Sagnir - 01.05.1991, Page 80

Sagnir - 01.05.1991, Page 80
Kristín V. Á. Sveinsdóttir varð svo hrifinn af fyrirmynd- inni að hann „mótaði súlur kor- intumanna eftir þessari fyrir- mynd og hafði þær spegil- mynda“.6 Seinni tíma menn hafa reynt að útskýra uppruna korintísku súlu- höfðanna á annan veg. Frakkinn Théophile Homoelle rakti upprun- ann til myndskreytinga á attískum smyrslakerjum. Myndirnar sýndu oft súlulaga minnisvarða með akantusskreytingum og taldi hann þessa akantusskreyttu minnisvarða vera tilraun til náttúrulegra eftirlík- inga jurtarinnar. Akantusinn hefði verið sú jurt sem oftast var lögð í attískar grafir og hin grænu blöð hennar vcrið hengd á legsteina sem fórn til hinna dauðu. Hauglid telur þann veikleika vera á kenningum Homoellc að hann hefði ekki tekið tillit til þess að akantusformið kom samtímis fram á höggnum minnisvörðum og máluðu kerunum. í byrjun hafði formið á minnisvörðunum verið veikt sem benti ekki til nákvæmra eftirlíkinga af þeirri gerð sem Homoelle talaði um. Skoðun Haugilds er sú að upp- runi akantusmunstursins er ekki rakinn til grískra súluhöfða, heldur er hægt að rekja hann miklu lengra aftur í tímann, allt til attískra graf- steina, og enn í dag vex akantus- jurtin milli gömlu grísku grafanna og minnir á að það var í grískri graflist sem fyrstu vísar akantus- munstursins spruttu fram.7 Nokkrar deilur hafa staðið um elstu gerð munstursins, t.d. hvort akantusmunstrið hefði upphaflega verið nákvæm eftirlíking eða stíl- færð útgáfa jurtarinnar. Alois nokkur Riegl taldi fyrstu akantus- formin ekki líkjast jurtinni á nokk- urn hátt, til sannindamerkis sagði hann að formin skorti alveg, hin tenntu, fjaðurlaga blöð jurtarinnar. Hann kom fram með þá tilgátu að akantusskreytingarnar væru ein- göngu afbrigði af pálmamunstrinu, sem algengt var í grískri skreytilist. Morten Meurer kom fram með þá tilgátu að fyrirmynd akantusmunst- ursins hafi ekki verið neðstu og stærstu blöð jurtarinnar, heldur þau minni sem standa ofar á stilknum og eru ekki eins þyrnótt og fjaðurlaga og hin stærri. Hann staðhæfir að akantusbikarinn með sín þrjú blöð, eitt í prófíl á hvora hlið og eitt sé bcint framan á í miðj- unni, sæki fyrirmyndina til plönt- unnar sjálfrar. Pá telur hann sig í litaleifum hafa fundið sömu liti og í sjálfri náttúrunni: græn blöð með purpuralitum tón á jöðrunum. Meurer tók einnig undir kenningu Homoelle um akantusinn sem sér- staka graíjurt Grikkja. Hauglid telur kenningar Meurers sannfær- andi en hann líkt og Riegl sé of ein- strcngislegur í kenningum sínum. Þessar kenningar þeirra kumpána eru síðan grunnurinn fyrir öllum síðari rannsóknum á þessu sviði. Þær tilgátur Riegl sem aðrir hafa síðar tekið upp, að pálminn sé upp- runaleg fyrirmynd akantusskreyt- inganna telur Hauglid fjarstæðu- kenndar. Riegl hafi gert þá skyssu í rannsóknum sínum að ganga ekki út frá elstu varðveittu akantus- skreytingunum. Hauglid segir að það fyrirfinnist ekkert dæmi þess að pálminn hafi tekið form akant- uss. Þvert á móti vaxi hann við hliðina á akantusinum á sínum hefðbundna stað gegnum alla hina grísku list og langt inn í rómanska.8 Miklar vangaveltur hafa verið um ástæður þess að munstrið hafi fyrst komið fram í grískri graflist. Svarið hlýtur að vera á þá vegu að jurtin tengdist á cinhvern liátt dauðanum. Sem svar við þeirri tilgátu að um til- viljun sé að ræða, hefur verið nefnd sú staðreynd að akantusskreytingar komu fram á smyrslakerum en ekki að nokkru ráði í annarri grískri kera- miklist. Margar fleiri goðsagnir og þjóð- sögur sem tcngjast akantusjurtinni, en frásögn Vitruvíusar, eru kunnar. Líkvagn Alexanders mikla átti sam- kvæmt frásögnum að vera skreyttur gullnum akantusblómum. Akantus- inn var eins og fleiri þyrnijurtir tákn ófrjóscmi og þar með tileinkuð undirheimum. Gröf Memnons sem var þekkt persóna f grískri goða- fræði og sonur Eosar, morgungyðj- unnar, var skreytt fléttum af akant- us, sem tákni um sorg. Víða um heim er hjátrú tengd jurtum af þyrni- ætt, og er t.d. alsiða á Indlandi að setja þyrna í grafir til að koma í veg fyrir að hinir dauðu gangi aftur og víða eru þyrnirunnar settir á leiði manna. í danskri bronsaldargröf --------------------------------------------;---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------- Ara Pacis. Friðar- aritiinn. Rómversk útfœrsla á akant- usmunstrinu. Rómverjar komu fram með hinn eig- inlega blaðteinung. Munstrið er orðið blaðríkara og stönglarnir enda í hnöppum og blómurn. Frá Róm lð.f.Kr. 78 SAGNIR

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.