Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.12.1941, Síða 36

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1941, Síða 36
32 SVEITARSTJÓRNARMÁL Ili’crfísijalan mcd landsbókasafnimi og þjóðlcikhiisinu. settar, einkum sérleyfisbílum, verði koniið fyrir undir eitt þak, þar sem kolabingirnir eru nú við Kalkofnsvcg og Sölvhólsgötu. Ég hef áður bent á það lauslega, að e. t. v. væri mögulegt að leysa það vandamál með tvílyftri bygg- ingu á umræddum stað, þar sem um- ferðin frá Kalkofnsvegi liggur um neðri hæðina (bílar sem koma), en ferðbúnir bílar fari frá efri hæð um Ingólfsstræti í Skúlagötu. Er á þann hátt hallamunur- inn milli þessara gatna notaður sem bezt má. Þessi tillaga um fyrirkomulag sér- leyfisumferðarinnar, svo og umferð strætisvagna og stöðvabíla, krefst veru- legrar og skjótrar endurskoðunar gatna- kerfisins í bænum og breytingar á kjarna miðbæjarins, þaðan sem umferðin bein- ist í allar áttir. Til verulegra bóta hefur einstefnuakstur um aðalgötur bæjarins reynzt, en fullnægir þó engan veginn hinni hraðvaxandi umferð síðustu ára. I kjarna miðbæjarins, við Lækjartorg, greiðist talsvert úr, þegar skv. tillög- um bæjarverkfræðings verður numinn í brottu byggingarreitur sá, sem liggur milli torgsins og Hafnarstrætis, eða þar sem nú er Hótel Hekla og tvær aðrar byggingar. Verður þá sá bæjarhluti til muna álitlegri og frjálsari. Það er nauðsynlegt, að einmitt á þess- um stað, neðan til við brekkurnar, þar sem þegar hefur myndazt vísir til torga, verði krossgötur umferðarinnar. Tillaga sú, sem nýlega kom fram í dagblöðum um lokun Bankastrætis frá allri umferð vagna, er fásinna, því einmitt Banka- stræti er lífæðin úr miðbænum í Þing- holtin, Skólavörðuholt og mikinn hluta austurbæjar eftir Laugavegi, og hefur all- góð skilyrði til þess að verða svo áfram. Umferðin til suð-austurliluta bæjar- ins færi að sjálfsögðu mestmegnis um framlengingu Laufásvegar í Lækjargötu á móts við Skólabrú.

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.