Félagsbréf - 01.01.1957, Side 20

Félagsbréf - 01.01.1957, Side 20
Mér finnst böm, þangað til umhverjiö er farið að sljóvga þau og sníða til, vera það dásamlegasta, sem til er. Lokaorð á afmælishátíð í þjóðleikhúsinu 14. september 1956’) Virðulegu forsetahjón, háttvirtu áheyrendur. 'jl/|'ÉR finnst sannast að segja þið eiga annað skilið af mér, eftir allt, sem hér hefur farið fram í kvöld, en að eg fari að halda yfir ykkur langa ræðu. Og ef eg ætti að fara að telja það upp, sem mér hefur verið vel gert í dag, þá gæti þetta orðið heill Jónsbókarlestur. En á þessum stað og þessari stundu eru samt einstöku hlutir, sem eg verð að minnast á. Eg vil þakka Almenna bókafélaginu, stjórn þess og bókmenntaráði, fyrir að hafa staðið að þessu kvöldi og sýnt okkur hjónunum þá rausn og vinsemd að bjóða okkur að koma heim og vera hér viðstödd. Eg vil þakka þeim vinum mínum, rektor Háskólans og borgarstjóra Reykjavíkur, fyrir þau fallegu orð, sem þeir hafa mælt í minn garð. Og eg vil þakka öllum þeim, sem flutt hafa hér efni, sem eg hef skrifað, gamalt og nýtt, og gert það svo vel, að eg hef mátt hafa mig allan við að láta mér ekki finnast það miklu betra en það er í raun og veru. Yfirleitt hefur þetta verið mikill freistingadagur. Eg get sagt 1 Erindið er skrifað upp eftir segulbandi.

x

Félagsbréf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.