Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.02.2012, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 18.02.2012, Qupperneq 22
18. febrúar 2012 LAUGARDAGUR Umræðan um almenna lækkun hús næðis skulda lands manna heldur áfram. Stjórn völd þykjast hafa lækkað hús næðis skuldir heimilanna um 200 milljarða nú þegar og halda því fram að ekki sé hægt að gera meira. Þetta stenzt hins vegar ekki skoðun. Fyrir til- stilli stjórnvalda hafa húsnæðis- skuldir landsmanna aðeins lækkað um einhverja 30–40 milljarða með ótrú lega flóknum, sér tækum aðgerðum. Lang mesti hluti 200 milljarðanna er kominn til vegna hæstaréttardóms um ólögmæti gengistryggðra lána. Ef eitthvað reyndi ríkisvaldið að hindra, að slíkur úrskurður yrði felldur, lyfti a.m.k. ekki litla fingri til að flýta fyrir honum. Dómurinn hefur hins vegar haft í för með sér, að höfuðstóll gengis- tryggðra húsnæðisskulda hefur lækkað umtalsvert. Á sama tíma hefur höfuðstóll verðtryggðra skulda hækkað stjórnlaust. Það er ekki mikill jöfnuður í því. Forsætisráðherra og grátkór lífeyrissjóðanna eru óspör á að segja, að það sé óðs manns æði að fara í almenna 20% skulda- leiðréttingu. Stjórnvöld yrðu talin skaðabótaskyld nema sam- þykki allra kröfuhafa eða lán- veitenda fengist, sem verður að teljast ólíklegt. Verðmiðinn sé um 200 milljarðar miðað við, að húsnæðisskuldirnar séu 1.000 milljarðar. Almenningi er svo talin trú um, að ríkissjóður/ skattgreiðendur verði að greiða þennan kostnað, nánast sama dag og leiðrétting eigi sér stað. Menn virðast ekki átta sig á því, að heildarupphæð húsnæðis- lána er bókfært virði (væntingar um endurgreiðslu) þeirra miðað við, að þær innheimtist að fullu á 25–40 ára lánstíma. Er það lík- legt? Þúsundir heimila ráða illa við að greiða af stökk breyttum, verðtryggðum húsnæðislánum og því sennilegt, að mikil afföll verði á virði lánasafnsins á næstu árum. Með því að lækka höfuðstól lánanna um 10–15%, gæti innheimtan orðið öruggari, greiðsluviljinn meiri, og lána- stofnanir myndu innheimta hærra hlutfall skuldanna en ella. Ef til vill meira en sem nemur höfuðstólslækkuninni. Hér er varpað fram þeirri hugmynd að breyta lánskjara- vísitölunni með einfaldri aðgerð, það er að hreinsa burt allar inn- lendar skattbreytingar og önnur álíka ósanngjörn áhrif og nota framvirkt veldismeðaltal vísi- tölunnar til að draga úr miklum sveiflum á henni. Það er ef til vill ekki óeðlilegt, að lánskjör Íslendinga versni við að kaffi hækki í Brazilíu. Það gildir hins vegar ekki, þegar ríkið hækkar virðisaukaskatt skyndilega um 1%, eykur tekjuskatt eða álögur á áfenga drykki og benzín. Á sama hátt geta sparifjár- eigendur ekki ætlazt til að banka inni stæður þeirra hækki af þeim sökum. Tökum dæmi frá stóru nágrannalandi okkar, Þýzkalandi. Þar var virðis- aukaskattur hækkaður um heil 3% fyrir nokkrum árum, úr 16 í 19%, til að rétta af fjár- hag ríkisins. Við það hækkaði verðlag í Þýzkalandi. Skyldi einhverjum þýzkum sparifjár- eiganda hafa látið sér detta í hug að heimta hlutfallslega hækkun á bankainnistæðu sinni af þeim sökum eða lánastofnunum að hækka húsnæðislán? Hefði vísitala með ofan- greindum formerkjum verið innleidd á Íslandi 1995 í stað hrárrar neyzluvísitölu, væri hún núna um 20% lægri en nú- verandi lánskjaravísitala. Réttlát breyting á vísitölunni þyrfti að vera afturvirk til 1. september 2008, en ef það kynni að skapa ríkinu skaðabótaskyldu er betra en ekki að breyta vísitölunni strax framvirkt til að koma í veg fyrir, að almenningur verði með öllu eignalaus eftir nokkur ár. Með þessari aðgerð er hægt að lækka húsnæðisskuldirnar framvirkt án skaðabótaskyldu fyrir ríkið. Að sjálfsögðu munu verðtryggðar innistæður lækka að sama skapi sem er eðlilegt. Þetta gæti ef til vill orðið grund- völlur sátta í þjóðfélaginu. Taka verður undir með Jóhönnu, að bezta lausnin er sú að skipta um gjaldmiðil, taka upp evru. Sú lausn mun hins vegar taka allt of langan tíma. Heimilin verða öll komin á hausinn áður, ef ekkert verður aðhafzt nú þegar. Ríkisstjórn Steingríms Her- mannssonar ákvað 1983 að afnema vísitölutengingu launa til að reyna að koma böndum á verð bólguna sem þá grasseraði. Næstu ár á eftir fundu laun þegar áþreifanlega fyrir því. Verð- tryggður höfuðstóll húsnæðis- lána jókst hratt í 30% verðbólgu, en launin stóðu nánast í stað. Sigtúnshópurinn svokallaði, en Ögmundur Jónasson, núverandi innanríkisráðherra, var aðal- talsmaður hans, vakti óspart athygli á þessu óréttlæti. Full- trúar launþega í verkalýðshreyf- ingunni tóku undir það, andstætt því sem nú gerist. Það leiddi til þess, að lánskjaravísitölunni var breytt með lögum í janúar 1989 og launavísitala reiknuð inn í hana að einum þriðja. Þetta dró verulega úr hækkun verð- tryggðra skulda landsmanna á næstu mánuðum og misserum. Tvö fjármálafyrirtæki fóru í mál og kröfðust þess að verðtryggð skuldabréf sem þau áttu skyldu greidd samkvæmt gömlu vísi- tölunni og báru fyrir sig eignar- rétt skv. stjórnarskrá. Viðskipta- ráðherra hefði ekki haft vald til að breyta vísitölugrunni verð- tryggingar skuldanna. Ríkið vann málin á báðum dóms stigum. Taldi Hæstiréttur að ríkis- valdið hefði sett verðtryggingu á með lögum og hefði því rétt til þess að breyta vísitölunni með þeim hætti sem var gert. Þess vegna var ekkert aðhafzt, þegar lánskjaravísitölunni var breytt aftur 1995, en á ný voru það helztu forvígismenn launþega- samtaka sem kröfðust þessa. Þeir töldu að vísitalan frá 1989 væri orðin of óhagstæð fyrir launafólk. Það vekur því nokkra athygli, að 2012 berjast forsvarsmenn launþega hvað harðast gegn því að milda áhrif vísi tölunnar. Lánskjaravísitalan, sem nú er í gildi, er óskadraumur fjár- magnseigenda. Hún mælir allar breytingar sem geta valdið hækkun hennar þeim í hag, hvort sem einhver rök eða skyn- semi eru fyrir því. Hagsmunir skuldara eru hins vegar fyrir borð bornir. Lækkun húsnæðisskulda Fjármál Júlíus Sólnes fv. umhverfisráðherra Sími: 561 1433 Austurströnd 14 Hringbraut 35 Fálkagötu 18 Lönguhlíð góðar ástæður til að heimsækja ...okkur 3 mánudaga-föstudaga...........7.30 -17.30 laugardaga.........................8.00 -16.00 KONUDAGUR....................8.00 -18.00 BOLLUDAGUR....................7.30 -18.30 B O LLU R Á B O LLU D A G IN N U R Á UU D U D U D G A G A G A G INININ NNN B R A U Ð O G R Ú N STY K K I A LLA D A G A B R A U Ð O G R Ú N S A L A L A LLALALA DDD G A G A G A G AAA B O LLU O B O B O B O LLLLLLUUUU STY K K I K A K A Á R SIN S 2 0 1 2 Á K O N U D A G IN N PREN TU N .IS Sigurjón M. Egilsson stýrir Sprengisandi á sunnudags morgnum kl. 10–12 Sprengisandur kraftmikill þjóðmálaþáttur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.