Sagnir - 01.06.1996, Qupperneq 54

Sagnir - 01.06.1996, Qupperneq 54
Sigrún Sigurðardóttir Islendingurinn sem Arið er 1856. Ólafur Hannesson Johnsen stendur á hafnarbakkan- um í Kaupmannahöfn, reiðu- búinn til þess að takast á við framtíðina og lífið fjarri bernskuslóðunum, fjarri fjölsyldunni, fjarri móður sinni og föður. Sjálfstæður maður! Nú þegar Ölafur hafði stigið skrefið til fulls og var orðin sigldur maður leit samfélagið á hann sem sjálfstæðan ungan mann. Þannig sá hann líka sjálfan sig. Það var ekki fyrr en seinna sem hann fann hversu erfitt það var að vera álitinn sjálfstæður ungur maður, fullorðin maður, en vera um leið háður föður sínum fjárhagslega, og þeim báðum, föður sínum og móður, tilfinningalega háður. Það var einmitt þá sem sjálfsímynd hans stóð völtum fótum. Hann vissi ekki hvort hann var fullorðin eða barn og seinna þegar hann hafði stofnað sína eigin fjölskyldu i Dan- mörku og fann að hann var fullorðinn þá vissi hann ekki lengur hvort hann var Islendingur eða Dani. Ja, reyndar leit hann alltaf á sjálfan sig sem Islending en þó var svo komið að hann átti orðið fátt sameiginlegt með þeim þar heima. Danskar venjur og hugsunarháttur höfðu mótað hann mjög á þroskaárunum í (Kaupmanna)Höfn og voru orðin hluti af lífi hans, hluti af honum sálfum. Samt sem áður voru rætur hans fastar á Islandi. ÖIl hin gömlu gildi sem rist voru í sálu hans í barnæsku voru óaf- máanleg. Hann saknaði gömlu Reykja- víkur. Hann saknaði þess að vera innan- búðarmaður í samfélaginu. Hann sakn- aði þess að vera ekki eins og heima hjá sér. Kannski var það einmitt þess vegna sem fjölskyldan var Ölafi svona mikilv- æg. Kannski var það þess vegna sem Ólafur Johnsen hélt áfram að leita hugg- unar og stuðnings hjá foreldrum sínum langt fram á fullorðinsár. Kannski var það þess vegna sem Ólafur Johnsen var / þessari grein fjallar Sigrún Sigurðardóttir um líf, viðhorf og tilfinningar ungs manns sem fór tvítugur að aldri árið 1856 til náms í Kaupmanna- höfn, menntaði sig þar og stofnaði fjölskyldu en fann þó aldrei það heimili sem hann leitaði að. Foreldrar Ólafs Hannessonar Johnsen voru íslendingar, börn hans urðu Danir en sjálfur stóð hann milli tveggja elda og saga hans er samnefnari að mörgu leyti fyrir ótal íslendinga sem leituðu tækifæranna erlendis en sneru aldrei heim. Þessi grein er að mestu leyti byggð á bréfum Ólafs og Steingríms bróður hans til foreldra sinna á íslandi, Hannesar Steingrímssonar Johnsens, kaupmanns og eiginkonu hans Sigríðar Kristínar Símonar- dóttur. mjög tilfinngingalega og félagslega háður eiginkonu sinni, Önnu Lucindu. Kannski var það þess vegna sem Olafur Johnsen lék hlutverk hins mjúka manns á heimili sínu þrátt fyrir að honum stæði ógn af kvenréttindakonum sem lögðu áherslu á vitsmunalega hæfileika kvenfólks og hristu upp í hinum hefðbundnu karl- og kvenimyndum. Ólafur Johnsen starfaði við hlið eiginkonu sinnar á heimili þeirra í Óðinsvéum. Hann sinnti börnum sínum af miklum áhuga, hugsaði um þau, talaði við þau og gerði sitt besta til að koma þeim til manns. Hann vildi innræta þeim það góða sem honum hafði verið kennt í æsku en tók þeim jafnframt á þeirra eigin forsendum og varð að lokum að gefast upp fyrir þeirri staðreynd að þau voru ólík honum. Þau urðu dönsk. Hann var Islendingur. Ólafur bjó í tuttugu ár á Islandi. Arin hans í Danmörku urðu sextíu. Hefði Ólafur vitað að saga hans yrði að mörgu leyti samnefnari fyrir ótal Islend- inga sem leituðu tækifæranna erlendis en snéru aldrei heim er ekki víst að hann hefði stigið niður af skipsfjöl í borginni handan við sundið. Hvað er verra en heimilisleysið og einveran mitt í mann- þrönginni. Ólafur skrifaði foreldrum sínum og systkinum á Islandi ótal bréf og segir I þeim frá líðan sinni og hugsunum, vonum og væntingum. Sum þessara bréfa hafa varðveist og er stór hluti þeirra geymdur á Handritadeild Landsbóka- safnsins. Þetta eru falleg bréf, vel skrif- uð og læsileg og spanna stóran hluta tímabilsins frá 1857 til 1885, einkum þó tímann fram á haustið 1878. Eftir þann tíma vantar í safnið fjöldan allan af bréfum. Einnig er greinilegt að ekki hafa öll bréfin sem Ólafur skrifaði fyrir þann tíma varðveist í safninu. I þessari grein ætla ég að gera grein fyrir lífi Ólafs Hannessonar Johnsen (24. 02. 1837-14.12.1916) eins og það kom mér fyrir sjónir þar sem ég sat á Landsbókasafninu og grúskaði í einkalífi hans. Greininni er skipt upp í tvo hluta. Sá fyrri greinir einkum frá Kaupmanna- hafnarárum Ólafs, daglegu lífi hans þar sem námsmanns og sambandi hans við foreldra sína á þeim árum. I þessum hluta styðst ég einnig töluvert við bréf Steingríms Hannessonar Johnsen (10.12.1846 - 03.01.1901) bróður Sagnir 1996 - 54
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Sagnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.