Fréttatíminn


Fréttatíminn - 04.10.2013, Síða 22

Fréttatíminn - 04.10.2013, Síða 22
Heilbrigðiskerfi á Heljarþröm hluti1. Krísa og vonleysi á Landspítala L andflótti lækna og hjúkr-unarfræðinga, gífurlegt álag á starfsfólk, skortur á sérfræðingum, úreltur og bilaður tækjabúnaður og úr sér gengið húsnæði er afleiðing langvarandi niðurskurðar á Landspítalanum. Frá árinu 2008 hefur verið skorið niður um fimmtu hverju krónu á stofnuninni þrátt fyrir að lands- mönnum hafi fjölgað á sama tíma og veruleg fjölgun orðið í veikasta aldurshópnum, 70 ára og eldri. Niðurskurður hefur bitnað á sjúklingum og fólk er jafnvel sent heim án þess að vera í standi til að sjá um sig sjálft, að mati starfsfólks. Neyðarástand hefur skapast á stærsta sviði spítalans, lyflækningasviði, sem rekið hefur verið eftir sérstöku neyðarplani til að koma til móts við mikinn skort lækna sem hafa einfaldlega gefist upp á álaginu. Fréttatíminn mun á næstu vikum birta greinaflokk um ástandið á Landspítalanum sem þarf að búa við áframhaldandi niðurskurð samkvæmt næstu fjár- lögum þrátt fyrir loforð stjórnar- flokkanna um annað. Komið fram af bjargbrúninni Landspítalinn er einn af stærstu útgjaldaliðum fjárlaga. Árið 2008 fékk spítalinn tæplega 50 milljarða króna fjárveitingu frá ríkinu, upp- reiknað á núgildandi verðlag, en fjárveiting samkvæmt fjárlaga- frumvarpinu sem lagt var fram í vikunni er rúmir 39 milljarðar. Munurinn er 20 prósent, um tíu milljarðar. Framlög til heilbrigðis- mála í heild sinni voru rúmir 115 milljarðar á síðasta ári. Þau hafa farið lækkandi ár frá ári sem hlut- fall af þjóðarframleiðslu og hefur hlutfallið ekki verið lægra síðan 1998. Fréttatíminn ræddi við lækna, hjúkrunarfræðinga og stjórnend- ur á spítalanum, sem og fleiri sér- fræðinga. Þeir eru sammála um að ekki sé lengur hægt að tala um að heilbrigðiskerfið sé komið fram á bjargbrún. Það sé komið framaf henni. „Það er búið að vinna skemmdarverk á heilbrigðiskerf- inu,“ segir Karl Konráð Andersen, sérfræðingur í hjartalækning- um. Hann vinnur á hjartadeild Landspítalans sem heyrir undir lyflækningasvið, sem er það svið spítalans sem niðurskurðurinn hefur bitnað hvað mest á á undan- förnum árum. „Fyrir nokkrum árum höfðum við hér heilbrigðis- kerfi sem við vorum stolt af og gátum státað af að væri eitt hið besta í heimi. Það er liðin tíð. Nú horfum við upp á landflótta lækna og hjúkrunarfræðinga og tækja- kostur og húsnæði er lélegt. Við höfum farið illa með þetta heil- brigðiskerfi,“ segir Karl. Heilbrigðisstarfsfólki fækkað Í tölum sem Landspítalinn tók saman fyrir Fréttatímann og sýnir þróun ýmissa þátta í starfsemi spítalans á árunum 2001, 2007 og 2013 kemur fram að heilbrigðis- starfsfólki, læknum, hjúkrunar- fræðingum og sjúkraliðum, hefur fækkað milli áranna 2007 og 2013. Dagvinnustöðugildum á spítal- anum hefur fækkað um nærri tíu prósent á síðastliðnum tólf árum, úr 3.883 dagvinnustöðugildum að meðaltali árið 2001 í 3.595 í janúar árið 2013. Íbúum á landinu hefur á sama tíma fjölgað um tæp 15 prósent og íbúum í elsta aldurshópnum, 70 ára og eldri, hefur fjölgað hlut- fallslega enn meir, en sá aldurs- hópur átti rúm 40 prósent allra legudaga á Landspítala á síðasta ári. Skurðaðgerðum hefur fjölgað um þúsund frá árinu 2001 og eru nú 14 þúsund og munar þar mest um dagdeildaraðgerðir. Þá má nefna að sjúklingum í slysa- og bráðaþjónustu hefur fjölgað um 50 prósent frá árinu 2001. Fólk er beinlínis sorgmætt Starfsfólk spítalans segir að álagið sé komið yfir öll þolmörk. „Ég hef aldrei frá því ég byrjaði að vinna hér fundið eins og núna þessa miklu þreytu. Fólk er beinlínis sorgmætt yfir því hvernig farið hefur verið með það,“ segir Bylgja Kærnested, hjúkrunardeildar- stjóri á hjartadeild. „Við höfum gert starfsumhverfiskannanir og vinnuálagsmælingar á læknum og hjúkrunarfræðingum og þær sýna allar fram á að álagið er allt of mikið,“ segir hún „Það er krísa á öllum spítal- anum,“ segir Karl, „þótt álagið sé meira á vissum deildum líkt og krabbameinsdeild og hjarta- deild. Vandamálið var svo sem fyrirséð, því fólk er að eldast. Krónískir sjúkdómar eru að sliga heilbrigðiskerfið, ekki bara hér á Íslandi, heldur um allan heim. Við lifum einnig lengur því okkur hefur orðið betur ágengt með að meðhöndla sjúkdóma sem fólk getur lifað lengi með,“ segir Karl. „Þessu til viðbótar kemur krepp- an árið 2008 og í excel skjalinu eru heilbrigðis- og velferðarkerfið stærstu útgjaldaliðirnir og því auðveldast að skera þar niður stórar upphæðir,“ segir hann. Landflótti sjaldan meiri Afleiðingarnar eru þær að læknar og hjúkrunarfólk er við það að gefast upp – ef það hefur ekki þegar gefist upp. Aldrei hefur verið meira um að læknar og hjúkrunarfræðingar sæki vinnu til útlanda, ýmist fastar stöður eða tímabundnar afleysingar. Guðmundur Karl Snæbjörns- son rekur atvinnumiðlunina hvitirsloppar.is sem sérhæfir sig í ráðningum íslenskra lækna í Sví- þjóð. Hann er sjálfur ekki lengur starfandi hér á landi. „Ástæðan fyrir því að ég starfa ekki lengur á Íslandi er fyrst og fremst sú að við erum komin svo langt á eftir,“ segir hann. Guðmundur segir mikla, vax- andi undiröldu meðal heilbrigðis- starfsfólks. „Þeir sem ekki eru þegar farnir geta vel hugsað sér að fara,“ segir hann. Þetta rímar við niðurstöður könnunar sem stjórnendur Landspítalans létu gera árið 2010. Í henni kom meðal annars fram að aðeins 7 prósent lækna gátu tekið undir þá full- yrðingu að þeir hugsuðu sjaldan eða aldrei um að hætta störfum. Einnig kom fram að rétt um einn af hverjum tíu læknum sögð- ust mæla með spítalanum sem Skurðaðgerðir 15.000 12.000 9.000 6.000 3.000 0 2013 2012 2007 2001 2013 framreiknað - áætlun m.v. svipaða starfsemi og í fyrra 14.016 14.069 14.070 13.007 SLySa- og bráðaþjónuSta fjöLdi koma 100.000 80.000 60.000 40.000 20.000 0 2013 2012 2007 2001 2013 framreiknað - áætlun m.v. svipaða starfsemi og í fyrra 97.712 98.923 93.060 65.714 fjöLdi koma á göngudeiLdir 300.000 250.000 200.000 150.000 100.000 50.000 0 2013 2012 2007 2001 2013 framreiknað - áætlun m.v. svipaða starfsemi og í fyrra 237.447 234.430 255.803 193.477 Heilbrigðiskerfið er á heljarþröm. Landflótti lækna og hjúkrunarfræðinga, gífurlegt álag á starfsfólk, skortur á sér- fræðingum, úreltur og bilaður tækjabúnaður og úr sér gengið húsnæði er afleiðing langvarandi niðurskurðar. Spítalinn er í krísu og starfsfólkið hefur fyllst vonleysi. Nýr forstjóri segir aukið fjármagn algjör forsenda fyrir því að snúa megi þróuninni við. Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@ frettatiminn.is Framhald á næstu opnu Ljósmynd/Hari 22 fréttaskýring Helgin 4.-6. október 2013
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.