Fréttatíminn - 18.05.2012, Síða 67
4 5 6
allt fyrir áskrifendur
fréttir, fræðsla, sport og skemmtun
STÖÐ 2
07:00 Elías/ Stubbarnir /Villingarnir / Algjör
Sveppi / Mamma Mu / Kalli litli kanína og
vinir / Maularinn /Scooby Doo / Krakkarnir
í næsta húsi
12:00 Nágrannar
13:20 American Idol (38/40)
14:05 Spurningabomban (1/6)
14:55 The Block (7/9)
15:40 How I Met Your Mother
16:05 Gossip Girl (14/24)
16:50 Mad Men (6/13)
17:40 60 mínútur
18:30 Fréttir Stöðvar 2
19:15 Frasier (9/24)
19:40 Jamie Saves Our Bacon
20:35 The Mentalist (21/24)
21:20 Homeland (11/13) Stórbrotin
þáttaröð í anda 24 með Claire Danes í
aðalhlutverki.
22:15 The Killing (2/13)
23:00 60 mínútur
23:45 The Daily Show: Global Edition
00:10 Smash (11/15)
00:55 Game of Thrones (7/10)
01:50 Silent Witness (3/12)
02:40 Supernatural (13/22)
03:20 The Event (10/22)
04:05 Medium (10/13)
04:50 The Mentalist
05:35 Friends (12/24)
06:00 Fréttir
4 5 6
allt fyrir áskrifendur
fréttir, fræðsla, sport og skemmtun
10:20 Box: Khan - Peterson
12:05 Meistaradeild Evrópu: Bayern - Chelsea
14:10 Þorsteinn J. og gestir - meistaramörk
14:40 The Masters
19:45 FH - Breiðablik
22:00 Fréttaþáttur Meistaradeildar Evrópu
22:30 OK búðamótið
23:05 FH - Breiðablik
4 5 6
allt fyrir áskrifendur
fréttir, fræðsla, sport og skemmtun
12:30 Premier League Review 2011/12
13:25 Premier League World
13:55 West Ham - Blackpool
15:45 Arsenal - Aston Villa
17:30 Man. City - Sunderland
19:15 Tottenham - Swansea
21:00 Man. Utd. - Everton
22:45 Blackburn - Liverpool
SkjárGolf
06:00 ESPN America
07:00 Byron Nelson Championship
10:00 Volvo World Match Play Championship
16:00 Byron Nelson Championship
18:35 Inside the PGA Tour (20:45)
19:00 Byron Nelson Championship
22:00 Volvo World Match Play Championship
01:00 ESPN America
20. maí
sjónvarp 51Helgin 18.-20. maí 2012
Eitt það helsta sem gerir okkur að þjóð er sam-
eiginlegt tungumál. Tungumálið er töfrandi
samskiptamáti, skilur menn frá dýrum og fjöldi
tungumála ótrúlegur, rúmlega sex þúsund. Um
þetta fjallar breski leikarinn Stephen Fry í fimm
þátta röð BBC-sjónvarpsstöðvarinnar sem Ríkis-
sjónvarpið sýnir okkur um þessar mundir. Óhætt
er að mæla með þessum þáttum, eins og öðrum
fræðsluþáttum frá BBC. Þar er fagmennska í
fyrirrúmi.
Í fyrsta þættinum kannaði Fry uppruna tungu-
málsins og hvers vegna maðurinn er eina tegundin
á plánetunni sem tjáir sig með þessum hætti. Þrátt
fyrir tilraunir hefur ekki tekist að kenna okkar nán-
ustu ættingjum í dýraríkinu að tala. Í öðrum þætti
fjallaði hann um hvað það er sem auðkennir okkur
og hélt því fram að það væri umfram allt hvernig
við tölum, hvort það er þjóðtunga, staðbundin mál-
lýska eða stéttamunur. Við skilgreinum okkur með
því máli sem við tölum. Í þeim þriðja komst Fry að
því að blótsyrði eru mikilvægur þáttur í boðskipt-
um manna þótt fæstir séu hrifnir af ljótu orðbragði.
Í næsta þætti verður ritmálið tekið fyrir, sú
merka uppgötvun sem gerði mönnum kleift að skrá
hug sinn. Án þess væri sagan lítt kunn. Í lokaþætt-
inum verður síðan fjallað um sagnamennsku, löng-
unina til að segja sögu og skemmta öðrum.
Staða tungumála er misjöfn. Enskan hefur stöðu
alþjóðatungumáls og hlutur kínversku mun fara
vaxandi með auknum áhrifum risans í austri. Færri
tala ýmis önnur tungumál, mörg eru í útrýmingar-
hættu og munu hverfa. Það er umhugsunarefni
Íslendinga, fámennrar þjóðar í stórum heimi sem
talar tungu sem fáir skilja. Í þá gersemi viljum við
halda – og enginn hefur orðað það betur en Einar
Benediktsson: „Ég skildi að orð er á Íslandi til/um
allt, sem er hugsað á jörðu.“
Jónas Haraldsson
„Ég skildi að orð er á Íslandi til...“
RíkissjónvaRpið HeimuR oRðanna
ALDAGÖMUL HEFÐ
ÞROSKUÐ Í ÍSLENSKU UMHVERFI
Íslenskir mjólkurbændur kynna með stolti hina íslensku Óðalsosta.
Átta ostar byggðir á alþjóðlegri hefð og fullkomnaðir með besta
hráefni sem völ er á — íslenskri mjólk.
ERTU NÓGU ÞROSKAÐUR FYRIR BRAGÐIÐ?
ÚR FÓRUM MEISTARANS
OSTAR
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/M
S
A
5
80
56
0
1/
12