Prentarinn - 01.03.2000, Blaðsíða 19

Prentarinn - 01.03.2000, Blaðsíða 19
Félagarnir fyrir norðan Þann 20. janúar s.l. var haldinn félagsfundur á Akureyri með Sæ- mundi Amasyni formanni og Ge- org Páli Skúlasyni varaformanni FBM. Tíðindamaður Prentarans fékk að slást með í för. Þegar við komum til Akureyrar um hádeg- isbil mætti okkur sól og sumar- blíða. Þeir félagar Sæmundur og Georg tóku strax til óspilltra mál- anna enda ýmsu að sinna. A meðan notaði undirritaður tímann og rölti á milli fyrirtækja í bæn- um og spjallaði við fólk og tók nokkrar myndir. Það var á mönn- um að heyra að nóg væri að gera og atvinnuástand gott. Þegar spurt var um hug manna til fé- lagsins var ekki annað að heyra en þeir væru almennt ánægðir en nokkrir vildu koma því á fram- færi hvort ekki væri hægt að at- huga með orlofsíbúð fyrir sunn- an. Því má skjóta inní, að eins og Akureyringar vita þá var samstarf milli FBM og verkalýðsfélags Akureyri Húsavíkur um orlofsíbúð í Reykjavík en þetta samstarf hefur ekki gengið nógu vel undanfarið vegna ásóknar í íbúðina og verið er að leita annarra leiða til úr- bóta. Fundurinn hófst svo klukkan 4 í veitingahúsinu Greifanum. Fé- lagar FBM á Akureyri munu vera um 60 og var mæting mjög góð eða yfir 50%, nokkuð sem við sunnanmenn mættum taka okkur til fyrirmyndar. A dagskrá fund- arins voru tvö mál, annars vegar kröfur í komandi samningum og lýsti Sæmundur formaður þeim. Eftir fundarhlé hélt Georg svo tölu um nýsameinaðan margmiðl- unarskóla Prenttæknistofnunar og Rafiðnaðarskólans. Síðan voru umræður um önnur mál. Eftir góða tvo tíma var fundi slitið. Um leið og við félagar þökkum Akureyringum góðar viðtökur er ekki úr vegi að líta á nokkrar myndir. Menntamálin Fimmtudaginn 23. janúar sl. var Margmiðlunarskólinn opnaður með pomp og prakt. Guðbrandur Magnússon formaður stjómar skólans og Bjöm Bjamason menntamálaráðherra fluttu ávörp við opnunina. Frá fyrsta degi skólans er honum tekið fagnandi og aðsókn að námi sem er í boði er framar öllum vonum. 120 nemendur hófu nám á fyrstu önn skólans, en það em fleiri en sam- Opnun Mangmiölun arskólans anlagt var í margmiðlunamámi því sem Rafiðnaðarskólinn og Prenttæknistofnun buðu áður, og er þá ekki talinn með fjöldi nem- enda á styttri námskeiðum. Eins og áður hefur komið fram er skólinn í eigu Prenttæknistofnun- ar og Rafiðnaðarskólans. Prent- tæknistofhun hefur jafnframt flutt sig um set af Hallveigarstíg 1 í Faxafen 10 þar sem skólinn er til húsa. Frá vinstri: Anna Melsted, Guðbrandur Magnússon og Jón Ámi Rúnarsson skólastjóri skólans. PRENTARINN ■ 19

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.