Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.12.1941, Page 44

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1941, Page 44
40 SVEITARSTJÓRNARMÁL Sami’inmibústadir i höfuðborg Norðurlands — Akureyri. — Bústaðir þcssir eru ftjótt á að títa mjög skipulega gcrðir, en þó venst slík cinhliða bgggð ckki vel, þegar lil tengdar tœlur, þvi það er tilbregtnin, scm á að gcfa bgggðinni líf. Hins vegar er Akuregri vaxandi bær, sem hefur mikil og góð skilyrði fgrir for- gstu um trjárœkt í húsagörðum og skrtiðgörðum, sem aðrir bœir landsins mœttu margt gott af lœra. Hér hefur aðeins verið drepið á aðalat- riðin, en öllum nánari útskýringum sleppt. Frekari skil á þessu verkefni bíða seinna tækifæris. Þegar athuguð eru þau atriði, sem liggja fyrir til úrlausnar í sambandi við skipulagsmál og að nokkru leyti er minnzt á hér í upphafi, ber fyrst að líta á, hvar byggja skuli bæina (eða kauptúnin). Þar næst kemur gatnakerfið og umferðin, síðan húsin sjálf og nánasta umhverfi. Auk þessa ber að taka sérstakt tillit til opinna svæða, garða og torga, og að lok- um skiptingu byggðarinnar i afmörkuð athafnasvæði, svo sem liöfn, iþrótta- svæði, verksmiðju- og iðnaðarsvæði, íbúða- og verzlunarhverfi. Enn fremur eru heilbrigðismálin þýð- ingarmikill þáttur i byggingu hverrar borgar. ÖIl nánari greinargerð þessara atriða, hvers uni sig, hlýtur að bíða, og ég vona, að tækifæri gefist til þess að gera þeim nánari skil, með hliðsjón af dæmum úr núverandi byggingu islenzkra bæja og erlendra. Nýr kaupstaður. Hinn 14. maí s. 1. voru á Alþingi sam- þykkt lög um bæjarstjórn á Akranesi. Bætist þar í hóp kaupstaðanna frá næstu áramótum stærsta kauptúnið á landinu og verður lögsagnarumdæmi fyrir sig, er nær yfir allan Ytri-Akraneshrepp. Akranes hefur vaxið mjög hin síðari ár, og árið 1929 var settur þar sérstakur lögreglustjóri, er jafnframt gegndi odd- vitastörfum um skeið. En ekki þótti það reynast vel, frekar en annars staðar þar, sem sú tilhögun hefur verið, og var því kosinn þar oddviti á ný, með sama hætti og í öðrum hreppum. Mun þessa nýja kaupstaðar sérstaklega minnzt í næsta hefti þessa rits.

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.