Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.12.1941, Page 48

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1941, Page 48
44 SVEITARSTJÓRNARMÁL Vinnuhæli fyrir vandræðamenn. I. Hver sá, sem að nokkru ráði kemur nálægt fátækra- og sveitarstjórnarmál- um, hvort heldur er í sveit eða kaupstað, hefur tæplega gegnt því starfi lengi, þar til hann rekst á sérstaka tegund framfærsluþurfa, sem á máli sveitar- stjórnarmanna er nefnt „vandræðafólk“. Orðið lætur að vísu ekki vel í eyrum, en vandfundið mun lietra orð yfir fólk þetta, því að „vandráðið“ er fram úr fyrir því og „vandráðið“ mun að jafnaði fyrir það. Verður því við það orð notazt hér. Ýmsir hafa að vísu viljað hafa í þess stað „fá- vita“, en það'er sízt hetra orð né meira réttnefni. Þetta fólk, sem vandræðafólk er kall- að, er einkennilegasti flokkur alls hins mikla þurfamannahóps. Það er tiltölu- lega fátt. Oft er enginn vandræðamaður i hreppi og óvíða nema einn eða tveir, nema í Reykjavík eru þeir að jafnaði nokkrir. En þó að vandræðamennirnir séu fáir, er ssunt að öllum jafnaði marg- faldur kostnaðurinn af þeim, samanhorið við venjulegan framfærsluþurfa í svip- uðum kringumstæðum, og aama er um óþægindin af þeim, bæði fyrir sveitar- stjórnina eða framfærslunefndina og íbúa sveitarfélagsins. Þessi tegund framfærsluþurfa er alveg sérstök í sinni röð og hefur lent fyrir utan allar opinberar ráðstafanir, sem gerðar hafa verið til fyrirgreiðslu sjúku og fátæku fólki. Vandræðafólkið er því að kalla „utangarðs“ í þjóðfélaginu að öllu leyti. Stafar þetta af því sennilega, live erfitt er að koma því undir nokkurn sérstakan flokk og ástæðurnar fyrir vandræðamennskunni svo margar og misjafnar. Við höfum hér á landi hæli fyrir geð- veikt og brjálað fólk, en ekki heyrir nema mjög lítill hluti vandræðafólksins þeim flokki til. Sama er að segja um aðrar greinar sjúkrahúsvistar. Elliheimilin hafa helzt verið neydd til að taka við vandræðafólki, en hvort tveggja er, að ekki er það nema sáralítill hluti gamal- menna, sem er vandræðafólk, og þó eink- um hitt, að ekki á vandræðafólk frekar heiina á elliheimili, jafnvel þó að gam- alt sé, en t. d. á geðveikrahæli, vinnu- hæli eða öðrum slíkum stofnunum. Ber allt að sama brunni, hvert sem litið er, að þetta veslings fólk verður alls staðar utangarðs. Það er svo vandráðið fram úr fyrir því, að ekki er nema eðlilegt, að vort alvitra móðurmál hafi gefið því þeíta „vandræða“nafn. II. Af því að svo erfitt er að koma þessu fólki á einhvern hás í okkar skipulagi, þar sem það á rétt til að vera og skylt er að hafa .það, þá á það oftast hvað versta daga og líður oft einna verst af öllum þeim, sem hið opinhera hefur afskipti af. Einn vandræðamaður er oft hrein plága, jafnvel fyrir heilan hrepp eða kaupstað. Enginn fæst til að taka slíkt fólk á heimili sín, nema þá fyrir of fjár og alls ekki nema um stuttan tíma. Sveit- arstjórnirnar verða að ganga að hverju, sem upp er sett, því að þær eiga einskis annars úrkosta. í fangelsi, þó að til séu, má ekki láta slíka menn, nema þá ör- stutta stund, og oft verður svo, þegar vandræðin keyra orðið fram úr öllu hófi, að af verða misþyrmingar, sem leiða þá til enn meiri vandræða fyrir sveitar- stjórnirnar. Reyna þær þá að koma fólk- inu í aðrar sveitir með enn hærri með- gjöf en áður, og er þá horfið það aðhald, sem fyrir er heima í sveitarfélaginu, (bæði um að misþyrma ekki vandræða- manninum og halda kostnaðinum innan hæfilegra takmarka. Enginn veit í raun og veru, hvílík hörmung líf þessara auðnuleysingja er,

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.