Búskapur hins opinbera 1994-1995 - 01.04.1996, Page 38
níunda. Þá var vöxturinn mun hægari í Evrópu, Japan og Ástralíu á síðara tímabilinu
en á því fyrra en aftur á móti meiri í Bandaríkjunum og Kanada.
8.11
Sjúkrahúsaþjónusta OECD ríkja 1970-
1993 - hlutfall af landsframleiðslu -
Mynd 8.12
Heilsugæsla og lyf OECD ríkja 1970-1993
- hlutfall af landsframleiðslu -
1970 1980 1990 1993
1970 1980 1990 1993
Á allra síðustu árum hefur þó dregið verulega úr vexti heilbrigðisútgjaida. Á
Norðurlöndum var vöxturinn til dæmis 0,2 prósentustig af landsframleiðslu á tímabil-
inu 1988 til 1993 og í OECD ríkjum sem heild 0,6 prósentustig. Hér á landi drógust
heilbrigðisútgjöldin saman á umræddu tímabili um 0,2% af landsframleiðslu eins og
lesa má af mynd 8.10.
Mynd 8.13
Hlutfall opinberrar Ijármögnunar í OECD
ríkjum 1960-1993
1960 1970 1980 1990 1993
Mynd 8.14
Hlutdeild vinnuafls í heilbrigðisgeiranum
af heildarvinnuafli 1970-1993
1970 1975 1980 1985 1990 1992
Sé rýnt frekar í þróun heilbrigðisútgjalda kemur í ljós að á tímabilinu 1970 til 1980
jukust útgjöld til sjúkrahúsaþjónustu einna mest. Þau mældust um 21/2% af landsfram-
leiðslu í byrjun þess tímabils en um 3,3% í lok þess. Á níunda áratugnum dróg all-
nokkuð úr vexti þessara útgjalda. í byrjun tíunda áratugarins mældust þau að meðal-
tali um 3,7% af landsframleiðslu OECD ríkja. Utanspítalaþjónusta (heilsugæsla) og
lyfjaútgjöld jukust hins vegar verulega á níunda áratugnum en aftur lítið á þeim
áttunda. Árið 1980 mældust þessir útgjaldaliðir um 2,8% af landsframleiðslu en aftur
um 31/2% árið 1990 (sjá mynd 8.12). Aukið aðhald að rekstri sjúkrahúsa og nýjungar í
læknisfræði skýra meðal annars þessa þróun, en hluti af fyrrum þjónustu sjúkrahúsa er
nú veittur utan þeirra.
36