Sagnir - 01.05.1991, Page 55

Sagnir - 01.05.1991, Page 55
Húsmæður og haftasamfélag Skömmtunarskrifstofa Reykjavíkur annaðist dreifmgu skömmtunarseðla til bœjarbúa. Skammturinn miðaðist að öllu jöfnu við einn einstakling óháð aldri eða hjúskapar- stöðu. Skömmtunarmiðar voru upphaflega merktir bókstöfum sem stóðu fyrir ólíkar vörutegundir, en síðar var farið að merkja þá með vöruheitum og magni því sem fyrir þá fékkst. sjaldnast bein afleiðing haftafyrir- komulagsins. Segja má að eina grænmetið sem íslendingar þekktu á þessum tíma hafi verið garðávextir eins og kar- töflur, rófur, gulrætur og kál. Aðrar tegundir eins og gúrkur og tómatar voru frekar sjaldséðar enda gróðurhúsarækt enn tiltölulega ung atvinnugrein á íslandi.17 Það græn- meti sem á boðstólum var mun allt hafa verið ræktað hér á landi, en kartöflur voru einnig innfluttar. Þrátt fyrir hátt verð var grænmetið vinsælt eins og segir í Víkverja Morgunblaðsins: „En allt er þetta rifið út og eru fleiri um boðið en fá, þegar grænmeti kemur í verslanir eða torgsölur. Það sýnir að blessað fólkið hefur enn einhver aUraráð og vill láta sér líða vel.“18 Ávextir hvort sem voru ferskir, niðursoðnir eða þurrkaðir voru sjaldséðir. Innflutningur á eplum og appelsínum dróst saman árin 1947 til 1950 frá því sem verið hafði árið 1946 og fyrri hluta árs 1947. Þá fór innflutningur á niðursoðnum ávöxtum niður í 22 tonn árið 1949 en hafði verið u.þ.b. 304 tonn árið 1945 (sjá töflu). Innflutningur á ávöxtum var að jafnaði mestur í desember, fyrir jólahátíðar og voru þeir þá skammtaðir, en væru þeir á boðstólum þess á milli tóku kaup- menn það að sér að skammta þá sjálfir. Það var haft á orði, að meðan húsmæður sárvantaði hráefni til heimabaksturs væru bakaríin í Reykjavík full af brauði og kökum. Matvælaframleiðslan hafði smám saman verið’að færast frá heimil- unum til framleiðslufyrirtækjanr.a og með því að takmarka innflutn- ing á hráefni til einstaklinga átti haftastefnan þátt í því að viðhalda þeirri þróun. Sigríður skrifar Hannesi á Horninu og harmar hvernig komið sé fyrir húsmóður- starfinu: Hauststörf húsmæðra voru fyrrum að undirbúa veturinn. Þær keyptu sláturafurðir og bjuggu til geymslu. Þær suðu niður eftir föngunr undir vetur- inn og gerðu annað þessu líkt sem gcrði heimilin heimilislegri og sköpuðu öryggi fyrir hina löngu og erfiðu vetrarmánuði. Skyndilega hefur þetta breyst. Undanfarin haust hefur ekki verið hægt að kaupa efni til sláturgerðar upp á gamla mátinn. Hins vegar hafa hús- mæður getað keypt í matvöru- verslunum slátur fyrir okurverð ... nú er verið að reyna að neyða þær til þess að kaupa þetta tilbúið ...Hér er verið að afnema ágæt og nauðsynleg störf heimila og húsmæðra til ágóða fyrir kaupmenn.19 í þá daga var líka til siðs að vinna sultu og saft úr berjum og rabar- bara, en naumur skammtur af sykri takmarkaði þá iðju. Kaupmaður einn fullyrðir að oft eyðileggist „meirihluti rabarbarans sem rækt- aður er hér sökum sykurleysis.“ Og sami kaupmaður heldur áfram: „Við skiljum vel óánægju hús- mæðra þegar þær gera sín matar- kaup. Það er t.d. hart, að það skuli ekki hafa sést matarlím í búðum svo mánuðum skipti, heldur ekki bökunardropar.. .“20 Smjör- skammturinn var líka vinsælt bit- bein húsmæðra. Um tíma fékkst hér tvenns konar smjör, danskt og íslenskt. Danska smjörið fékkst út á skömmtunarseðla, var ódýrara en það íslenska og þótti auk þess betra. Framboð þessa innflutta smjörs mun að jafnaði hafa annað eftirspurninni og kannski vel það því það kom á daginn að þegar húsmæður höfðu nýtt smjörseðl- ana og gátu ekki fengið annað en það íslenska lá það danska undir skemmdum.21 Kaffiskömmtunin var e.t.v.. eitt besta dæmið um það hversu illa hafði til tekist við að skipuleggja skömmtunina. Kaffiskammturinn miðaðist við hvern einstakling, þannig að börn og unglingar fengu sama skammt og fullorðnir. Þetta kom sér auðvitað vel fyrir barn- nrargar fjölskyldur. SAGNIR 53

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.