f þessu tilviki þarf merkingu eins og kemur hér að neðan. -Dæmi: E322 (sojalesitín)

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.