Sagnir - 01.04.1989, Side 70

Sagnir - 01.04.1989, Side 70
Sigrún ValgeirscLóttir Sagna. Merkjanlegur munur er á fyrstu árgöngum ritsins og þeim sem hafa komið út síðustu ár. Fram- an af var lítið spáð í stíl og fram- setningu en nú er greinilegt að nem- endur hafa náð æ betri tökum á þessum þætti. Kennslan er auðsjá- anlega farin að skila árangri. Þegar þriðji árgangur ritsins kom út árið 1982 var einn ritdómari dagblað- anna nokkuð óhress með málfar og stíl en sami dómari ritaði þremur árum síðar að sagnfræðinemum hefði tekist það ætlunarverk sitt að skrifa skiljanlegt mál. Auðvitað má framsetningin ekki bera rannsóknina ofurliði og eitt af því sem vakti fyrir nemendum þegar þeir óskuðu eftir sérstöku út- gáfunámskeiði árið 1983, þar sem vinnsla Sagna yrði grunnur, var að læra til verka í því efni samhliða grundvallaratriðum í útgáfustarfi. Helgi Þorláksson sagnfræðingur hafði sýnt slíkum hugmyndum mik- inn áhuga og tók síðan að sér leið- sögn á útgáfunámskeiði veturinn 1983-84, sem var fjölsótt. Helgi var þaulvanur útgáfuvinnu og ritstjórn og á námskeiðinu var farið inn á ýmis svið og velt vöngum yfir hinum aðskiljanlegustu þáttum sem snerta útgáfu almennt og sagnfræðiefni sérstaklega. Fyrri árgangar Sagna voru gaumgæfðir og krufðir til mergjar, spáð í stíl og framsetningu, legið yfir innlendum og erlendum tímaritum og athugað hvað af þeim mætti læra, hugað var að fjárhags- grundvelli tímarita og höfundarétti, prentsmiðjur heimsóttar og sérfræð- ingar komu í tíma til að miðla nem- endum af visku sinni, erlend fræði- rit um útgáfumál voru lesin og Helgi skrifaði sjálfur dálítið kver fyrir okk- ur um útgáfumál. Síðan skrifuðu nemendur ritgerðir á námskeiðinu sem jafnframt voru greinar í Sagnir. Gríðarleg vinna lá í þessu öllu sam- an og að lokum spreyttu nemendur sig á því að gefa tímaritið út og koma því á markað. Fimmti árgang- ur ritsins sem leit dagsins ljós í íok námskeiðsins var gjörólíkur þeim sem áður höfðu komið. Brotið var mun stærra, myndir skipuðu vegleg- an sess, textinn var í þremur dálkum, pappírinn góður og svo mætti lengi telja. Blaðið var ágæt- lega skrifað, skýrt og skipulegt, og þemað áhugavert. Þetta var algjör bylting. Sp.: Hverjar voru viðtökurnar? Eggert: Viðbrögð lesenda voru yfirleitt mjög góð og áður en árið 1984 var liðið höfðu nærri eitt þús- und eintök selst. Ekki veitti af góðri sölu til að hafa upp í kostnað við út- gáfuna. Ætli starfsfólk bókasafna hafi ekki verið hvað óhressast með breytinguna. Sagnir höfðu sífellt verið að breytast þótt almennir les- endur tækju kannski ekki eftir því. Fyrsti árgangurinn var t.d. fjölritaður Hetgi Þorláksson sagnfrœdingur átti stóran þátt í því að gera Sagnir að veglegu tímariti. og heftur í kjölinn, annað blaðið fjölritað og límt í kjölinn, þriðja ritið var sett, offsetprentað og saumað í kjölinn. Fjórði árgangurinn var síð- an unninn með nýjustu tækni og saumaður en í allt öðru og smærra broti en hinir fyrrnefndu. Síðan komu Sagnir fimm, miklu stærri en áður. Það ku víst vera æði erfitt að binda ritið inn svo vel fari á bóka- safni! Harkalegasta gagnrýnin sem ég man eftir að hafi komið fram á Sagnir eftir breytinguna birtist í greinarkorni í fréttabréfi íslensku- nema. Þar var ritinu líkt við sagn- fræðilega „rás 2“ og kallað „eitthvert huggulegt glansprent" sem ætti að geta höfðað til allra en væri „dæmt til að mistakast". Einn ágætur sagn- fræðinemi svaraði þessum pistli snöfurlega og nemendur létu ekki svona gagnrýni hafa mikil áhrif á sig. Áfram var haldið á þeirri braut sem mörkuð hafði verið á útgáfu- námskeiðinu. Upphaflega höfðu nemendur hug á því að námskeið af þessu tagi yrði haldið með reglu- legu millibili, jafnvel annað hvert ár. Hugmyndin var sú að þeir sem sætu sfíkt námskeið yrðu fullfærir í Sagna- vinnuna árið eftir og hrifu nýgræð- ingana með sér. Síðan kæmi útgáfu- námskeið og koll af kolli. Ég held að árangurinn hafi ekki látið á sér standa og að sjötti árgangurinn sýni vel hversu mikilvægt slíkt námskeið 68 SAGNIR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.