blaðið - 11.10.2006, Blaðsíða 26

blaðið - 11.10.2006, Blaðsíða 26
* 26 I FJÁRMÁL HEIMILANNA MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2006 blaÖÍA Aðalheiður Héðinsdóttir, forstjóri Kaffitárs, heldur fyrirlestur um tengslanet kvenna á ráðstefnunni Konan sem haldin verður 20. til 22. október. „Ég tala eingöngu út frá eigin reynslu,” segir Aðalheiður. „Að tengjast fólki og læra af reynslu þess er mikilvægt fyrir alla, ekki bara þá sem eiga í viðskiptum. Fólk er svo skemmtilegt og frjótt og með því að tengjast mismunandi hópum víkkum við sjóndeildar- hringinn og getum séð hlutina frá öðru sjónarhorni um leið og maður stendur með eigin sjónarhorni.” Að- alheiður segist mörkuð af því að vera í eigin rekstri og geti ekki gefið ráð um annað. „Ég get aðeins talað um að tengjast öðru fólki út frá eigin reynslu. Kannski eru konur í annarri stöðu innan fyrirtækja hvað varðar að nýta sér tengslanet en ég trúi því að ef kona eða hver sem er ætli sér að ná völdum þurfi skilning á þeim meðulum sem þarf að beita HVAÐ ER TENGSLANET? Tveir eru betri einn mætti segja um til- gang þess aö tengjast fólki. Tengslanet snúast um gagnvirk samskipti. Hvort sem um er aö ræða persónuleg tengsl eða fag- leg, er tilgangurinn með þeim að mynda og viðhalda samböndum sem fela í sér einhvern ávinning. til þess og síðan að framkvæma eftir því og það er alveg ljóst að reynsla annarra nýtist þér að því marki.” Aðspurð að því hvort tengslanet sé ekki upphafið orð yfir klíkuskap og að lausn kvenna sé að gerast aðili að betri klíkum segir hún það gamla lummu. Karlar gangi örugglega ekki frá samningum í reykfylltum bakherbergjum. Aðalheiði finnst konur tvímælalaust latari við að sýna sig og sjá aðra. Þær séu skyldu- ræknar og finnist erfitt að taka frá tíma til þess að fara á mannfagn- aði, fyrirlestra og annað. „En stað- reyndin er sú að maður verður að sýna sig og hitta aðra. Hvernig getur einhver viljað þig í ráð og nefndir ef sá hinn sami veit ekki hver þú ert?” Aðalheiði finnst konur oft ófram- færnari en karlmenn þegar að þessu kemur. „En þær verða að taka áhætt- una og vera framfærnari.” Hún segir ávinninginn þann að það sé fyrst og fremst skemmtilegt að verá innan um fólk og læra af því, fyrir utan þann að spara tíma og opna nýjar og færari leiðir. dista@bladid.net Mjá Arctic Trucks leituðum við að heildstæðu kerfi sem héldi utan um alla þætti starfseminnar. Fyrir valinu varð Microsoft Dynamics Navision. ekkisist vegna þjónustukerfisins frá Landsteinum Streng. Þjónustukerfið gefur okkur nauðsynlegar upplýsingar um vörur og vinnu við þá bila sem við breytum og þjónustum." Hrafnhildur Hauksdóttir, verkefnastjóri Arctic Trucks. Ævintýrin gerast enn ... þaö vita okkar viöskiptavinir! Þjónustukerfið annast allt frá meðhöndlun þjónustubeiðna og útdeilingu beiðna á tæknimenn til skráningar verka og þjónustusamninga. Þjónustukerfið heldur utan um fastar þjónustuheimsóknir og lætur sjálfkrafa vita þegar heimsækja á viðskiptavini. Með betri viðbragðssnerpu eykst þjónustustig fyrirtækisins og ánægðir viðskiptavinir koma aftur og aftur. Tryggöu þér ánægöari viðskiptavini með þjónustukerfinu okkar! - Launakerfi - Verkbókhaldskerft - Tímaskráningarkerfi - Stjórnendaiausmr - Leigukerfi - Tengslastjórnunarkerfi Microsoft Business Solutions Global ISV Partner of the Year 2005 lausnir (rá Lanchteinum Streng eru notaðar (jleiri en 11.600 verslunum txj rúmtega 2.7.800 afgreiðslukössupi víðsvegar um heim. Meðal ánægðra viðskiplayina má nefna. IKEA, Adidas, Debenhams, Piwa Hut, Boolhs stórmarkaðirmr, AUiance Pharmacy og Concept Sports international ÍEM 2004, OL (Aþenu ánð 2004). LandsteinarStrengur Ármúla 7-108 Reykjavík - S(mi 550 9000 - www.landsteinarstrengur.is Micmsoft GOLD CERTIFIED Partner JM Microsoft Dynamics

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.