Sagnir - 01.06.1994, Side 54

Sagnir - 01.06.1994, Side 54
Þingvellir i rigningarsuddanmn 17. júní 1944 fræði lýðræðisþjóðfélaga hafi þjóðin upphaflega verið hálfgerð aukaafurð, eða fyrst og fremst hentugur rammi fyrir full- veldi einstaklinga. Flestum hefur gleymst að sú staðreynd að franska þjóðin var val- in sem uppspretta fullveldisins í byrjun, en ekki íbúar hvers liéraðs íýrir sig, eða íbúar Evrópu allrar, á í sjálfu sér engar rökrænar skýringar, heldur studdist ein- ungis við aðstædur þess tíma sem full- veldið var fært þegnununt. I raun væri á margan hátt skynsamlegast og réttlátast að heimurinn allur lyti sömu lögum og sömu rikisstjórn, enda hefur komið í ljós að skipting í þjóðríki hefur skapað ótelj- andi vandamál í alþjóðasamskiptum. Slíkt finnst mönnum erfitt að ímynda sér i dag og það var auðvitað óhugsandi á 18. öld þegar samgöngur voru mun vanþróaðri en á ofanverðri 20. öld. hví létu menn sér nægja að takmarka þann hóp sem átti fullveldið í sameiningu við sæmilega við- ráðanlega stærð, sem mótaðist oftast af þeirri ríkjaskipan sem þjóðríkin erfðu frá einveldunum gömlu. Nú á tímum er ástandið allt annað. A tímum greiðra flugsamgangna, fjarskipta, faxtækja, sjónvarps, tölvuneta, o.s.frv., eru landamæri þjóðríkjanna löngu hætt að hafa sömu efnahagslega þýðingu og áður - i ýmsum tilvikum er óskorað full- veldi þjóða yfir afmörkuðum landsvæð- unr meira að segja stórhættulegt, ekki síst þegar kemur að vandamálum sem virða engin landamæri, s.s. mengun og meng- unarvörnum. En samt sem áður óttast þegnar flestra þjóðríkja afsal fullveldis eins og pestina og geta ekki hugsað sér annað form á fullveldinu en þjóðina sem þeir tilheyra nú. Fyrir þeim er þjóðin ekki lengur sögulegt fyrirbæri, heldur hluti af mannlegri náttúru sem enginn getur afneitað. Að rnínu rnati liggja fýrir þessu tvær ástæður fyrst og fremst. Annars vegar þjónar þjóðin mjög mikilvægu hlutverki í nútímasamfélagi sem sameiningartákn, eða grunnur samkenndar, og hefur þann- ig að hluta til leyst af hólmi stofnanir eins og kirkju og fjölskyldu.7 A þennan hátt hefur nútíma þjóðríkið unnið gegn því ójafnvægi sem myndast hefur á milli skynjunar okkar sem einstaklinga og hópvera upp á síðkastið, segir þýski fé- lagsfræðingurinn Norbert Elias, þannig að nú á tímum telja margir að þjóðríkið sé jafn sjálfsagður þáttur í tilveru manna og fjölskyldan var áður.8 Að hluta til er hér um eðlislæg viðbrögð að ræða, vegna þess að mannskepnan virðist alla tíð hafa 52 SAGNIR

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.