Fréttatíminn - 04.10.2013, Page 2
Jólaferð til Parísar
5. - 8. desember
Fararstjóri: Laufey Helgadóttir
Verð: 109.900 kr.
á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið!
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Komdu með í skemmtilega jólaferð
til Parísar, ljósadýrð aðventunnar
er töfrandi á þessum tíma og mikil
jólastemning er um alla borg.
Lokaátak Sýrlandssöfnunar
Doktorsnem-
ar eru með
leiðbeinanda
og hann þarf
að uppfylla
ákveðnar
kröfur, hann
á að vera
sérfræðingur
á alþjóðavísu
í því efni sem
nemandinn
er að skrifa
um og
hafa birt
greinar um
það sama í
ritrýndum
tímaritum
þar sem
gerðar eru
miklar kröfur
Þ essi doktorsnemi titlar sig sem prófessor og doktor og er í tengslum við alls kyns aðila og stofnanir.
Hann er að skreyta sig með alls konar
hlutum og hann heldur úti nokkrum síðum
þar sem kemur fram að hann selji dokt-
orsgráður og ritgerðir sem og listaverk
eftir Picasso. Trúverðugleikinn hans sem
doktorsnemi er þess vegna enginn,“ segir
Friðrik Eysteinsson, fyrrverandi aðjúnkt
við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.
Daði Már Kristófersson, forseti Félags-
vísindasviðs staðfestir í samtali við Frétta-
tímann að Háskóli Íslands rannsaki nú mál
umrædds doktorsnema.
Friðrik hefur gagnrýnt Viðskiptafræði-
deild harðlega í fjölmiðlum undanfarið og
telur vinnubröð deildarinnar afar slök.
„Doktorsnemar eru með leiðbeinanda
og hann þarf að uppfylla ákveðnar kröfur,
hann á að vera sérfræðingur á alþjóðavísu í
því efni sem nemandinn er að skrifa um og
hafa birt greinar um það sama í ritrýndum
tímaritum þar sem gerðar eru miklar kröf-
ur,“ segir Friðrik og telur að mjög mikið
vanti uppá að farið sé eftir slíkum reglum í
Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. „Þú
ert með doktorsnema sem getur komist í
gegnum námið án þess að vera nokkurn
tímann stoppaður af,“ segir Friðrik.
Friðrik Eysteinsson telur að í mörgum
tilfellum hafi leiðbeinendur ekki staðist
kröfur um hæfi til að leiðbeina doktors-
nemum við deildina þrátt fyrir að meira en
ár sé liðið frá því að athygli var vakin á því
við stjórn deildarinnar.
Samkvæmt frétt sem birtist í DV í
vikunni kom fram að doktor við deildina
hafi sagt sig úr doktorsnámsdeild vegna
þess að hann taldi að ekki væri farið eftir
reglum en sá sami kaus að tjá sig ekki um
málið frekar í fjölmiðlum. Ingjaldur Hanni-
balsson prófessor og deildarforseti Við-
skiptafræðideildar segir það miður að svo
skyldi fara en að allar ábendingar um hvað
betur megi fara séu teknar til skoðunar, að
hvað varðar þetta tiltekna atvik hafi það
ekki kallað á sérstök viðbrögð.
„Áhrifin eru að nemendum seinkar í
námi vegna þess að þeir fá ekki leiðbein-
ingu og jafnvel flosna upp úr námi vegna
þess og það er verið að sóa tíma fólks.
Doktorsgráða á að segja þér ákveðna hluti
og það gerir það ekki ef þeir sem koma að
því eru ekki hæfir,“ segir Friðrik. Sam-
kvæmt svörum frá Ingjaldi Hannibalssyni
þá vísar Viðskiptafræðideild Háskóla Ís-
lands því á bug að ekki séu gerðar nægar
kröfur til leiðbeinenda og andmælenda í
doktorsnámi við Viðskiptafræðideild. „Í
doktorsnefnd allra þeirra sem varið hafa
doktorsritgerðir við deildina hafa verið
valdir bestu mögulegu fræðimenn og
ávallt hefur að minnsta kosti einn þeirra
verið virtur erlendur sérfræðingur,“ segir
Ingjaldur.
Friðrik sakar stjórn Viðskiptafræðideild-
ar einnig um að hafa hunsað tilkynningu
um grun um ritstuld hjá þessum sama
doktorsnema í deildinni og grun um rit-
stuld hjá leiðbeinanda sama doktorsnema
í fræðigrein sem þessir tveir einstaklingar
skrifuðu saman árið 2011. Segir hann að
forseti fræðasviðs og formaður doktors-
námsnefndar hafi aðeins brugðist við
þegar hann hafi farið loks með málið í fjöl-
miðla. Hefur Fréttatíminn séð gögn sem
benda til þess að ekki hafi verið brugðist
skjótt við heldur hafi það verið dregið
að rannsaka mál þessa sama doktors-
nema eins og áður segir. Ingjaldur segir
aðspurður að þegar grunur leiki á um rit-
stuld sé brugðist eins fljótt og auðið er en
ekki sé mögulegt að tjá sig um einstakar
ábendingar og vísar á siðarreglur skólans.
Friðrik er þeirrar skoðunar að málið hefði
komist upp fyrr og áður en viðkomandi
doktorsnemi var búinn að skila doktors-
ritgerð ef leiðbeinandi hans hefði staðist
hæfiskröfur.
María Elísabet Pallé
maria@frettatiminn.is
MenntaMál Fyrrverandi aðjúkt gagnrýnir Háskóla Íslands
Háskóli Íslands
rannsakar svikahrapp
Friðrik
Eysteins-
son er afar
óánægður með
vinnubrögð
við Viðskipta-
fræðideild Há-
skóla Íslands.
Ljósmynd/Hari
Friðrik Eysteinsson fyrrverandi aðjúkt við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands gagnrýnir harðlega
vinnubrögð í doktorsnámi við deildina. Ingaldur Hannibalsson deildarforseti vísar ásökunum á
bug og segir að allar ábendingar séu teknar til skoðunar. Mál doktorsnema sem grunaður er um
ritstuld og sitthvað fleira er til rannsóknar.
FjölMiðlar viðsnúningur Í rekstri FréttatÍMans
Bjart framundan á þriggja ára afmæli Fréttatímans
„Rekstur Fréttatímans gengur vel
og útlit er fyrir hagnað af rekstri
blaðsins á árinu 2013,“ segir Valdi-
mar Birgisson framkvæmdastjóri
blaðsins.
Fréttatíminn fagnaði í vik-
unni þriggja ára afmæli sínu og
Valdimar segir að blaðið hafi fest
sig í sessi. „Við höfum náð góðum
tökum á rekstrinum og lesendum
fjölgar. Mælingar sýna líka að
lesendur eru ánægðir með blaðið,
það er mikilvægt fyrir okkur. Það
hefur sýnt sig að það var pláss
fyrir gott helgarblað á markað-
inum,“ segir Valdimar.
Um fimm milljón króna tap var
á rekstri Fréttatímans árið 2012
og er það verulegur viðsnún-
ingur frá árinu 2011 en þá var 27
milljóna tap á rekstrinum. Fyrstu
6 mánuði ársins var 15 milljóna
króna hagnaður á rekstri blaðsins
og er það verulegur viðsnúningur
frá árinu áður þegar 15 milljóna
tap var á blaðinu fyrstu 6 mánuði
ársins.
Teitur Jónasson útgáfustjóri
Fréttatímans segir að útlitið sé
gott og unnið sé markvisst að
því að efla útgáfuna. „Við erum
ánægð með þessi fyrstu þrjú ár
Fréttatímans. Blaðið er komið til
að vera og það er augljóst að okk-
ur hefur verið tekið fagnandi bæði
af lesendum og auglýsendum. Við
mátum það svo í upphafi að það
væri gat á fríblaðamarkaði og það
hefur reynst vera rétt mat.“
Teitur Jónasson útgáfustjóri og
Valdimar Birgisson framkvæmda-
stjóri Fréttatímans eru ánægðir með
rekstur blaðsins sem fagnaði þriggja
ári afmæli í vikunni. Ljósmynd/Hari
Helmingur gefur föt til
hjálparstarfs
Meirihluti Íslendinga tók þátt í þróunar-
samvinnu eða lagði af mörkum til hjálpar-
stafs á síðustu 12 mánuðum. Þar af veitti
rúmlega helmingur fatagjafir, ögn færri
veittu fjárframlög til frjálsra félagasam-
taka og álíka margir veittu framlög til
safnana. Þetta kemur fram í niðurstöðum
könnunar sem MMR gerði fyrir utanríkis-
ráðuneytið og Þróunarsamvinnustofnun Ís-
lands á viðhorfum og þekkingu á þróunar-
samvinnu. Einn af hverjum tíu tók þátt í
sjálboðavinnu, 4 af hverjum hundrað lögðu
af mörkum á annan hátt en um fjórðungur
tók ekki þátt í þróunarsamvinnu eða
lagði neitt af mörkum. Könnunin leiddi
ennfremur í ljós að meirihluti Íslendinga
þekkir mjög illa eða frekar illa til þróunar-
samvinnu á vegum íslenskra stjórnvalda,
eða 64 prósent. Langflestir eru hlynntir
þróunarsamvinnu. -eh
Skólamjólk í Myanmar
Skólamjólkurdagurinn var haldinn
hátíðlegur í skólum landsins í síðustu viku
rétt eins og í skólum um víða veröld. Það
er ekki sjálfsagt mál að geta fengið mjólk í
skólanum í öllum löndum þótt nóg sé til af
henni hér. Tetra Pak, sem er lang stærsta
umbúðafyrirtæki heims þegar horft er
til mjólkurafurða, hefur nú sett af stað
skólamjólkurverkefni í Myanmar, áður
Búrma. Um þriggja ára verkefni er að ræða
og það felst í að bjóða krökkum G-mjólk
í 205 skólum í Nay Pyi Taw, Yangon og
Mandalay. Með þessu átaki um 45 þúsund
skólabörn í landinu mjólk á degi hverjum í
boði fyrirtækisins.
Rauði krossinn hefur að
undanförnu safnað fyrir
fórnarlömb stríðsins í
Sýrlandi og stendur loka-
átak söfnunarinnar nú
yfir. Mikil neyð ríkir hjá
fólki í Sýrlandi og þeim
sem flúið hafa land og
hafast við í nágrannaríkj-
unum. Hægt er að leggja
söfnuninni lið með því að
hringja eða senda sms
í söfnunarsímana 904-
1500, 904-2500 og 904-
5500. Með því bætist
við upphæð sem nemur
síðustu fjórum tölunum
í númerinu við næsta
símareikning. Einnig er
hægt að leggja framlög
inn á reikning 0342-26-12
og er kennitalan 530269-
2649. -dhe
2 fréttir Helgin 4.-6. október 2013