Fréttablaðið - 18.02.2012, Side 104

Fréttablaðið - 18.02.2012, Side 104
18. febrúar 2012 LAUGARDAGUR72 sport@frettabladid.is KRISTINN ÓSKARSSON dæmir sinn tólfta bikarúrslitaleik í dag þegar hann flautar bikarúrslitaleik kvenna með Georgi Andersen (annar bikarúrslitaleikur). Kristinn hefur dæmt níu karlaleiki og tvo kvennaleiki. Sigmundur Már Herbertsson dæmir karlaleikinn ásamt Rögnvaldi Hreiðarssyni og Einari Þór Skarphéðinssyni en þetta er níundi bikarúrslitaleikur Sigmundar (sex karlaleikir) og sá áttundi hjá Rögnvaldi (fjórir karlaleikir). Einar er að dæma sinn fyrsta bikarúrslitaleik hjá körlunum. KÖRFUBOLTI Karlalið Keflavíkur sker sig svo sannarlega úr meðal þeirra fjögurra liða sem spila til úrslita um Poweradebikarinn í Laugardalshöllinni í dag. Keflvíkingar hafa unnið bikarinn fimm sinnum en þá til- finningu þekkja hin lið þrjú hins vegar ekki. Þetta verður jafnframt fyrsti bikarúrslita- dagurinn í 18 ár sem höfuðborgarsvæðið á engan fulltrúa. Leikur Njarðvíkur og Snæ- fells í kvennaflokki hefst klukkan 13.30 en karlaleikur Keflavíkur og Tindastóls hefst síðan klukkan 16.00. Keflvíkingar eru mun ofar í töflunni og sigur stranglegri í karlaleiknum í dag. Stólarnir geta horft til Stjörnumanna sem fóru í Höllina í fyrsta sinn fyrir þremur árum og urðu þá bikarmeistarar eftir mjög óvæntan sigur á afar vel mönnuðu KR-liði. Sigurganga Sigurðar Sigurður Ingimundarson, þjálfari Kefla- víkur, á nú frábæran möguleika á því að bæta enn einum titlinum í verðlaunasafnið hjá sér en Keflavík varð bikarmeistari undir hans stjórn 1997 og 2003. Bárður Eyþórsson, þjálfari Tindastóls, er mættur með þriðja félagið í Höllina en þangað fóru einnig á sínum tíma Snæ- fellingar (2003) og Fjölnismenn (2008) undir hans stjórn. Bárður á enn eftir að vinna stóran titil (Íslands- eða bikarmeistaratitil) sem þjálfari en tvö af fjórum silfrum hans hafa komið eftir töp á móti liðum undir stjórn Sigurðar Ingimundarsonar. Endurtekning frá 1999? Tindastóll hefur aldrei komist í bikarúrslita- leikinn áður en Stólarnir unnu sinn eina titil í nóvember 1999 þegar þeir unnu Keflavík í úrslitaleik Eggjabikarsins. Svavar Birgisson og Helgi Freyr Margeirsson eru einu leik- menn Tindastóls í dag sem spiluðu þennan leik í Smáranum fyrir rúmum tólf árum. Magnús Þór Gunnarsson, fyrirliði Kefla- víkur, er reynslumesti leikmaðurinn í dag en hann er að fara spila sinn fjórða bikarúrslita- leik. Halldór Örn Halldórsson og Gunnar H. Stefánsson voru einnig með þegar Keflavík vann bikarinn síðast fyrir átta árum. Þröstur Leó Jóhannsson, leikmaður Tindastóls, var með Keflavík í síðasta bikarúrslitaleik félagsins sem tapaðist árið 2006. Enginn Tindastólsmaður hefur unnið bikarinn en Friðrik Hreinsson tapaði bikarúrslitaleiknum með Hamar/Selfoss árið 2007. Nýtt nafn á bikarinn Njarðvík og Snæfell keppa um það í dag að verða áttunda félagið sem vinnur bikar- meistara titilinn í kvennaflokki en Njarðvík er sigurstranglegra enda mun ofar í töflunni og þegar búið að slá út bæði Keflavík og Hauka. Njarðvík hefur tapað fyrstu þremur bikarúrslitaleikjum sínum en Snæfell er komið í Höllina í fyrsta sinn. Aðeins 3 af 8 liðum hafa unnið bikarinn í fyrstu tilraun en það gerðist síðast þegar Haukar unnu í bikar- úrslitaleiknum 1984. Hinir gullnu nýliðarnir eru ÍS (1978) og Þór (fyrsti leikurinn 1975). Njarðvík lék síðast til úrslita fyrir tíu árum en tapaði þá fyrir KR í framlengdum leik. Hildur Sigurðardóttir, núverandi leikmaður Snæfells, varð þá bikarmeistari í fyrsta sinn á ferlinum en hún lyfti einnig bikarnum sem fyrirliði KR fyrir þremur árum. Njarðvíkingarnir Ólöf Helga Pálsdóttir og Petrúnella Skúladóttir urðu bikar meistarar saman með Grindavík fyrir fjórum árum og eru einu leikmenn Njarðvíkurliðsins sem þekkja það að fara í Höllina. Hildur og Alda Leif Jónsdóttir hafa eina reynslu af bikar- úrslitaleikjum í Snæfellsliðinu en Alda Leif á möguleika að verða bikarmeistari með þriðja félaginu. Ef litið er á innbyrðisleiki vetrarins er ekki hægt að sjá fyrir annað en að karlalið Kefla- víkur og kvennalið Njarðvíkur tryggi sér bikarmeistaratitilinn í dag. Keflavík hefur unnið báða leikina við Tindastól (með 9 og 19 stigum) og Njarðvíkurkonur hafa unnið alla þrjá leiki sína við Snæfell þar af þann síðasta með 24 stigum. Tindastóll og Njarðvík Fréttablaðið fékk fimm leikmenn úr deildunum til að spá fyrir um úrslit leikj- anna í dag. Atkvæðin skiptust meira í karla- leiknum því aðeins einn af fimm spámönnum kvennamegin er á því að Snæfellskonur vinni í fyrstu tilraun. Tindastóll fékk þrjú atkvæði gegn tveimur karlamegin. Það er hægt að sjá spárnar hér til hliðar. ooj@frettabladid.is FERSKIR VINDAR UM HÖLLINA Þrjú af fjórum félögum í bikarúrslitaleikjunum í ár hafa ekki unnið bikarinn og karlalið Tindastóls og kvennalið Snæfells spila bæði sinn fyrsta bikarúrslitaleik í Höllinni í dag. Spámenn og konur úr Iceland Express deildunum eru á því að Tindastóll og Njarðvík fagni sigri í úrslitaleikjum Poweradebikarsins. NJARÐVÍK-SNÆFELL HJÁ KONUNUM Hildur Sigurðar- dóttir hjá Snæfelli og Ólöf Helga Pálsdóttir hjá Njarðvík með bikarinn. KEFLAVÍK-TINDASTÓLL HJÁ KÖRLUNUM Helgi Rafn Viggósson hjá Tindastól og Magnús Þór Gunnarsson hjá Keflavík með bikarinn. MYND/JÓN BJÖRN ÓLAFSSON Hver vinnur hjá körlunum? Fréttablaðið fékk leikmenn úr fimm efstu liðunum í Iceland Express-deild karla (fyrir utan bikarúrslitaliðin) til að spá fyrir um úrslit í bikarúrslitaleik karla í dag og að spá fyrir um hvaða leik- maður verði kosinn maður leiksins. Páll Axel Vilbergsson, Grindavík Keflavík með 10 stigum Maður leiksins: Jaryd Cole, Keflavík Hreggviður Magnússon, KR Tindastóll með 2 stigum ML: Curtis Allen, Tindastóli Fannar Freyr Helgason, Stjörnunni Tindastóll með 5-10 stigum ML: Curtis Allen, Tindastóli Darri Hilmarsson, Þór Þorláks- höfn Keflavík með 3 stigum ML: Magnús Þór Gunnarsson, Keflavík Pálmi Freyr Sigurgeirsson, Snæfelli Tindastóll með 5 stigum ML: Maurice Miller, Tindastóli Hver vinnur hjá konunum? Fréttablaðið fékk leikmenn úr fimm efstu liðunum í Iceland Express-deild kvenna(fyrir utan bikarúrslitaliðin) til að spá fyrir um úrslit í bikarúrslitaleik kvenna í dag og að spá fyrir um hvaða leikmaður verði kosinn kona leiksins. Pálína Gunnlaugsdóttir, Keflavík Njarðvík með 3 stigum eftir framleng. Kona leiksins: Baker-Brice, Njarðvík Íris Sverrisdóttir, Haukum Njarðvík með 8 stigum KL: Petrúnella Skúladóttir, Njarðvík Margrét Kara Sturlu- dóttir, KR Njarðvík með 7 stigum KL: Shanae Baker-Brice, Njarðvík Signý Hermannsdóttir, Val Njarðvík með 3-5 stigum KL: Shanae Baker-Brice, Njarðvík Fanney Lind Guðmundsdóttir, Hamar Snæfell með 2-3 stigum KL: Hildur Sigurðardóttir, Snæfelli HANDBOLTI Þrátt fyrir að Alexander Petersson sé nú að glíma við þrálát og erfið meiðsli í öxl eru forráðamenn þýska úrvalsdeildarfélagsins Füchse Berlin vongóðir um að hann muni spila með liðinu á ný innan fjögurra vikna. Alexander hefur ekki kastað handbolta síðan í leik Íslands og Slóveníu á EM í handbolta í síðasta mánuði. „Það er alveg ljóst að Alexander mun spila með Füchse Berlin áður en tíma- bilinu lýkur,“ sagði framkvæmdastjór- inn Bob Hanning í samtali við Frétta- blaðið eftir leik liðsins gegn Magdeburg í Berlín í vikunni. „Við gerum ráð fyrir því að hann komi aftur inn í liðið á næstu fjórum vikum.“ Alexander er með sýkingu í sinum í öxlinni sem og óeðlilegan beinvöxt. Læknum hefur ekki borið saman um hvort laga þurfi það með aðgerð en þeir sem Füchse Berlin hefur rætt við full- yrða að hann þurfi ekki aðgerð. „Það er álit okkar læknis sem og virts sérfræðings frá Bonn sem við leituðum til. Öxlin er orðin betri hjá honum og hann mun geta spilað á ný án þess að fara í aðgerð,“ sagði Hanning. Alexander sjálfur sagði við Fréttablaðið í viðtali sem birtist síðastliðinn fimmtudag að þar að auki væri verið að ráðfæra sig við lækna Flensburg, hans gamla félags, sem og lækna Rhein-Neckar Löwen sem hann gengur til liðs við í sumar. En Hanning stendur fast á því að hann þurfi ekki aðgerð. „Það er niðurstaða okkar og við erum auðvitað ánægðir með það. Við erum þess mjög vongóðir að hann geti spilað fljót- lega með okkur á ný.“ - esá Framkvæmdarstjóri Füchse Berlín um bata Alexanders: Engin aðgerð og spilar innan fjögurra vikna ALEXANDER PETERSSON Ætti að geta verið með í næstu verkefnum landsliðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Ertu flugklár í tölum? Vegna aukinna umsvifa leitar Iceland Express eftir starfskrafti í tekjustýringu og áætlanagerð. Um er að ræða krefjandi starf hjá framsæknu fyrirtæki með skemmtilegan starfsanda. Starfið felur í sér náin samskipti við sölufólk, verðstýr- ingu, vinnu við flugáætlun og flest það sem viðkemur rekstri flugfélags. F í t o n / S Í A Hæfnis- og menntunarkröfur Háskólamenntun á sviði verkfræði, viðskipta eða sambærilegt nám Skipulögð og öguð vinnubrögð Vandvirkni, nákvæmni, góð yfirsýn og sjálfstæði í vinnubrögðum Reynsla úr sambærilegu starfi æskileg Góð tölvukunnátta og reynsla af Excel Umsóknir sendist á job@icelandexpress.is fyrir 25. febrúar, merkt „Tekjustýring“. SJÓNVARP Fjölmargar beinar útsendingar verða að venju í sjón- varpinu um helgina en þetta er bikarhelgi bæði í enska boltanum og í körfunni. -óój Í beinni í dag Enski bikarinn Chelsea – Birmingham S2 Sport 12.20 Everton - Blackburn S2 Sport 14.45 Sunderland – Arsenal S2 Sport 17.00 Spænski fótboltinn Real Madrid-Racing Santander S2 Sport 18.50 Bikarúrslit körfuboltans Konur: Njarðvík-Snæfell Sjónvarpið 13.10 Karlar: Keflavík-Tindastóll Sjónvarpið 15.40 Í beinni á morgun: Enski bikarinn Crawley-Stoke S2 Sport 11.50 Stevenage - Tottenham S2 Sport 13.50 Liverpool-Brighton S2 Sport 16.20 Spænski fótboltinn Barcelona - Valencia S2 Sport 20.20 Sjónvarpið um helgina: Bikarhelgi í enska boltanum ENGINN HENRY Sunderland og Arsenal mætast aðra helgina í röð en nú er Arsenal án Thierry Henry. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.