Sagnir - 01.06.1996, Síða 45

Sagnir - 01.06.1996, Síða 45
M A R X í S K. JÁL§Ý N framleiðslunnar myndast framleiðslu- tengsl og í skjóli þeirra myndast stéttir. Firringin endurspeglar hið stétt- og verkskipta þjóðfélag og þegar fram- leiðsuöflin hafa þróast á það stig að framleiðslutengslin hamla frekari þróun, þá brýst út bylting sem eyðir ríkisvaldinu, „framkvæmdaráði borgara- stéttarinnar". Söguspeki marxismans er annað og meira en aðferð við greiningu sögulegra atburða. Atburðarásin rennur ekki fram eftir fyrirfram ákveðnum brautum óháð mannlegum vilja. Framtíðin ákvarðast af skilningi mannsins og þeim aðgerðum sem hann mun grípa til. Maðurinn hefur áform. Þess vegna telst það viðfangsefni marxismans að bylta hugarfarinu og skapa hugtakamynstur pólitískra og félagslegra breytinga. I samruna kenn- ingar og veruleika, skyldi öreigastéttin vakna til meðvitundar um eðli sitt og markmið, og mannkynssagan leidd til lykta í öreigabyltingu mannlegrar reisnar. Marxisminn er hugsýn um að mögulegt verði, ... að aga og rækta mennina svo endi verði þar með bundinn á skelfilega drottnun þess fáránleika og tilvilj- unar sem hingað til hefur verið kölluð „saga“.10 Stéttir og stéttabarátta I Kommúnistaávarpinu koma fram hug- myndir um þjóðfélagsbyltingu öreiga- stéttarinnar. „Saga mannfélagsins hefur fram að þessu verið saga um stétta- baráttu." Svo hljóða upphafsorð ávarps- ins og þar með er tónninn sleginn. Hann er afdráttarlaus og ljóst er að formið ber innihaldið ofurliði. „Þessari baráttu hefur jafnan lokið á þá lund, að þjóð- félagið hefur tekið hamskiptum í byltingu eða báðar stéttir liðið undir lok."11 Byltingarsigur öreiganna er talinn óumflýjanlegur. Framleiðsluöfl borgara- stéttarinnar eru hagskipaninni ofviða. „Þjóðfélagshættir borgarastéttarinnar eru orðnir svo þröngir, að þeir fá ekki hamið þann auð, er þeir hafa skapað".12 I Skilgreining Marx á stéttum er breytileg. I Kommúnistaávarpinu gerir Marx einungis ráð fyrir tveimur stéttum: „Gervallt þjóðfélagið skiptist æ meir í tvo mikla fjandmannaflokka, í tvær meginstéttir, er standa andspænis hvor annarri, augliti til auglitis: borgarastétt og öreigalýð."12 Stéttakenningin er þungamiðja. I huga Marx er hún ekki aðskilin sögulegri efnishyggju og skýrir það hvers vegna Marx skilgreinir stéttir á efnahagslegum forsendum, þannig kemst hann hjá því að kafa dýpra.14 Hann á engra kosta völ. Stéttakenningin er tæki til greiningar og sem þáttur sögulegrar efnishyggju kemur hún skipan á félagslegar staðreyndir. Kenningunni er ekki ætlað að skýra afmarkaða þætti. I kenningakerfi Marx er stétt, rétt eins og ríkið eða firringin, hverfult hug- tak sem nær hámarki undir hinu kapítal- íska þjóðskipulagi. Sé mið tekið af mik- ilvægi stéttahugtaksins þá er undarlegt að Marx greinir það hvergi með kerfis- bundnum hætti. Ætla má að hann hafi talið þrjár stéttir vera til staðar: vinn- andi menn, kapítalista og landeigend- ur.15 J)etta er gagnstætt því sem kemur fram í Kommúnistaávarpinu. Athygli er engu að síður vakin á mikilvægi þess að stéttirnar eru fleiri en tvær. Þá má hugsa sér eitthvert millistig milli þeirra tveggja fjandmannaflokka sem standa hvor andspænis öðrum. Hin tveggja stétta framsetning einfaldar myndina í nafni fræðilegrar þjóðfélagsgreiningar. Marx gerði sér fyllilega grein fyrir veikleikum framsetningarinnar; landeigendur og bændur geta t.a.m. staðið á mörkum stéttanna. Skilgreining á menntamönnum olli erfiðleikum og Marx gagnrýndi David Ricardo fyrir að vanmeta hina ört vaxandi millistétt.16 Sundurleitar skilgreiningar á stétta- hugtakinu koma ekki einungis fyrir á mismunandi þróunarstigi hugsunarinnar. Mismunandi afstöðu má jafnvel greina í sama riti. Marx notaði hugtakið einnig sem samheiti yfir hverskonar hópa en slíkt var algengt á hans tíð. I Þýsku bug- myndafrœðinni má greina vísi að skil- greiningu: Einstaklingar mynda aðeins stétt að því marki sem þeir verða að heyja sameiginlega baráttu gegn annarri stétt; að öðru leyti heyja þeir sam- keppni hver við annan. Á hinn bóg- inn öðlast stéttir sjálfstæði gagnvart einstaklingum, svo að þeir mæta fyr- irfram tilteknum lífsskilyrðum. St- éttin markar þeim bás í lífinu og skammtar þeim persónuþróun um leið. Einstaklingarnir eru undirokað- ir af stéttinni.17 Sú túlkun skín í gegn að stétta- skiptingin endurspegli firringu mannsins og því fer ekki á milli mála að stétta- kenningin er í brennidepli kenningar- innar. I „Átjánda Brumaire Lúðvíks Bonaparte" er svipaður tónn. Þar segir: „Ef litið er á það, að milljónir fjöl- skyldna lifa við efnahagsleg kjör, sem greina lífshætti þeirra og menntun frá öðrum stéttum og gera þær óvinveittar öðrum stéttum, þá mynda þær stétt.“ Og ennfremur: „Ef litið er á það að ekkert nema staðarleg tengsl bindur smábænd- urna saman, einhæfni hagsmunanna skapar ekki með þeim neitt samfélag, landssamband eða pólitísk sambönd, þá mynda þeir enga stétt."18 I Kommúnistaávarpinu, þar sem Marx er þannig auðkennd af afstöðu til framleiðsluhátta. Einstaklingurinn til- heyrir hinni þjónandi stétt ef hann á ekki og, í því skyni að lifa, neyðist til þess að selja vinnuafl sitt öðrum til gróða eða ánægju. En forsenda stétta hlýtur ennfremur að felast í stétta- hagsmunum sem meðlimir stéttarinnar eru meðvitaðir um. Stétt hefur tak- markaða þýðingu ef aðilar stéttarinnar eru sundurleitir. Mælikvarðarnir eru því í meginatriðum tveir: annars vegar tengslin við framleiðsluhættina og hins vegar meðvitund hópsins um sjálfan sig sem stétt og stjórnmálasamtök henni samfara.19 Samkvæmt kenningu Marx er stétt hagfræðilegt hugtak af þeim sökum að framleiðslutengslin leiða til stéttaskipt- ingar og í kjölfarið stéttabaráttu. Þetta skýrist af því að framleiðslutengsl end- urspegla valdatengsl, en valdatengsl geta af sér stéttatengsl. Stéttatengsl myndast við virkni efnahagslífsins og gera einst- aklingum að skipa sér í flokk. Þannig fellur stéttakenningin að framleiðslu- gerir einungis ráð / Kommúnistaávarpinu gerir Marx einungis ráð fyrir tveimur stéttum: „Gervallt þjóðfélagið skiptist æ meir í tvo mikla fjandmannaflokka, í tvær meginstéttir, er standa andspænis hvor annarri, augliti til auglitis: borgarastétt og öreigalýð. fyrir tveimur stéttum, skilgreinir hann borg- arastéttina sem eig- anda framleiðslutækja og vinnuveitendur. Öreigastéttin er skil- greind sem sú stétt sem á engin fram- leiðslutæki og er sá kostur nauðugur að selja vinnu sína hæst- bjóðanda. Stéttastaða 45-Sagnir 1996
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.