Sagnir


Sagnir - 01.05.1982, Blaðsíða 46

Sagnir - 01.05.1982, Blaðsíða 46
valdastofnana (sumra) flokkanna. Hitt er svo annað mál hversu það dugar konum til að breyta samfélaginu til betri vegar. Er nóg að konum fjölgi í áhrifastöðum, breytir það einhverju í sjálfu sér? Kvennaframboðin svara þeirri spurningu neitandi. Það bætir ekki úr skák að „koma konum að“ ef þær beita sér ekki öðrum konum til hagsbóta. Þess vegna hafna kvennaframboðin flokk- unum eins og þeir eru nú; Breytist starfs- hættir og stefnur flokkanna ekki, hafa kon- ur ekkert þangað að gera. Það er stefnan sem skiptir máli, ekki kynferðið eitt. Hins vegar er það lýsandi fyrir stöðu kvenna hve konur í áhrifastöðum eru fáar (þær eru t.d. 6,2% sveitarstjórnarmanna og 5% alþingismanna). Breytinga er þörf Hver er þá stefnan? Hver eru markmiðin? Það má skilgreina markmiðin á eftirfar- andi hátt og er þá einkum miðað við um- ræður i Reykjavík: í fyrsta lagi var ætlunin að koma af stað umræðum um áhrif/áhrifa- leysi kvenna í stjórnmálum og jafnframt að stuðla að því að konur tækju við sér hver á sínum stað. í öðru lagi að koma á framfæri sjónarmiðum þeirra kvenna sem standa að kvennaframboðinu um málefni borgarinnar og aðstæður kvenna hér í borg. í þriðja lagi að senda konur inn fyrir borgarmúrana, þar sem karlveldið hefur löngum setið í makind- um (stundum með eins og eina hörkukerl- ingu sér við hlið) og gera þar rúmrusk. En hvers vegna í borgarstjórn? Jú vegna þess að borgaryfirvöld fara með fjölmörg mál sem snerta daglegt líf fólks og það er auðveldara að sameina konur um þau mál sem brenna á þeim vel flestum, s.s. dagvistarmál, skóla- mál, skipulag borgarinnar o.fl. heldur en landsmál t.d. afstöðuna til hersins sem klof- ið hefur þjóðina í áratugi. í lögum Samtaka um kvennaframboðið í Reykjavík er tilgangurinn sagður: a) að auka áhrif kvenna í samfélaginu b) vekja umræð- ur um stöðu kvenna c) stuðla að því að viskuforði og jákvæð reynsla kvenna verði nýtt í þágu betra þjóðfélags d) að berjast fyrir heimi þar sem konur, karlar og börn standa jafnt að vígi, þar sem menning beggja kynja fær að njóta sín og kynferði hindrar engan i að sinna þeim störfum sem hugur stendur til. Kvennaframboðskonur ganga út frá því að breytinga sé þörf, að hugarfarsbylting þurfi að eiga sér stað, þótt ekki sé það sagt berum orðum og einnig að hægt sé að sam- eina konur á breiðum grundvelli um ákveðin mál, þær eigi sameiginlegan reynsluheim og sameiginlegra hagsmuna að gæta sem konur: 44 Kvennafundurinn mikli 24. október 1975.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Sagnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.