Prentarinn - 01.03.2000, Blaðsíða 9

Prentarinn - 01.03.2000, Blaðsíða 9
ÁRITVN ENDURSKOÐENDA Við höfum endurskoðað ársreikning Félags bókagerðarmanna og sjóði í vörslu þess fyrir árið 1999. Ársreikningurinn hefur að geyma reksirarreikninga, efnahagsreikninga og sjóðstreymi ásamt skýringum og sundurliðunum nr. 1 - 28. Endurskoðað var í samræmi við góða endurskoðunarvenju. Samkvæmt því ber okkur að skipuleggja og haga endurskoðuninni þannig að nægjanleg vissa fáist um að ársreikningurinn sé í aðalatriðum án annmarka. Endurskoðunin felur í sér athuganir á gögnum mcð úrtakskönnunum til að sannreyna Qárhæðir og upplýsingar sem koma fram í ársreikningnum. Endurskoðunin felur einnig í sér athugun á þeim reikningsskilaaðferðum og matsreglum sem notaðar eru við gerð ársreikningsins og mat á framsetningu hans í heild. Við teljum að endurskoðunin sé nægjanlega traustur grunnur til að byggja álit okkar á. Það er álit okkar að ársrcikningurinn gefi glögga mynd af rekstri félagsins og sjóða þess á árinu 1999, efnahag 31. desember 1999 og breytingu á handbæru fé á árinu 1999 í samræmi við lög félagsins og góða reikningsskilavenju. Reykjavík, 6. mars 2000. DFK Endurskoðun ar M. Erlingsson(r) löggiltur endurskoðandi. ÁRITUN FÉLAGSKJÖRINNA ENDURSKOÐENDA Við undirritaðir, félagskjömir endurskoðendur Félags bókagcrðarmanna, höfum yfirfarið ársreikning félagsins fyrir árið 1999 og leggjum til að hann verði samþykktur. Reykjavík, 6. mars 2000. 1 STJÓRN OC TRÚNAÐARRÁÐ Eins og lög félagsins mæla fyr- ir um sér stjómin um rekstur fé- lagsins milli aðalfunda. Eftir aðal- fund 1999 skipti stjóm þannig með sér verkum að varaformaður er Georg Páll Skúlason, ritari Pét- ur Agústsson, gjaldkeri Olafur Öm Jónsson og meðstjómendur þeir Bragi Guðmundsson, Ólafur Emilsson og Þorkell S. Hilmars- son. Varastjóm skipa þau Vigdís Ósk Sigurjónsdóttir, Stella F. Sig- urðardóttir, Stefán Ólafsson og Bjöm Guðnason. Bjargey Gísla- dóttir fór til annarra starfa á kjör- tímabilinu og sagði af sér í stjóm og tók Ólafur Emilsson sæti hennar í aðalstjóm. Formaður er Sæmundur Amason. Frá síðasta aðalfundi hefur stjómin haldið 24 stjómarfundi þar sem tekin hafa verið fyrir fjölmörg mál og málaflokkar. Eins og nærri má geta er hér um að ræða mál sem þarfnast mis- mikillar umfjöllunar allt frá því að vera einföld afgreiðslumál til stærri og viðameiri mála, sem þá gjaman em tekin fyrir á fleiri en einum fundi sem er æskilegt og nauðsynlegt þegar um mikilvæg og vandmeðfarin mál er að ræða. Reglulegir stjómarfundir em haldnir hálfsmánaðarlega, og oft- ar ef þörf krefur. TRÚNAÐARRÁÐ Eftirtaldir félagsmenn skipa trúnaðarráð FBM til 31. október 2000. Aðalmenn: Anna Helgadóttir, Gutenberg, Burkni Aðalsteinsson, Leturprenti, Hallgrímur Helgason, ísafold, Heiðar Már Guðnason, Morgunblaðinu, Helgi Jón Jóns- son, Graffk, Hinrik Stefánsson, Odda, Ingibjörg Jóhannsdóttir, Flatey, Marinó Önundarson, Guð- jónÓ, Ólafur Emilsson, skrifstofu FBM, Ólafur H. Theódórsson, Miðaprentun, Páll Heimir Páls- son, Ásprenti/POB, Páll R. Páls- son, Odda, Páll Svansson, Frjálsri fjölmiðlun, Sigríður St. Björg- vinsdóttir, Offsetþjónustunni, Sig- urður Valgeirsson, Grafík, Stefán Ólafsson, Morgunblaðinu, Stefán Sveinbjömsson, Prentmeti og Tryggvi Þór Aðalsteinsson, Plast- prenti. Varamenn: Jón K. Ólafsson, Morgunblaðinu, Sigrún Karlsdótt- ir, Odda, Jón Ól. Sigfússon, Ás- prenti/POB, Svanur Jóhannesson og Guðrún Guðnadóttir. Óskar Hrafnkelsson baðst und- an setu í trúnaðarráði og sagði af sér á starfsárinu. Frá síðasta aðalfundi hafa verið haldnir 6 fundir í trúnaðarráði þar sem fjallað hefur verið um ýmis mál félagsins. KOSNING FORMANNS OG STJÓRNAR Framboðsfrestur til formanns- kjörs rann út 7. janúar. Aðeins eitt framboð barst og er því núverandi fonnaður Sæmundur Ámason sjálfkjörinn til næstu tveggja ára. Framboðsfrestur til stjómar- kjörs fyrir kjörtímabilið 2000-2002 rann út þann 8. febrú- ar. Að þessu sinni barst aðeins einn listi og var því sjálfkjörið. PRENTARINN ■ 9

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.