Bændablaðið - 20.11.2007, Blaðsíða 12

Bændablaðið - 20.11.2007, Blaðsíða 12
Bændablaðið | Þriðjudagur 20. nóvember 20071 Árleg ráðstefna fagráðs í hrossa­ rækt var haldin á Hótel Sögu 10. nóv. sl. Á dagskrá voru fræðsluerindi, auk þess sem nú voru veitt í fyrsta sinn heiðurs­ verðlaun hryssna fyrir afkvæmi á ráðstefnunni. Þrjár hryss­ ur höfðu að þessu sinni áunnið sér rétt til heiðursverðlauna en eigandi einnar hefur afþakk­ að þau. Verðlaunaðar voru þær Löpp frá Hvammi, sem hlaut Glettubikarinn sem hæst metna heiðursverðlaunahryssan, og Hera frá Herríðarhóli. Báðar feiknamiklar ræktunarhryss­ ur sem hafa getið af sér góð afkvæmi. Guðlaugur Antonsson, hrossa- ræktarráðunautur BÍ, fór yfir liðið sýningarár og kynnti nýtt kynbóta- mat sem aðgengilegt er í WorldFeng. Í máli hans kom fram að áhugi á kynbótasýningum eykst stöðugt og í ár var heildarfjöldi dóma 1376, sem er met á árunum á milli landsmóta. Hann kynnti einnig hugmyndir fagr- áðs að lágmörkum kynbótahrossa vegna landsmóts á næsta ári og þar er gert ráð fyrir að lágmörk hækki um 5 kommur í öllum flokkum frá því sem var á síðasta móti. Tólf bú voru tilnefnd til rækt- unarverðlauna ársins og voru þau heiðruð á ráðstefnunni. Búin eru: Auðsholtshjáleiga, Gunnar Arnar- son og Kristbjörg Eyvindsdóttir Blesastaðir 1a, Magnús Trausti Svavarsson og Hólmfríður B. Björnsdóttir Fet, Brynjar Vilmundarson Ketilsstaðir, Bergur Jónsson og Jón Bergsson Kvistir, Kristjón Kristjánsson Litlaland, Sveinn Steinarsson og Jenný Erlingsdóttir Lundar II, Sigbjörn Björnsson og Ragna Sigurðardóttir Skagaströnd, Sveinn Ingi Grímsson Skarð, Fjóla Runólfsdóttir Strandarhjáleiga, Þormar Andrésson og fjölskylda V-Leirárgarðar, Marteinn Njálsson og Dóra Líndal Hjartardóttir Þúfa, V-Land., Guðni Þ. Guðmunds- son og Anna Berglind Indriða- dóttir Fróðleg erindi Guðrún Stefánsdóttir, Háskólanum á Hólum, og Guðni Þorvaldsson, LbhÍ, fluttu erindi um liti og lit- brigði íslenska hestsins en þau hafa unnið að verkefni um kerf- isbundna skráningu hinna fjöl- breyttu litbrigða sem kynið býr yfir. Gunnfríður E. Hreiðarsdóttir fjallaði svo um doktorsverkefni sitt við LbhÍ sem miðar að því að rannsaka uppruna íslenska hests- ins. Verkefnið er vel á veg komið og svo virðist sem niðurstöðurnar sýni að uppruni íslenska hestsins geti verið nokkuð fjölbreyttur. Að lokum fjallaði Anton Páll Níelsson reiðkennari um fortamningar, skipulagða undirbúningsvinnu með ungviði sem ætluð er til að und- irbúa það fyrir tamningu. Í máli hans kom fram að slík vinna tæki aðeins örfáar klukkustundir á nokk- urra ára tímabili en margborgaði sig þegar farið væri að frumtemja trippin. Að erindunum loknum fóru fram umræður um málefni hrossa- ræktarinnar. Var það mál manna að ráðstefnan hefði að venju tekist vel og var hún mjög vel sótt, sem end- urspeglar þann mikla áhuga sem finna má á viðfangsefninu. HGG Uppskeruhátíð hestamanna, sem haldin er af Félagi hrossabænda og Landssambandi hestamanna­ félaga, fór fram laugardag 10. nóvember síðastliðinn. Á hátíð­ inni eru veitt verðlaun til þeirra knapa og hrossaræktenda sem þykja hafa skarað fram úr á árinu. Hrossaræktarbúið Fet var útnefnt hrossaræktarbú ársins af fagráði í hrossarækt, en eftirtald­ ir knapar hlutu knapaverðlaun sem veitt eru af nefnd skipaðri fjölmiðlafólki og dómurum: Íþróttaknapi ársins: Þórarinn Eymundsson Gæðingaknapi ársins: Viðar Ing- ólfsson Skeiðknapar ársins: Bergþór Egg- ertsson og Sigurður Sigurðar- son Efnilegasti knapi ársins: Valdimar Bergstað Kynbótaknapi ársins: Þórður Þor- geirsson Þórarinn Eymundsson var síðan útnefndur knapi ársins, en hann hefur átt frábæru gengi að fagna á árinu. Hann varð tvöfald- ur Íslandsmeistari í hestaíþrótt- um, í fimmgangi og tölti, annað árið í röð, varð heimsmeistari í fimmgangi og samanlögðum fimmgangsgreinum, stóð sig vel í skeiðgreinum og varð fyrsti tamn- ingamaðurinn í tæp tuttugu ár til að ná meistaraprófi Félags tamn- ingamanna. Þórarinn er fyrirmynd í íþróttinni og er vel að verðlaun- um kominn. Einnig heiðraði Landssamband hestamannafélaga hjónin Sveinbjörn Sveinbjörnsson og Rögnu Guðmundsdóttur og Bjarn- leif Bjarnleifsson og Lilju Gunnars- dóttur fyrir framlag sitt til félags- mála og hestamennskunnar í land- inu. Heiðursverðlaun valnefndar hlaut Rosmarie B. Þorleifsdóttir, Vestra-Geldingaholti, fyrir áratuga framlag sitt til reiðkennslu og æskulýðsstarfa, en hún var frum- kvöðull á þeim vettvangi og hefur tileinkað líf sitt ungu hestafólki að miklu leyti. Margt góðra gesta var á hátíðinni og uppselt í öll sæti. Ráðherrarnir Árni Mathiesen, Ingi- björg Sólrún Gísladóttir, Einar Kr. Guðfinnsson og Kristján Möller sátu hátíðina og tóku þátt í verð- launaafhendingu. Veislustjóri var Gísli Einarsson og kom hann ríð- andi í hlað eins og vera bar, en hann sló í gegn að venju og gerði grín jafnt að hrossum sem mönn- um. Uppskeruhátíðin nýtur mik- illa vinsælda og í ár tókst hún með eindæmum vel þar sem prúðbúnir hestamenn skemmtu sér fram eftir nóttu. HGG Heimasæturnar í Herríðarhóli tóku við heiðursverðlaunum fyrir Heru og Pétur B. Guðmundsson tók við Glettubikarnum fyrir Löpp frá Hvammi sem stóð hæst heiðursverðlaunahryssna. Með þeim á myndinni er Kristinn Guðnason, formaður fagráðs. Bændablaðsmynd: HGG Fulltrúar allra þeirra ræktunarbúa sem tilnefnd voru til ræktunarverðlauna fagráðs í ár. Bændablaðsmynd: HGG Knapi ársins, Þórarinn Eymundsson, og kona hans, Sigríður Gunnars­ dóttir, kampakát yfir góðum árangri. Þórarinn hampar verðlaunagripn­ um eftirsótta sem ber heitið Alsvinnur. Framlag fólks til félagsmála verður seint ofmetið. Þessi sómahjón, þau Sveinbjörn Sveinbjörnsson og Ragna Guðmundsdóttir og Bjarnleifur Bjarnleifsson og Lilja Gunnarsdóttir, hafa öll unnið mikið og gott starf í þágu hestamennskunnar í gegnum tíðina. Hera og Löpp í heiðursverðlaun Þórarinn knapi ársins Rosmarie B. Þorleifsdóttir í Vestra­Geldingaholti tekur við heiðurs­ verðlaunum fyrir framlag sitt til reiðmennskunnar úr hendi Kristjáns Möller samgönguráðherra.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.