Fréttablaðið - 29.03.2012, Side 54

Fréttablaðið - 29.03.2012, Side 54
29. mars 2012 FIMMTUDAGUR34 HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Fimmtudagur 29. mars 2012 ➜ Gjörningar 17.00 Rúrí flytur gjörninginn Vocal VI á Listasafni Íslands í salarkynnum safnsins að Fríkirkjuvegi 7. Er þetta í fyrsta sinn sem verkið verður flutt á Íslandi, en það var frumflutt í Ars Electronica Center í Linz, Austurríki, í haust. ➜ Sýningar 17.00 Ívar Valgarðsson opnar sýningu sína Power Lines í i8 Gallery. ➜ Hönnun Og Tíska 18.00 Nemendur annars árs í fatahönnun við Listaháskóla Íslands sýna afrakstur 5 vikna námskeiðs á tískusýningu í skemmu BRIM Seafood að Geirsgötu 11. Tískusýningin er hluti af Reykjavík Fashion Festival. ➜ Fræðslufundir 16.00 Gíslný Bára Þórðardóttir, þroska- þjálfi hjá Stoð, talar á opnum fræðslu- fundi Stoðar hf í hjálpartækjasal þeirra að Trönuhrauni 8. Fundurinn ber yfir- skriftina Brjóstgæði. ➜ Kvikmyndir 17.00 Konfúsíusarstofnunin sýnir þriðja hluta heimildaþríleiksins Kína: Byltinga- öldin (China: A Century of Revolution) í stofu 101 í Odda, húsi Háskóla Íslands. Allir velkomnir og aðgangur ókeypis. ➜ Tónlist 20.00 Rússnesk söngveisla verður í Salnum, Kópavogi. Þóra Einarsdóttir, Nathalía Druzin Halldórsdóttir, Gunnar Guðbjörnsson og Nína Margrét Gríms- dóttir flytja perlur úr rússneskum tón- bókmenntum. 20.00 Ungfónían, Sinfóníuhljómsveit unga fólksins, heldur tónleika í Nes- kirkju. Efnisskráin er viðamikil og meðal annars verður frumflutt nýtt verk eftir Halldór Smárason. 21.00 Þýski raftónlistarmaðurinn Whale v/s Elephant spilar á Græna Hattinum. Miðaverð er kr. 1.500. 21.00 Blúsbandið Smiðjan og Þorleifur spila á Café Rosenberg. 22.00 Hljómsveitirnar Kiriyama Family, Nolo og M-Band standa fyrir electro- popp tónleikaveislu á Gauk á Stöng. Aðgangseyrir er kr. 1.000 og 20 ára aldurstakmark. 22.00 Stefán Karl Stefánsson leikari og söngvari verður gestur Bítladrengjanna blíðu á Ob-La-Dí Ob-La-Da. Aðgangs- eyrir er kr. 1.000. 22.00 Low Roar og Snorri Helgason spila ásamt hljómsveitinni Pikknikk, sem er skipuð Steina úr Hjálmum og Siggu Eyþórs, á Faktory. Miðaverð er kr. 1.000. ➜ Listamannaspjall 20.00 Guðrún Pálína Guðmundsdóttir talar á listamannaspjalli í Flóru, Lista- gilinu á Akureyri. Spjallið er í tengslum við sýningu hennar þar, sem kallast Faðirinn. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is ...alltaf opið! Í 10–11 finnurðu frábært vöruúrval. Þú færð svalandi og ferska ávaxtasafa frá Capri-Sonne í næstu 10–11 verslun. Capri-Sonne Náttúrulegt fjör Smásagan Eins og í sögu eftir Ragnheiði Gestsdóttur verður frumflutt fyrir alla grunnskóla landsins í dag. „Þetta er svo einföld hugmynd að í rauninni er eins og hún hafi alltaf verið til, þótt hún hafi ekki komið fram fyrr en í fyrra,“ segir Arndís Þórarinsdóttir, formaður Íslands- deildar IBBY (The International Board on Books for Young People), alþjóðlegra samtaka sem starfa í sjötíu löndum og hafa meðal annars að markmiði að miðla skilningi milli þjóða heims með barna- bókum og gefa börnum hvar sem er í heiminum tækifæri til að njóta góðra bóka. Samtökin standa í dag í annað sinn fyrir frumflutningi nýrrar, íslenskrar smásögu í öllum grunnskólum landsins sam tímis. Smásagan heitir Eins og í sögu og les höfundurinn, Ragnheiður Gestsdóttir, hana jafnframt upp á Rás 1 í sömu andrá, klukkan 9.45, svo öll þjóðin geti lagt við hlustir. Með þessu framtaki fagnar IBBY degi barnabókarinnar sem haldinn verður hátíðlegur mánu daginn 2. apríl, en þá verða grunnskólabörn komin í páskafrí. Á síðasta ári var það Hörpuslag, smásaga Kristínar Helgu Gunnars- dóttur, sem lesin var í skólum og í útvarpi og telur Arndís afar vel hafa tekist til. „Það var mikil ánægja með framtakið og rosalega gaman að sjá hvernig skólarnir unnu þetta hver á sinn hátt. Til að mynda var sögunni útvarpað í kallkerfi sundlaugar á Akureyri þar sem nemendur voru í skóla- sundi. Í sumum skólum var öllum safnað saman á sal til að hlusta, aðrir hlustuðu á bóka safninu, í dönskutíma eða hvar sem þeir voru staddir. Það er gaman að hugsa sér alla þessa einstaklinga sem hlusta á sömu söguna á sama tíma. Stundum er talað um að höfundar og lesendur sameinist í hugsana- flutningi við lestur skáldskapar, og í þessu tilfelli er þessi sam eining á mun stærri skala,“ segir Arn- dís, en samhliða lestri sögunnar í útvarpi hefur höfundurinn Ragn- heiður Gestsdóttir unnið kennslu- leiðbeiningar þar sem velt er upp umræðupunktum sem henta hverju skólastigi. „Sama sagan er lesin upp fyrir nemendur á aldrinum sex til sextán ára svo hún virkar á nokkrum sviðum. Í fyrra fréttum við af því að líflegar og skemmti- legar umræður hefðu sprottið upp víða í kjölfar lestursins.“ Þegar Kristín Helga las sína sögu í fyrra var hún handhafi Sögu- steins, barnabókaverðlauna IBBY á Íslandi, og það sama á nú við um Ragnheiði Gestsdóttur. „Það á vel við að handhafi Sögusteins semji smásöguna sem er lesin upp, en reyndar eru verðlaunin einungis afhent á tveggja ára fresti. Það verður því einhver óvæntur sem semur söguna annað hvert ár,“ segir Arndís. kjartan@frettabladid.is Grunnskólarnir hlusta UPPLESTUR Arndís Þórarinsdóttir, formaður IBBY á Íslandi, segir fjörugar umræður hafa skapast í kringum upplestur smásögu Kristínar Helgu Gunnarsdóttur á síðasta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.