Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.12.1941, Page 30

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1941, Page 30
26 SVEITARSTJÓRNAUMÁL í ö.ðru lagi: Leit að ákveðnu skipulags- kerfi eða „beinagrind“, sem leggja megi til grundvallar, en veiti þó möguleika til eðlilegrar útþenslu liyggðarinnar. f þriðja lagi: Framkvæmdir sjálfs skipulagsins og eftirlit með því, sem gert er. — Um fyrsta atriðið, athugun þess, sem fyrir er, má segja, að það sé venju- lega auðveldasti hluti verkefnisins, en þó er það að athuga, að hér kemur ekki ein- göngu til greina að mæla upp landið og það, sem byggt hefur verið, heldur þarf einnig jafnhliða að athuga afkomu- möguleika og athafnalíf hvers staðar og miða hið nýja kerfi við þarfir og getu hinnar uppvaxandi liyggðar. Sögulegar og hagfræðilegar staðreyndir eru þar meginatriðin, en alltaf hljóta þó að vera nokkrir erfiðleikar á því að sjá fyrir, í hvaða áttir athafnalífið beinist og hvaða stækkunarmöguleikum þurfi að lialda opnum. En þetta er mikilvægt atriði, og án þess að hafa nokkra yfirsýn yfir það, er ekkert skipulagsverkefni fullleyst. Tækni nútímans auðveldir uppmælingu þess, sem fyrir er, og má jafnvel leggja til grundvallar myndir teknar úr lofti. Heildaruppdráttur skipulags eða yfir- litsuppdráttar þess svæðis, sem skipu- leggja skal, er fyrsta verkefnið. Þegar honum er lokið í aðalatriðum, er upp- drátturinn lagður fraui almenningi til sýnis um nokkurn tíma, og er þá öllum heimilt að gera við hann athugasemdir og óska breytinga, ef þær eru á rökum byggðar, en síðan skal uppdrátturinn fullgerður með á orðnum breytingum og staðfestur af stjórnarráðinu, eftir að hann hefur lilotið samþykki hlutaðeig- andi bæjaryfirvalda. Mœlingaruppdráttur Reykjavíkurbœjar frá árinu 1801, er sýnir kjarna bœjarins, miðbœinn milli Tjarnarinnar og liafnar. Lengst til hœgri sést móta fgrir þáverandi þjódbraut lil Regkjavikur, cn ummerki hennar sjást enn í dag á Arnarhótstúninu, sunnan Ingólfsstyttunnar. — Um þetta legti voru íbúar bœjarins 307 að tölu. 7*9*« T V Baijer OpmAxll i (IctoW l*oi •I i,irul(auuitrrnr OHím ^ Aaiiuih

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.