Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.12.1941, Side 27

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1941, Side 27
SVEITARSTJÓRNARMÁL 23 í 79. grein laganna segir svo: „Sannist það á einhverja sveitarstjórn, að hún visvitandi gefi rangar skýrslur eða upplýsingar í þeim tilgangi að öðlast endurgreiðslu frá ríkissjóði, missir við- komandi sveitarfélag rétt til allrar endur- greiðslu frá ríkissjóði það ár, auk þeirrar hegningar, sem sveitarstjórnin kann að haka sér með slíku athæfi samkvæmt ákvæðum hinna almennu hegningarlaga“. Ættu oddvitar og bæjarstjórar sérstak- lega að minnast þessarar greinar, er þeir gera Jöfnunarsjóðsskýrslur sinar. Þær eru af engum endurskoðaðar og ekki á áhyrgð sýslunefndar né sýslumanns, og fyrir þær ber því þeim einum og hrepps- nefndinni að svara til saka. Oddvitar og bæjarstjórar mega vita það, að við, sem förum yfir skýrslurnar og reiknum út eftir þeim, höfum ýmsar leiðir til þess að sjá við þeim „klókskap“, sem þeir kunna að finna upp á að viðhafa við skýrslugerðina, og eins hitt, að þó okkur geti í fyrstu yfirsézt, berum við skýrslurnar síðar saman við reikninga sveitarfélaganna og önnur opinber gögn um þessi mál, og þá kemst það upp, ef rangt hefur verið að farið, og það er litlu hetra, „að upp komist svik um síðir“. Ég skal hér aðeins nefna tvö dæmi af fleirum, sem fyrir hafa komið. Sveitarfélag eitt, sem hafði mikla gamalmennaframfærslu, færði sem út- gjöld á jöfnunarskýrslu sína öll útgjöld til gamalmenna, bæði það, sem Trygg- ingarstofnun ríkisins greiddi, og eins hitt, sem sveitarfélagið sjálft greiddi, og taldi það allt „greitt úr sveitarsjóði“, eins og á skýrslunni stendur. Þegar oddvitinn var um það spurður, hvernig á þessu stæði, svaraði hann því, að skýrsluformið ætlaðist sýnilega til þess, að allt væri talið fram, sem greitt væri úr sveitarsjóði, og hluti Tryggingar- stofnunarinnar kæmi fyrst inn í sveitar- sjóð og færi svo þaðan út aftur og þannig væri hann einnig „greiddur úr sveitarsjóði". Hins vegar kvaðst hann framvegis aðeins mundu færa upp það, sem hreppurinn sjálfur legði út, fyrst þetta væri ekki talið heimilt. Við þetta var nú látið sitja og skýrsla oddvitans leiðrétt um þessa skekkju. Hitt dæmið er um „kennaralaun“ og er þessu hliðstætt. Þar var .gerð tilraun til þess að færa á skýrsluna öll laun kennaranna, ■—■ lika þann hlutann, sem ríkissjóður greiðir, — og er það sýnu verra að því leyti, að sá hlutinn kemur aldrei í sveitarsjóðinn og fer því aldrei út aftur. Var þetta nú leiðrétt. Rétt er að taka það skýrt fram, að ekki má færa á jöfnunarskýrslurnar það af ellilaun- unum, sem Tryggingarstofnun ríkisins greiðir, né þann hlutann af kennaralaun- unum, sem ríkissjóður greiðir. Þetta er líka með öllu tilgangslaust, því við höfum hjá Tryggingarstofnuninni og fræðslumálastjóra gögn til að fullvissa okkur um þetta hvort tveggja og leiðrétt- um skýrslurnar samkvæmt því, ef eitt- hvað er við þær að athuga hvað þessi at- riði snertir. Langt um verra er það þó, þegar fá- tækraframfærslan sjálf er skakkt upp gefin, eins og því miður hefur komið fyrir og það um verulegar upphæðir. Ég á lítinn kost þess að ganga úr skugga um, hvort svo sé, fyrr en endurskoð- aöir reikningar sveitarfélaganna hafa borizt til Hagstofunnar, sem lánar mér þá til þessa samanburðar. En þó takast megi eitt sinn að draga sér þannig með röngu einhverja upphæð af jöfnunarfénu, kemur þetta síðar í ljós, og verður þá hin ofgreidda upphæð tekin af jöfnunarfé sveitarfélagsins, sem það þá kannske þolir illa, að skert verði. En auk þess mun ávallt siðar verða litið með tortryggni á skýrslur slíks sveitarfélags og dregin afhending jöfnunarfjár þess, þar til hægt hefur verið að framkvæma samanburð við reikninga þess. Þó ég hafi orðið svo margorður um þetta, er það ekki af því, að mikil brögð séu að þessu, sem betur fer. Hitt er ástæðan, að þetta á ekki og má ekki koma fyrir.

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.