Fréttatíminn - 04.10.2013, Blaðsíða 22
Heilbrigðiskerfi
á Heljarþröm
hluti1.
Krísa og vonleysi á Landspítala
L andflótti lækna og hjúkr-unarfræðinga, gífurlegt álag á starfsfólk, skortur á
sérfræðingum, úreltur og bilaður
tækjabúnaður og úr sér gengið
húsnæði er afleiðing langvarandi
niðurskurðar á Landspítalanum.
Frá árinu 2008 hefur verið skorið
niður um fimmtu hverju krónu á
stofnuninni þrátt fyrir að lands-
mönnum hafi fjölgað á sama
tíma og veruleg fjölgun orðið í
veikasta aldurshópnum, 70 ára og
eldri. Niðurskurður hefur bitnað
á sjúklingum og fólk er jafnvel
sent heim án þess að vera í standi
til að sjá um sig sjálft, að mati
starfsfólks. Neyðarástand hefur
skapast á stærsta sviði spítalans,
lyflækningasviði, sem rekið hefur
verið eftir sérstöku neyðarplani til
að koma til móts við mikinn skort
lækna sem hafa einfaldlega gefist
upp á álaginu. Fréttatíminn mun á
næstu vikum birta greinaflokk um
ástandið á Landspítalanum sem
þarf að búa við áframhaldandi
niðurskurð samkvæmt næstu fjár-
lögum þrátt fyrir loforð stjórnar-
flokkanna um annað.
Komið fram af bjargbrúninni
Landspítalinn er einn af stærstu
útgjaldaliðum fjárlaga. Árið 2008
fékk spítalinn tæplega 50 milljarða
króna fjárveitingu frá ríkinu, upp-
reiknað á núgildandi verðlag, en
fjárveiting samkvæmt fjárlaga-
frumvarpinu sem lagt var fram
í vikunni er rúmir 39 milljarðar.
Munurinn er 20 prósent, um tíu
milljarðar. Framlög til heilbrigðis-
mála í heild sinni voru rúmir 115
milljarðar á síðasta ári. Þau hafa
farið lækkandi ár frá ári sem hlut-
fall af þjóðarframleiðslu og hefur
hlutfallið ekki verið lægra síðan
1998.
Fréttatíminn ræddi við lækna,
hjúkrunarfræðinga og stjórnend-
ur á spítalanum, sem og fleiri sér-
fræðinga. Þeir eru sammála um
að ekki sé lengur hægt að tala um
að heilbrigðiskerfið sé komið fram
á bjargbrún. Það sé komið framaf
henni. „Það er búið að vinna
skemmdarverk á heilbrigðiskerf-
inu,“ segir Karl Konráð Andersen,
sérfræðingur í hjartalækning-
um. Hann vinnur á hjartadeild
Landspítalans sem heyrir undir
lyflækningasvið, sem er það svið
spítalans sem niðurskurðurinn
hefur bitnað hvað mest á á undan-
förnum árum. „Fyrir nokkrum
árum höfðum við hér heilbrigðis-
kerfi sem við vorum stolt af og
gátum státað af að væri eitt hið
besta í heimi. Það er liðin tíð. Nú
horfum við upp á landflótta lækna
og hjúkrunarfræðinga og tækja-
kostur og húsnæði er lélegt. Við
höfum farið illa með þetta heil-
brigðiskerfi,“ segir Karl.
Heilbrigðisstarfsfólki fækkað
Í tölum sem Landspítalinn tók
saman fyrir Fréttatímann og sýnir
þróun ýmissa þátta í starfsemi
spítalans á árunum 2001, 2007 og
2013 kemur fram að heilbrigðis-
starfsfólki, læknum, hjúkrunar-
fræðingum og sjúkraliðum, hefur
fækkað milli áranna 2007 og 2013.
Dagvinnustöðugildum á spítal-
anum hefur fækkað um nærri tíu
prósent á síðastliðnum tólf árum,
úr 3.883 dagvinnustöðugildum að
meðaltali árið 2001 í 3.595 í janúar
árið 2013.
Íbúum á landinu hefur á sama
tíma fjölgað um tæp 15 prósent
og íbúum í elsta aldurshópnum,
70 ára og eldri, hefur fjölgað hlut-
fallslega enn meir, en sá aldurs-
hópur átti rúm 40 prósent allra
legudaga á Landspítala á síðasta
ári.
Skurðaðgerðum hefur fjölgað
um þúsund frá árinu 2001 og eru
nú 14 þúsund og munar þar mest
um dagdeildaraðgerðir. Þá má
nefna að sjúklingum í slysa- og
bráðaþjónustu hefur fjölgað um 50
prósent frá árinu 2001.
Fólk er beinlínis sorgmætt
Starfsfólk spítalans segir að álagið
sé komið yfir öll þolmörk. „Ég hef
aldrei frá því ég byrjaði að vinna
hér fundið eins og núna þessa
miklu þreytu. Fólk er beinlínis
sorgmætt yfir því hvernig farið
hefur verið með það,“ segir Bylgja
Kærnested, hjúkrunardeildar-
stjóri á hjartadeild. „Við höfum
gert starfsumhverfiskannanir og
vinnuálagsmælingar á læknum
og hjúkrunarfræðingum og þær
sýna allar fram á að álagið er allt
of mikið,“ segir hún
„Það er krísa á öllum spítal-
anum,“ segir Karl, „þótt álagið
sé meira á vissum deildum líkt
og krabbameinsdeild og hjarta-
deild. Vandamálið var svo sem
fyrirséð, því fólk er að eldast.
Krónískir sjúkdómar eru að sliga
heilbrigðiskerfið, ekki bara hér
á Íslandi, heldur um allan heim.
Við lifum einnig lengur því okkur
hefur orðið betur ágengt með að
meðhöndla sjúkdóma sem fólk
getur lifað lengi með,“ segir Karl.
„Þessu til viðbótar kemur krepp-
an árið 2008 og í excel skjalinu
eru heilbrigðis- og velferðarkerfið
stærstu útgjaldaliðirnir og því
auðveldast að skera þar niður
stórar upphæðir,“ segir hann.
Landflótti sjaldan meiri
Afleiðingarnar eru þær að læknar
og hjúkrunarfólk er við það að
gefast upp – ef það hefur ekki
þegar gefist upp. Aldrei hefur
verið meira um að læknar og
hjúkrunarfræðingar sæki vinnu
til útlanda, ýmist fastar stöður
eða tímabundnar afleysingar.
Guðmundur Karl Snæbjörns-
son rekur atvinnumiðlunina
hvitirsloppar.is sem sérhæfir sig í
ráðningum íslenskra lækna í Sví-
þjóð. Hann er sjálfur ekki lengur
starfandi hér á landi. „Ástæðan
fyrir því að ég starfa ekki lengur
á Íslandi er fyrst og fremst sú að
við erum komin svo langt á eftir,“
segir hann.
Guðmundur segir mikla, vax-
andi undiröldu meðal heilbrigðis-
starfsfólks. „Þeir sem ekki eru
þegar farnir geta vel hugsað sér
að fara,“ segir hann. Þetta rímar
við niðurstöður könnunar sem
stjórnendur Landspítalans létu
gera árið 2010. Í henni kom meðal
annars fram að aðeins 7 prósent
lækna gátu tekið undir þá full-
yrðingu að þeir hugsuðu sjaldan
eða aldrei um að hætta störfum.
Einnig kom fram að rétt um einn
af hverjum tíu læknum sögð-
ust mæla með spítalanum sem
Skurðaðgerðir
15.000
12.000
9.000
6.000
3.000
0
2013 2012 2007 2001
2013 framreiknað - áætlun m.v. svipaða starfsemi og í fyrra
14.016 14.069 14.070 13.007
SLySa- og bráðaþjónuSta
fjöLdi koma
100.000
80.000
60.000
40.000
20.000
0
2013 2012 2007 2001
2013 framreiknað - áætlun m.v. svipaða starfsemi og í fyrra
97.712 98.923 93.060 65.714
fjöLdi koma á göngudeiLdir
300.000
250.000
200.000
150.000
100.000
50.000
0
2013 2012 2007 2001
2013 framreiknað - áætlun m.v. svipaða starfsemi og í fyrra
237.447 234.430 255.803 193.477
Heilbrigðiskerfið er á heljarþröm. Landflótti lækna og hjúkrunarfræðinga, gífurlegt álag á starfsfólk, skortur á sér-
fræðingum, úreltur og bilaður tækjabúnaður og úr sér gengið húsnæði er afleiðing langvarandi niðurskurðar. Spítalinn
er í krísu og starfsfólkið hefur fyllst vonleysi. Nýr forstjóri segir aukið fjármagn algjör forsenda fyrir því að snúa megi
þróuninni við.
Sigríður Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@ frettatiminn.is
Framhald á næstu opnu
Ljósmynd/Hari
22 fréttaskýring Helgin 4.-6. október 2013