Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.10.1997, Page 71

Læknablaðið - 15.10.1997, Page 71
(ómepmzól) -áhrifaríkt íslenskt magalyf -gegn bólgu í vélinda vegna bakflœðis. -gegn magasári og Zollinger-Ellison heilket..... INN 20 mg. Ábendingar: Sársjúkdómur i skeifugöm og maga. Bólga í vélinda vegna bakflæöis. Zollinger-Ellison heilkenni (syndrome). Æskilegt er aö þessar greiningar séu staðfestar meö speglun. Langtímanotkun við bólgu í vélinda vegna bakflæðis eða við síendurteknum sárum í maga eða skeifugörn: Ekki er mælt með notkun lyfsins lengur en í þrjú ár. Frábendlngar: Engar þekktar. Aukaverkanir: Algengustu aukaverkanir eru frá meltingarvegi svo sem niðurgangur, ógleði og hægðatregða; einnig höfuðverkur. Algengar (>1%): Almennar: Höfuðverkur. Meltingarfæri: Niðurgangur, ógleði, uppköst, hægðatregða, kviðverkir og aukin vindgangur. Sjaldgæfar(0,1-1%): Almennar: Svimi, syfja, þreyta. Taugakerfi: Svefntruflanir, skyntruflanir. Húð: Útbrot, kláði. í stöku tilvikum hefur eftirfarandi verið lýst i tengslum við ómeprazól meðferð, en orsakasamband er ekki sannað: Liðverkir, vöðvaþreyta, vöðvaverkir. Timabundið rugl og æsingur, þunglyndi og ofskynjanir. Munnþurrkur. bólga í munni, sveppasýking í munni. Breytingar á lifrarenzýmum, encephalopathia hjá sjúklingum með lifrarbilun, lifrarbólga með eða án gulu. Stækkun á brjóstkirtlum. Fækkun á hvitum blóðkornum og blóðflögum. Bjúgur. Þokusýn. Breytingar á bragðskyni. Aukið Ijósnæmi, erythema multiforme, hárlos. Aukin svitamyndun. Hiti, berkjusamdráttur. Nýrnabólga. Milliverkanir: Ómeprazól getur minnkað umbrotshraða diazep- ams, warfarins og fenýtóins í lifur. Fylgjast skal með sjúklingum, sem fá warfarín eða fenýtóín og getur verið nauðsynlegt að minnka skammta. Eiturverkanlr: Engar upplýsingar liggja fyrir um eiturverkanir í mönnum. Nákvæmar leiðbeiningar um meðferð eru þvi ekki þekktar. Athuglð: Ekki er ráðlegt að gefa lyfið á meðgöngutíma og við brjóstagjöf nema brýn ástæða sé til. Skammtastærðir handa fullorðnum: Sýruhjúphylkin á að gleypa heil með a.m.k. 1/2 glasi af vatni. Tæma má innihald hylkjanna i t.d. skeið og taka það þannig inn en þau má ekki tyggja. Gæta skal þess að geyma hylkin í vandlega lokuðu glasi. Skeifugarnarsár: Venjulegur skammtur er 20 mg á dag í 2 vikur. Hafi sárið ekki gróið, má halda meðferð áfram i 2vikur i viðbót. Hjá sjúklingum, sem hafa ekki svarað annarri meðferð, hafa 40 mg einu sinni á dag verið gefin og sárið gróið, oftast innan 4 vikna. Magasár: Venjulegur skammtur er 20 mg á dag í 4 vikur. Hafi sárið ekki gróið, má halda meðferð áfram i 4 vikur til viðbótar. Hjá sjúklingum sem ekki hafa svarað annarri meðferð, hafa 40 mg einu sinni á dag verið gefið og sárið gróið, oftast innan 8 vikna. Bólga í vélinda vegna bakflæðis: Venjulegur skammtur er 20 mg á dag í 4 vikur. Hafi bólgan ekki læknast, má halda meðferð áfram í 4 vikur til viðbótar. Hjá sjúklingum, sem hafa ekki svarað annarri meðferð, hafa 40 mg einu sinni á dag verið gefin og bólgan læknast, venjulega innan 8 vikna. Zollinger-Ellison heilkenni (syndrome): Venjulegur skammtur er 60 mg einu sinni á dag. Finna þarf hæfilega skammta hverju sinni, en þeir geta verið á bilinu 20-120 mg á dag. Fari dagsskammtur yfir 80 mg þarf að skipta honum i tvær lyfjagjafir. Langtímameð- ferð vegna bakflæðis í vélinda eða vegna síendurtekins sársjúkdóms í maga eða skeifugörn: Venjulegur skammtur er 20 mg einu sinni á dag. Ef einkenni versna má auka skammtinn í 40 mg einu sinni á dag. Skammtastærðir handa börnum: Engin reynsla er af notkun lyfsins hjá bömum. Pakkningar og verð 1. sept. 1995: Sýruhjúpshylki 20mg:14stk. — 3953 kr.;28stk. — 7546kr.;56stk. —13984 kr.;100stk. — 23494 kr.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.