Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.12.1941, Side 33

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1941, Side 33
SVEITARSTJÓRNARMÁL 29 Lega höfnðslaðarins cr einkar fögur, og cr innsiglingunni nið brugðið. Bœjarstœði Reykjavikur md tclja cilt hið fegursta af borgum Norðurlanda. Bæjarbúum á að vera sérstök ánægja og sjálfsögð skylda að. ganga vel um þessi opnu svæði bæjanna, þannig að þau megi jafnframt verða spegilmynd menningarlegs þroska íbúanna. Stjórn skipulagsmálanna. Skipulag Reykjavíkur. — Ég hef nú í fáeinum almennum dráttum drepið á nokkur helztu við- fangsefni þeirra, sem við skipulagsmál fást. En eðlilega getur slík frásögn ekki orðið annað en takmörkuð undirstaða þess, sem ég síðar mun gera að umtals- efni. Öll starfsemi manna, svo fjölbreytt sem hún er, hefur áhrif á skipulagning- una og markar henni svið. Ég mun nú með nokkrum orðum minnast á skipulagsmál Reykjavíkur- bæjar, sem er stærsta viðfangsefnið hér á landi, og er það til skýringar á mörgu, sem ég hef gert að umtalsefni að framan. — Skipulag íslenzkra bæja grundvallast á lögum um skipulag kauptúna og sjávar- þorpa frá árinu 1921. Lög þessi eru samin að verulegu leyti skv. tillögum Guð- mundar Hannessonar prófessors, sem frá upphafi hefur átt sæti í Skipulags- nefnd ríkisins með þeim Geir G. Zoéga vegamálastjóra og prófessor Guðjóni Samúelssyni húsameistara ríkisins. Árið 1938 var skipulagslögunum breytt þannig, að ákveðnar var tekið fram um framkvæmdir og eftirlit skipulagsnefnd- ar með öllum íslenzkum bæjUm, en frá 1931—38 hafði Reykjavíkurbær haft friálsar hendur um framkvæmdir skipu- lags bæjarins. Skipulagsnefnd annast, undir eftirliti stjórnarráðsins, stjórn skipulagsmálanna. í nefndinni eiga sæti: Húsameistari ríkisins, vegamálastjóri og vitamálastjóri.

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.