Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.06.1968, Blaðsíða 5

Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.06.1968, Blaðsíða 5
THEODÓR GUNNLAUGSSON frá Bjarmalandi: NOKKUR ORÐ UM NÖFN Á PLÖNTUM Ég mun hafa verið 8—9 ára, þegar Guðmundur bróðir minn, sem við systkini hans og foreldrar nefndum ávallt Munda — fór að segja mér heiti þeirra blóma, sem mig langaði til að vita, þegar tækifæri gáf- ust: Hann hafði þá fyrir nokkrum árum keypt Flóru Stefáns Stefáns- sonar skóiameistara en hún kom út 1901. Oft minnist ég þess — bæði þá og síðar — hve hann dáði þá bók og höfund hennar fyrir það fram- tak og þær margháttuðu og tímafreku rannsóknir, sem hann hafði gert til að geta skapað slíkt stórverk um íslenzkar plöntur, landsmönnum til menningarauka og þeim, er blómum unna, til unaðslegrar tóm- stundavinnu. Ég man líka enn, þegar Mundi bróðir var að segja mér nöfn á sama blóminu, hve mér fannst þau ólík. Án efa hefur ástæðan verið sú, að fyrstu blómin, sem ég lærði að nefna réttum nöfnum, voru túnfífill og brennisóley. Túnfífillinn var dásamlega fagur eins og líka brennisóleyjan, enda komst það inn í höfuðið á mér — löngu áður en ég vissi að þau hétu annað en bara sóley og fífill — að þau hlytu að vera hjón. Þó hafði túnfífillinn, í mínum augum, strax mikla yfirburði yfir konu sína. Hann var miklu stærri, ilmaði betur og svo sóttu á hann þessar risastóru hunangsflugur, sem ég var þá dauðhræddur við. En hann lét það ekkert á sig fá. Nú, svo var leggur hans holur innan og gat orðið býsna langur og til margra hluta nytsamlegur fyrir mig. í fyrsta lagi var himnan utan af stönglinum glær og furðu sterk. Væri hún hreinsuð vel, strengd á milli efri hnúa þumalfingra, svo hæfilegt bil varð báðum megin við hana og blásið svo með lægni á röð hennar, kom oft svo sterkt og rammhást hljóð, að helzt líktist nautsöskri. Og það var hreint lygilegt hvað jafnvel hunangsflugurnar gátu orðið hræddar við þetta hljóð. Þó var stöngullinn langt um nytsamari. Hann varð fyrstur til að gera mér það kleift að góma sauðamjólkina úr föt- TÍMARIT UM ÍSLF.NZKA GKASAFRÆÐI - FlÓm 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði
https://timarit.is/publication/1052

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.