Búskapur hins opinbera 1994-1995 - 01.04.1996, Side 19

Búskapur hins opinbera 1994-1995 - 01.04.1996, Side 19
Flokka má útgjöld hins opinbera eftir tegund í sex meginflokka með tilliti til eðlis þeirra, þ.e. í samneyslu, vaxtagjöld, framleiðslustyrki, tekjutilfærslur, Qármunamynd- un og fjármagnstilfærslur. Tekju- og rekstrartilfærslur til heimila og atvinnuvega taka til sín um einn Qórða hluta opinberra útgjalda og útgjöld til ijárfestinga tæplega áttunda hluta þeirra. Afgangurinn fer til vaxtagreiðslna eða rúmlega tíundi hluti opin- berra útgjalda. Útgjöld hins opinbera má einnig flokka eftir málaflokkum, þ.e.a.s. í fræðslumál, heilbrigðismál, félagsmál, atvinnumál o.s.frv. í töflu 5.24 er að flnna slíka flokkun, en útgjöldunum er skipt upp í stjómsýslu, félagslega þjónustu, atvinnumál og önnur mál. Síjórnsýslan nær til almennrar stjórnsýslu, réttargæslu og öryggismála. Sú starfsemi er þess eðlis að ekki er talið æskilegt að einkaaðilar annist hana. Á árinu 1995 fóru um 15,3 milljarðar króna til þeirrar starfsemi eða 3,4% af landsframleiðslu. Hin félagslega þjónusta, þ.e. fræðslu-, heilbrigðis-, velferðar-, skipulags- og menningar- mál, tekur til sín bróðurpartinn af útgjöldum hins opinbera, eða þrjá flmmtu hluta sem svara til um 24% af landsframleiðslu. Þar vega almannatryggingar og velferðarmál langþyngst, en til þeirra runnu rúmlega 40 milljarðar króna á árinu 1995 sem mælist rúmlega 22% útgjalda hins opinbera. Sá málaflokkur hefur vaxið mjög allra síðustu árin meðal annars vegna aukins atvinnuleysis. Nokkru lægri fjárhæð er ráðstafað til heilbrigðismála eða ríflega 32 milljörðum króna árið 1995, en það svarar til 17,3% útgjalda hins opinbera. Þá koma fræðslumálin, sem kostuðu rúmlega 22 milljarða króna á árinu 1995 eða 12,3% af útgjöldum hins opinbera. Þessir þrír málaflokkar taka til sín rúmlega helming útgjalda hins opinbera eða 93% milljarð króna á árinu 1995. Tafla 5.2 Meginmálaflokkar hins opinbera 1992-1995*. 1992 í milljónum króna 1993 1994 Brt. 1995 1992 Hlutfall af VLF 1993 1994 1995 Stjómsýsla 13.384 13.589 14.638 15.343 3,36 3,31 3,37 3,36 Fclagsleg stjómsýsla 96.467 101.915 105.073 108.637 24,25 24,81 24,18 23,81 - þ.a. fræöslumál 20.696 20.755 21.235 22.213 5,20 5,05 4,89 4,87 - þ.a. heilbrigðismál 27.759 28.488 29.662 31.263 6,98 6,93 6,83 6,85 - þ.a. almannatr. og velferðarmál 34.538 37.093 37.799 40.128 8,68 9,03 8,70 8,80 Atvinnumál 32.442 29.701 31.814 29.304 8,15 7,23 7,32 6,42 Önnur opinber þjónusta 21.653 23.361 25.496 27.334 5,44 5,69 5,87 5,99 Heildarútgjöld hins opinbera 163.946 168.566 177.021 180.618 41,21 41,03 40,74 39,59 •) Afskriftir taldar hér með. Útgjöld hins opinbera til atvinnumála voru innan við sjötti hluti opinberra útgjalda árið 1995 eða ríflega 29 milljarðar króna. En hlutdeild þeirra hefur þó farið lækkandi síðustu árin, einkum vegna minni framlaga til landbúnaðarmála. Af útgjöldum til atvinnumála vega samgöngumálin þyngst, en til þeirra runnu rúmlega 13>/2 milljarð- ur króna árið 1995. Þá vega landbúnaðarmálin einnig þungt, en 7,3 milljarðar króna fóru í þann málaflokk það ár. Að síðustu eru það önnur mál, sem eru rúmlega 15% 4 Sjá einnig töflu 4.4 í töfluviðauka. 17
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Búskapur hins opinbera 1994-1995

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búskapur hins opinbera 1994-1995
https://timarit.is/publication/1008

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.