Félagsbréf - 01.07.1956, Blaðsíða 14
12
FfiLAGSBRÉF
Svo mörg voru þau orð — og
óendanlega barnaleg.
En þessi einfeldnislcga og and-
Tildy forseta grunar ekki ennþá, at!
vélrœSi kommúnista muni koma
stjórn lians á kné.
varalausa afstaða Smábændaflokks-
ins, sem varð landinu að lokum svo
geigvænlega dýr, átti sér hliðstæður
í öðriun lýðræðisflokkum. Foringi
Jafnaðarmannaflokksins, Arpad Sza-
kasits, sagði 19. október þetta sama
ár:
„Ungverjaland óskar ekki eftir
járntjaldi milli austurs og vesturs.
JafnaSarmannaflokkurinn viðurkenn-
ir nauðsyn innilegrar og sterkrar
vináttu milli Ungverjalands og Sovét-
ríkjanna, en hún má ekki vera
þröskuldur í vegi fyrir samskonar
vináttu við hin vestrænu veldi“.
í apríl 1946 var Nagy forsætis-
ráðherra formaður nefndar, sem fór
til Moskvu til þess að ræSa undir-
búning væntanlegra friðarsamninga
og fleiri mál. YiS heimkomu sína
lýsti hann yfir því, að hann og
menn hans hefðu mætt fyllsta skiln-
ingi um allt, sem varðaði friSar-
samningana.
I miðdegisveizlu, sem sendinefnd-
inni var lialdin, hélt félagi Stalin
ræðu og sagSi meðal annars: „Sovét-
ríkin hafa aldrei borið neinn kala til
ungversku þjóSarinnar, jafnvel ekki
á styrjaldarárunum. Sovétríkin óska
ekki að hafa áhrif á innanlandsmál
Ungverjalands".
Þessi einfeldnislegu viðliorf hinna
ungversku leiðtoga sýna Ijóslega, hve
háskalegur hinn kommúnistiski blekk-
ingaáróður er, og yfirlýsing Stalins
þá takmarkalausu flærS, sem er cin-
kennandi fyrir Sovétríkin og alla
þeirra utanríkispólitík.
Yorið 1946 komst Ungverjaland í
mikla fjárhagsörðugleika, sem ollu
stjóminni ýmsum vandræSum. Þrátt
fyrir lán frá Bandaríkjunum og ríf-
leg framlög úr endurreisnarhjálp
Sameinuðu þjóðanna var allt hag-
kerfi landsins og efnahagslíf í hraðri
upplausn, sem að verulegu leyti staf-
aSi af gífurlegum kostnaði af setu
Rauða hersins í landinu og gegndar-
lausum ránum og brottfærslum aSal-
verðmæta þjóðarinnar, sem talin
voru nema hundruðum milljóna doll-